Vegna viðhaldsvinnu geti verið truflanir á þjónustu Tímarit.is frá 18:00 og fram eftir kvöldi.

Samvinnan


Samvinnan - 01.03.1959, Blaðsíða 17

Samvinnan - 01.03.1959, Blaðsíða 17
talið sakir þess, að rannsókii þessa kraft- ar og virkjunartilraunir hafa hingað til mest gengið í þessa átt, að sannprófa gereyðingarmátt hans sem hernaðar- tækis. Aftur er og talið víst, að með honum mætti bæta lífsskilyrðin meir en nokkurn hefur áður dreymt um, ef hann væri notaður í þeim tilgangi. Hér ræðir sem sé um afrek mannsins, og kraft fyr- ir utan manninn. Og það veltur á mann- inum sjálfum, hvort hann verður hon- um til lífs eða dauða. Af þessu er ljóst, að kirkjan og atóm- öldin eru ekki neinar sambærilegar stærðir, né sameðlis, og geta því ekki beinlínis verkað hvor á aðra, hvað þá leyst hvor aðra af hólmi. Það er eins víst að kirkjan hefur ekki fundið upp atómið og hitt er gefið, að ógerlegt er að eyða anda kirkjunnar með atóm- sprengju. Þar með er alls ekki sagt að hér geti ekki verið um nein vixláhrif að ræða. Þvert á móti verður að játast, að spurningin, sem upp er borin, á fullan rétt á sér, einkum vegna aðstöðu og verkefna kirkjunnar nú á tímum. Það verður dagljóst við nokkra um- hugsun, að í augum þeirra manna, sem trúa á tilveru Guðs, þýðingu Krists, og eilífðareðli einstaklingsins, hefur aldrei verið meiri þörf á því en nú, að boð- skapur kirkjunnar hefði mikil og al- menn áhrif. Sé það satt, að vér séum öll á leið til annars heims, og daglega að sá fyrir eilífa tíð, munu fáir efast um, að nú er tími til að gera sér ljóst, að það stoðar engan að eignast allan heiminn, ef hann fyrirgjörir sálu sinni. Enn síður dylst þeim, sem hafa opin augun. að þeim mun skaðsamlegri vopn, sem menn hafa fengið í hendur, þeim mun meira ríður á að þeir kunni að fara með það. Mönnum á atómöld er lífsnauðsyn að góðvilji og friður ríki í heiminum. — Höfuðatriði kenningarinnar standa ekki aðeins í fullu gildi, frumdrættir boðunaraðferðar kirkjunnar eru heldur ekki úreltir á atómöld. Með því á ég fyrst og fremst við guðshúsin og megin- drætti guðsþjónustunnar. Hér er um dýrar og margreyndar erfðir að ræða, sem bæði er erfitt og illt að rjúfa. Ég á ekki við, að ég sé andsnúinn þeirri marg- breytni, sem nú færist í aukana varð- andi útlit kirknanna og fleira í því sam- bandi. Hún er einmitt eðlileg á atómöld. En nú sem áður er ekki unnt að hverfa frá sjálfstæðum kirkjuhúsum og nota yfirleitt sama sal fyrir guðsþjónustur og almennt félagslíf og gleðisamkomur, — nema nauður reki til um stundar sakir, — sakir þeirrar helgi og áhrifa, sem sjálft guðshúsið hefur á sálir manna. Þess vegna á líka að stefna að því að hafa sem flestar kirkjur alltaf opnar, svo að þær geti „messað sjálfar" og veitt þeim skjól, sem þess þarfnast. Það er heldur ekki líklegt að sjálft guðsþjónustuformið taki neinni gagn- (Framh. á bls. 24) í sambandi við komu danskra skemmtikrafta hingað til lands var haldin tízkusýning undir stjórn Rúnu Brynjólfsdóttur. Var þar eingöngu sýnd íslenzk framleiðsla, allt frá náttfötum upp í þykkar kúldaúlpur. Vakti það undrun manna og aðdáun, að svo fallegar flíkur skyldu vera framleiddar hér á landi. Sýningarfólk voru karlmenn, börn og fegurðardrottningar landsins. — Hér eru nokkrar myndir frá sýningunni: 1. Rúna sýnir regnkápu og regnhlíf úr „þrívíddarplasti“. Hvorttveggja er mjög fallegt og fæst í ýmsum lit- um. 2. Systur Rúnu, Ylfa og Aðalbjörg, eru í „Grænlands peysum“. Þetta eru góðar flíkur fyrir börn og fullorðna. 3. Rúna er í fal- legri vetrarkápu með loðkraga. 4. Vigdís sýnir látlausan, snotr- an kvöldkjól. SAMVINNAN 17

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.