Samvinnan - 01.08.1985, Síða 16
SJAVARUTVEGUR SAMVINNUMANNA
A ukin umsvif sam vinnuhreyf-
ingarinnar í sjávarútvegi
s
Eftir Arna
Benediktsson
framkvæmda-
stjóra
Framleiðni sf.
Samband
OF ICELAND """
Árni Benediktsson er manna best kunnugur
sjávarútvegi samvinnumanna, eins og fram
kemur í því ítarlega erindi sem hér birtist.
Hann hefur verið framkvæmdastjóri Fram-
leiðni sf. frá 1977 og formaður félags Sam-
bands fiskframleiðenda frá stofnun þess 1968
og þar til á þessu ári. Einnig var hann
framkvæmdastjóri Kirkjusands hf. í Ólafsvík
1963-1968, Hraðfrystihúss SÍS í Reykjavík
1969-1972 og Kirkjusands hf. í Reykjavík
1973-1977 - og hefur auk þess gegnt fjölmörg-
um trúnaðarstörfum fyrir samvinnumenn inn-
an sjávarútvegsins.
Samvinnan hefur beðið um til
birtingar erindi, sem ég flutti í
félagi áhugamanna um sam-
vinnumál á s.l. vetri. Mér er ljúft og
skylt að verða við þessari beiðni, en
verð hins vegar að stytta erindið mjög
í uppskrift, þar sem það var óhæfilega
langt í upphafi. Öll hin sömu málsat-
vik munu engu að síður koma fram,
en sum í nokkru ágripsformi.
9 Einkafyrirtæki leita til
samvinnuhreyfingarinnar.
Guðmundur H. Garðarsson, blaða-
fulltrúi Sölumiðstöðvar hraðfrystihús-
anna, er meðframsögumaður minn
hér í kvöld. Ég sé á vali hans að gert
er ráð fyrir að aukin umsvif samvinnu-
hreyfingarinnar í sjávarútvegi komi á
einhvern hátt niður á Sölumiðstöð-
inni. Sennilega er það vegna þess að
framleiðsla Sölumiðstöðvarhúsanna
dróst saman á síðasta ári, en fram-
leiðsla Sambandsfrystihúsanna hefur
farið vaxandi.
Það hefur verið reynt að tengja
þetta saman á þann hátt að samvinnu-
hreyfingin og þó sérstaklega Sam-
bandið girnist mjög að kaupa fyrirtæki
í sjávarútvegi og sé og hafi verið að
gera það í stórum stíl.
Það er rétt strax í upphafi máls að
leiðrétta þennan misskilning. Þessu er
einmitt þveröfugt farið. Fjölmörg
einkafyrirtæki leitast við að selja Sam-
bandinu og öðrum samvinnufélögum
eignir sínar. Sjaldnast hafa þessi fyrir-
tæki árangur af því erfiði. En nærvera
blaðafulltrúa Sölumiðstöðvarinnar
hér í kvöld gerir mér kleift að ræða
opinskárra um þessi mál en ég hefði
annars getað gert og býð ég hann
velkominn á þennan fund.
Á árinu 1984 kom ekki eitt einasta
fyrirtæki í sjávarútvegi í viðskipti til
16