Samvinnan - 01.08.1985, Side 31
strönd, til þess að ala barn, verður
trúlega seint upplýst. Þeir sem áhuga
hafa, verða þá að láta hugann reika í
eyður með tilliti til staðreynda.
Þjóðsagan um komu Hjálmars í
þennan heim er í stuttu máli á þá leið,
að Marsibil hafi kvatt dyra á Hallandi
um kvöld og beðist þar gistingar. Hafi
húsráðendur orðið við þeirri bón og
hafi hún lagst þar til svefns og alið
þjóðskáld um nóttina. Daginn eftir
hafi svo vinnukonan Margrét, sem
Hjálmar seinna nefndi Hallands
Möngu og reyndar allskyns ónefnum,
lagt af stað á fund hreppstjóra með
barnið eins og hvern annan óskilagrip.
Komst hún þó ekki lengra en að Neðri
Dálkstöðum, en þar á Sigríður hús-
freyja að hafa vorkennt barninu og
því ákveðið að taka það að sér og ala
það upp, sem hún gerði.
Svo einkennilegt sem það er, hefur
saga þessi verið höfð upp hvarvetna,
þar sem um Hjálmar Jónsson hefur
verið rætt eða ritað og án athuga-
semda. Mér virðist helst að saga þessi
sé frá Hjálmari sjálfum komin, en
hann stóð í ýmsum hörðum slag við
hreppstjóra og önnur yfirvöld um sína
daga. Þótt Hjálmar væri fróður og
trúverðugur um margt, er ekki þar
með sagt að rétt sé að taka sögu þessa
of bókstaflega. Óvíst er og hversu
niikið hann hefur vitað um þetta. Var
hann oft á efri árum með ýmsar
getgátur um uppruna sinn, og taldi sig
m.a. rangfeðraðan. Hvergi kemur þó
fram minnsti grunur um slíkt og ekki
véfengdi Jón Benediktsson orð Marsi-
hilar um þetta. Varla hefur hann
gengist við barninu í greiðaskyni við
einhvern annan, þó stundum gerðu
menn slíkt fyrir húsbændur sína. Víst
er hægt að láta sér koma í hug að
þarna sé skýring á svo skyndilegri
hurtför vinnukonunnar, en hefði hún
þá ekki verið farin fyrr?
Öllu líklegra er, sem Finnur Sig-
mundsson bendir á, að hin mikla
ómegð Miðvíkurhjóna eigi þarna hlut
að máli. Hann álítur einnig að Ragn-
hildur húsfreyja hafi verið að ein-
hverju leyti vangæf til búverka. Allt
eru þetta tilgátur og ber að taka með
varúð.
A Hallandi bjuggu er þetta gerðist
hjónin Jón Bárðarson og Ingunn
Guðmundsdóttir. Voru þau á fertugs-
Hdri er þetta var og barnlaus. Ingunn
Nokkur orð um upphaf
Að vísu er þetta fæðingardeild
og allur viðbúnaður sannfærandi
- samt reynist erfitt að trúa eigin augum
uns hrekkleysið kemur í ljós, maður lifandi
með tíu fingur
með tíu fingur upp til guðs.
Nokkur orð um endi
Öldungurinn reynir að muna samherjana
fer aftur og aftur
í gegnum kortin frá síðustu jólum.
Þeir svara sem lifa og fengu svar.
Hann fær ekki betur séð
en allir hafi skilað sér
allir - og þó gengur aldrei upp
engill nokkur án undirskriftar.
Anton Helgi Jónsson
31