Samvinnan - 01.08.1985, Blaðsíða 20

Samvinnan - 01.08.1985, Blaðsíða 20
5-B ORK SJÁVARÚTVEGUR SAMVINNUMANNA 55 frystihús, frystitogarar og aðrir verkendur frystra afurða seldu afurðir sínar hjá Sjávaraf- urðadciid um síðustu áramót. málanefnd tók einnig að sér sölu frysts fisks. Það varð skilyrði fyrir lánum úr Fiskimálasjóði að þeir sem fengu lán létu Fiskimálanefnd selja sínar afurð- ir. Þetta varð til þess að einungis 7 frystihús seldu afurðir hjá Samband- inu fyrstu árin, enda fengu þau ekki lán úr Fiskimálasjóði. Sextán frysti- hús, sem annars hefðu selt hjá Sam- bandinu, seldu hjá Fiskimálanefnd og fengu lán úr Fiskimálasjóði. Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna var síðar stofnuð af þeim húsum, sem skiptu við Fiskimálanefnd. Eftir það fluttust þau hús sem samvinnuhreyf- ingin átti að meirihluta yfir til Sam- bandsins, þegar lán Fiskimálasjóðs greiddust upp. Nokkur hús sem líklegt má teljast að hefðu upphaflega gengið í viðskipti við Sambandið voru samt áfram í Sölumiðstöðinni og hefur hlutdeild samvinnuhreyfingarinnar í rekstri þeirra minnkað og í flestum tilfellum horfið alveg. • Frystihús hjá Sambandinu. Félagar í Félagi Sambandsfiskfram- leiðenda eru nú þessir: 7 hús, sem Sambandið á hlut í, þar af fimm með kaupfélögum og tvö með öðrum aðilum. 6 hús, sem rekin eru sem deildir í kaupfélögum. 11 hús eru hlutafélög í meirihluta- eign kaupfélaga. 7 hús, sem samvinnuhreyfingin á engan hlut í. 1 frystitogari, sem kaupfélag á hlut í. 32 fyrirtæki alls. Önnur fyrirtæki sem selja frystan fisk hjá Sambandinu: 1 hús í einkaeign með umtalsverðri framleiðslu og sem lengi hefur selt framleiðslu sína hjá Sambandinu, án þess að ganga í Félag Sambandsfisk- framleiðenda. 5 hús í einkaeign sem framleiða öðru hvoru einstakar afurðir. 14 fiskverkendur óháðir samvinnu- hreyfingunni, sem bættust við árið 1984, flestir með litla framleiðslu. 2 frystitogarar, sem bættust við 1983 og 1984. 1 frystihús, sem bættist við í ársbyrj- un 1985. 23 fiskverkendur alls. Það voru því samtals 55 frystihús, frystitogarar og aðrir verkendur frystra afurða, sem seldu afurðir sínar hjá Sjávarafurðadeild SÍS um síðustu áramót. Nú hefur einn frystitogari horfið yfir til Sölumiðstöðvarinnar að miklu leyti. Það hlýtur að vekja athygli hve margir nýir fiskverkendur bættust við árið 1984. Ég hygg að skýringin muni vera að afkoma Sambandsfrystihús- anna var betri en annarra frystihúsa árið 1983 og þó sérstaklega árið 1984. Svo mikið er víst að ekki hefur verið beitt fortölum né neins konar þrýstingi í þessu skyni. En hitt er svo rétt að þrýstingi hefur verið beitt í gagnstæð- um tilgangi. # Komið og farið. Síðan Félag Sambandsfiskframleið- enda var stofnað árið 1968 hafa eftir- talin fyrirtæki, sem áður voru í við- skiptum við önnur sölusamtök, komið í viðskipti við Sjávarafurðadeild Sam- bandssins:

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.