Samvinnan - 01.08.1985, Page 17
Sambandsins frá öðrum söluaðila.
Samt sem áður varð 18% framleiðslu-
aukning hjá Sambandsfrystihúsunum.
Á sama tíma ætla ég að hafi orðið 10%
samdráttur hjá Sölumiðstöðinni. Það
gerist án þess að Sölumiðstöðin missi
fyrirtæki yfir til Sambandsins.
Ég vænti þess að við munum finna
skýringar á þessu hér í kvöld. En af
framansögðu ætti hverjum manni að
vera augljóst strax að skýringin er
ekki fólgin í ásælni Sambandsins eða
samvinnuhreyfingarinnar. Það er eitt-
hvað annað sem hefur gerst.
• Gengi í kreppu.
Því hefur oft verið haldið fram að
samvinnufélögum gangi yfirleitt betur
en öðrum í kreppu, en einkaframtakið
hafi yfirburði á uppgangstímum. Á
þessu hafa verið fundnar margar
skýringar, fæstar vinsamlegar sam-
vinnuhreyfingunni. Þær skýringar eru
flestar rangar.
Hins vegar er það rétt að minni
hyggju að samvinnufélög eflast í
samanburði við einkafyrirtæki þegar
illa árar. Á þessu er mjög einföld
skýring og er hún ekki að öllu leyti
samvinnufélögum til tekna. Það fer þó
eftir því hvernig á það er litið á
hverjum tíma. Þegar harðnar á daln-
um í einhverri atvinnugrein leitar
einkafjármagnið burt frá þeirri grein.
Það er eðli einkafjármagns að leita
þangað sem það gefur best af sér. Það
er að nokkru leyti jákvætt, þar sem til
lengri tíma litið og litið til heildar-
stærða er nauðsynlegt að flytja stóran
hluta þess fjármagns sem tiltækt kann
að vera þangað sem það gefur mest af
sér.
En stundum veldur þetta því að
tómarúm myndast í atvinnulífi við-
komandi staða og oft er ekki annað
fyrir hendi en að sameinast í sam-
vinnufélagi staðarins um að halda
uppi nauðsynlegu atvinnulífi. Sam-
vinnufélagið fer ekki burt hvað sem
hagkvæmni fjármagnsins líður. En
þetta gerir þá kröfu til samvinnufé-
lagsins að ná hagkvæmni hvað sem
tautar og raular og er oft erfitt að rísa
undir því.
Árið 1984 leituðu sex frystihús eftir
sölu til samvinnufyrirtækja, eða komu
því á framfæri á einhvern hátt að þau
væru til viðræðu um sölu. Aðeins tvö
þessara fyrirtækja voru lykilfyrirtæki
hvort í sínu byggðarlagi, þannig að til
greina gæti komið að samvinnufélög
kæmu til aðstoðar. Kaupfélag Eyfirð-
inga keypti meirihluta í Söltunarfélagi
Dalvíkur hf. að mjög ákveðinni ósk
heimamanna, en átti raunar hluta í
17