Samvinnan - 01.08.1985, Síða 10
SJÁVARÚTVEGUR SAMVINNUMANNA
Gengi okkar í framtíðinni
veltur á þróun nýrra afurða
Sigurður
Markússon
framkvæmdastjóri
Sjávarafurða-
deildar
Sambandsins
svarar
spurningum
Samvinnunnar
Fregnir um svartar skýrslur fiski-
fræðinga, tap útgerðar og yfir-
vofandi rekstrarstöðvun fisk-
vinnslufyrirtækja hafa verið næstum
daglegt brauð hér á landi undanfarin
ár. Pess vegna langar mig til að spyrja
fyrst: Eru þau vandamál sem íslenskur
sjávarútvegur þarf að glíma við um
þessar mundir erfiðari viðureignar en
þú hefur áður kynnst í starfi þínu, en
þú hefur nú verið framkvæmdastjóri
Sjávarafurðadeildar Sambandsins í
áratug?
- Sá er eldur heitastur er á sjálfum
brennur, segir máltækið, og því
mundu stjórnendur útgerðar- og fisk-
vinnslufyrirtækjanna sjálfra best falln-
ir til að svara þessari spurningu. Þó
væri fráleitt annað en að viðurkenna,
að þessir erfiðleikar, sem þú víkur að,
koma á margvíslegan hátt við okkur,
sem störfum á vettvangi sölumálanna.
Það má sjálfsagt færa rök að því, að
erfiðleikar útgerðar og fiskvinnslu séu
nú meiri en nokkru sinni áður, a.m.k.
mældir í stærð þeirra skulda, sem
fyrirtækin eru að sligast undan og
einkum mundi þetta eiga við um
útgerðina. Hinu megum við heldur
ekki gleyma, að nú sýnast vera uppi
ýmsir nýir möguleikar, sem eiga að
geta bætt hag fyrirtækjanna þegar
fram líða stundir.
• Heita á fisk sér til langlífis
- Geturðu nefnt einhverja þessara
möguleika ?
- Ég vil þá fyrst nefna „heilsufars-
bylgjuna“, sem nú fer um heiminn og
hefur stóraukið áhuga fólks á fisk-
neyslu og bætt skilning á gildi fiskmetis
fyrir heilbrigði og vellíðan. Er víst
ekki fjarri lagi að segja, að Banda-
ríkjamenn heiti nú á fisk sér til
langlífis. í rækjuveiðum og vinnslu
eru mikil ævintýri að gerast. Þannig
hefur rækjuaflinn meir en tvöfaldast á
s.l. fimm árum og upp hafa komið
prýðilegir markaðir fyrir rækju í skel-
inni. íslendingar eru nú rétt að byrja
að nýta sér þá möguleika sem markað-
ir Vestur-Evrópu hafa upp á að bjóða.
Japan er að verða þýðingarmikill
markaður fyrir afurðir karfa og grá-
lúðu og fleiri botnfiskafurðir. Ný
tækni býður upp á hágkvæmari vinnu-
brögð í frystihúsunum og þar af leið-'
andi aukna framlegð og bætta afkomu.
Þessi sama tækni á að gera okkur
kleyft að vinna afurðirnar meira og
betur og auka þannig útflutnings-
verðmætið.
• Mikið áunnist á menntunarsviðinu
- Er sjávarútvegurinn nægilega
mikils metinn sem höfuðatvinnuvegur
þjóðarinnar og undirstaða efnahags-
lífs okkar, til dæmis hvað menntun
varðar og rannsóknir?
- Ég tel að sjávarútvegur sé mikils
metinn í þeim skilningi að landsmenn
sýna málefnum hans mikinn áhuga.
Ékki þarf annað en að fletta blaða-
kosti þjóðarinnar til að sjá merki
þessa. Hvað snertir menntun fólks til
starfa í sjávarútvegi, þá er þar vafa-
laust mikið starf óunnið og þá ekki
hvað síst á sviði starfsþjálfunar fyrir
fiskvinnslufólk. Á hitt ber einnig að
minna að mikið hefur áunnist á mennt-
unarsviðinu á síðustu árum. Ég minni
á ágætt starf Fiskvinnsluskólans og
Tækniskólans og sem betur fer fjölgar
nú háskólamenntuðum mönnum i
greininni ár frá ári, bæði þeim sem
menntaðir eru í raungreinum og þá
10