Neisti - 24.09.1975, Page 2
2
neteö
Útgefandi : Fylkingin - Baráttu-
samtök sósialista.
Aösetur: Laugavegur 53 A
Sími : 17513
Abm. : Birna ÞórÖardóttir
Verð í lausasölu kr. 70. -
Askriftargjald kr. 600.-
Leiöari
VERKAFÓLK! HEFJUM UNDIR-
BÚNING SAMNINGANNA STRAX
Nú er komið fram það sem Neisti
sagði fyrr f sumar að siðustu kjara-
samningar væru kauplækkunarsamn-
ingar eins og samningarnir frá í vet-
ur. Verðbólgan hefur étið upp alla
kauphækkunina. Hækkunin um 2100
kr., sem kemur til framkvæmda 1.
okt., mun ekki halda í horfinu gagn-
vart verðbólgunni fram að 1. des. ,
þegar hið fræga visitöluákvæði
samningsins tekur gildi.
öllum árásum auðvaldsins og
ríkisvalds þess hefur ASf-forystan
einungis mætt með innantómum orð-
um. Hækkunin á landbúnaðarvörum
og 12%-gjaldið komu til framkvæmda
án þess að verkalýðshreyfingin
hreyfði legg né lið. ,,Þetta er að-
eins stund milli strfða sem okkur
ber að nota", sagði Guðmundur J.
þegar hann barði í gegn samningana
f Austurbæjarbfói. En hvað hefur
gerst? Ekkert ! Engir fundir hafa
verið haldnir, engin fræðsla hefur
átt sér stað innan verkalýðsfélag-
anna. Ekkert hefur verið gert til
þess að virkja óánægju verkafólks
og efla sterka, samstillta baráttu.
Loks eftir að samningstimabilið er
hálfnað, byrjar ASf-forystan að
hreyfa sig. Og enn á að feta í sömu
sporin. f ályktun þeirri sem mið—
stjórn ASf sendi frá sér 18. sept.
siðastliðinn eru aðildarfélögin hvött
til þess að segja upp samningum fyr-
ir 1. des. Að öðru leyti er ekki haf-
ist handa við undirbúning stéttaátak-
anna eftir áramót, nema hvað ákveð-
ið er að halda kjaramálaráðstefnu f
sfðasta lagi f nóvember. Verkafólki
ætti að vera árangur þeirrar kjara-
málaráðstefnUjSem ASf hélt f mars,
f fersku minni. Eini árangur þeirr-
ar ráðstefnu var, að ASf-forystunni
gafst tækifæri til að kanna ástandið
meðal verkalýðsforingja utan af
landi og tryggja sér stuðning flestra
þeirra. Alyktun sú, sem ráðstefnan
samþykkti, var fagurgali, sem ekki
innihelt eina einustu nákvæmt orð-
aða kröfu. Allt var óljóst og gaf
9-manna nefndinni algjörlega frjáls-
ar hendur.
ASf-forystan hefur aldrei sýnt við-
leitni f átt að lýðræðislegum vinnu-
brögðum og kýs þvf að hafa óbundn-
ar hendur. Sú viðleitni f átt að lýð-
ræðislegum vinnubrögðum, sem
BSRB sýnir með þvf að boða til al-
mennra félagsfunda f sambandi við
næstkomandi kjarasamninga, er
ASf-forystunni framandi.
Verkafólk! Við verðum nú þegar að
hefja undirbúning þeirra átaka sem
framundan eru. Við verðum að
krefjast almennra funda, þar sem
við ræðum ástandið og hvaða kröfur
við ætlum að setja fram. Krefjumst
funda þar sem fulltrúum okkar á
kjaramálaráðstefnunni verði til-
kynnt hvaða kröfur við viljum að
þeir berjist fyrir á ráðstefnunni.
Hindrum að ráðstefnan verði aðeins
hjáróma orðskrúð um samstöðu,
sem ekkert er nema veikluleg sam-
staða forystunnar. gerum ráðstefn-
una að vettvangi til að skapa sam-
stöðu stéttarinnar. Einungis slfk
samstaða getur leitt til sigurs.
HVER HEFUR LIFAÐ
UM EFNI (ALDUR) FRAM ?
"Þjóðin hefur lifað um efni fram". Þessi klassfski frasi dynur nú
yfir landslýð frá ,,ábyrgum" stjórnarherrum auðvaldsins. Tilgangur-
inn með þessum áróðri er einnig klassfskur: Sætta verkalýð við þá
kjaraskerðingarherferð, sem auðvaldið heldur uppi. Hver skilur ekki
hina „einföldu" og „gáfulegu" útlistingu Geirs Hallgrfmssonar á því,
að ef einhver fjölskylda hefur meiri útgjöld en sem svara tekjum henn-
ar, þá safnar hún skuldum, sem hún fyrr eða sfðar verður að greiða?
Þetta er jú sú reynsla, sem allir þekkja. Gildir ekki það sama um
þjóðina og ,, þjóðarbúskapinn" ?
Arið 1974 var viðskiptajöfnuður
óhagstæður um rúmlega 15 milljarði
króna, eða um rúmlega 307o af heild-
arútflutningi vöru og þjónustu það
árið. Þær tölur, sem birtar hafa
verið um þróun vöruskiptajafnaðar
fyrir árið f ár, sýna> að hallinn fyr-
ir mánuðina janúar-júlf 1975 var
meiri en hallinn á sama tfmabili í
fyrra. Bjartsýnir spámenn auðvalds-
ins spá þó að hallinn verði minni fyr-
ir allt árið f ár en hann var f fyrra.
Orsakir
Grundvallarorsök þessa mikla
halla f utanrfkisverslun íslands er
að leita í þróun viðskiptakjaranna,
þe. þróun verðlags á innfluttum vör-
um annars vegar og útfluttum vörum
hins vegar. A rúmu ári hafa við-
skiptakjörin versnað um allt að 30%
Þessi snögga breyting er einstök f
sögu eftirstrfðsáranna. Frá þvf um
1950 hefur þróun viðskiptakjaranna
verið nokkuð jöfn og sfbatnandi.
Það er þessi hagstæða verðlagsþró-
un sem hefur verið ein helsta undir-
staða auðmagnsupphleðslu og þar
með efnahagsþróunarinnar á fslandi
eftir stríð.
Enn er of snemmt að dæma um,
hvort hér er um tfmabundna þróun
að ræða, eða hvort sú hagstæða þró-
un viðskiptakjaranna, sem átt hefur
sér stað undanfarna áratugi hafi nú
náð hápunkti sfnum og langtfmaþró-
unin verði f átt að versnandi við-
skiptakjörum.
Hvort heldur er, þá er eitt víst að
óstöðugleiki þróunarinnar verður
meiri. Við munum sjá á næstunni
stærri skammtímasveiflur f þróun
viðskiptakjaranna, en verið hefur
hingað til. Frá lokum 7. áratugsins
hefur gætt stöðugt meiri óstöðug-
leika í þróun heimsviðskiptanna.
Hér kemur margt til. f fyrsta lagi
hefur aukið alþjóðlegt eðli auðvalds-
framleiðslunnar valdið þvf að hag-
stjórn einstakra ríkisstjórna hefur
sffellt minni áhrif og að hagsveiflur
mismunandi landa auðvaldsheimsins
verða í auknum mæli í takt hver við
aðra.
STÉTTABARATTAN
FRH. AF SÍÐU 8
þvf nauðsynlegt fyrir KSML, að
koma þessu hjartans máli sínu fyrir
á öðrum vettvangi. En einhverra
hluta vegna gleyma þeir að geta
þess, að „PLO og Þjóðfrelsisfylking-
in f Vfetnam kenna okkur að ekkert
ma minnast á sósfalheimsvalda-
stefnuna á vegum samstöðunefnd-
anna". Slfk fyrirmæli hefur Þjóð-
frelsisfylkingin m. a. gefið stuðn-
ingssamtökum sfnum f Svfþjóð og
lagt við alger samstarfsslit ef út-
af væri brugðið. PLO hefur sent
stuðnings samtökum sfnum svipuð
fyrir mæli.
Risaveldakenningin
Að sfðustu er rétt að vfkja að
einu þeirra baráttumála, sem hý-
stalfnistum allra landa liggur mjög
á hjarta, en það er baráttan gegn
Sovétrfkjunum. Þessi barátta er
gjarnan hjúpuð í orðaglamur um
„baráttu gegn risaveldunum". f um-
ræddri grein afhjúpar þó KSML svo
ekki verður um villst raunverulegt
eðli þessarar stefnu. Þar leggja
þeir til, að „andheimsvaldasinnuð
fylking" taki upp baráttu fyrir þvf,
að lögsaga fslenska rfkisins verði
færð úr fjórum mflum frá landi f tvö
hundruð mflur, m. a. til að ,,ráða
algerlega siglingum á þessu svæði. "
Nú vita KSML-arar væntanlega
hverjir hafa eftirlit með siglingum
hér við land, nefnilega auðvalds-
rfkið fslenska og Bandarfkjaher -
Þessir aðilar myndu auðvitað ,,ráða
siglingum á þessu svæði". Það er
sem sé f þágu þessara aðila, sem
hin andheimsvaldasinnaða fylking á
að starfa og þá gegn Sovétrfkjunum.
Fylkingin mun berjast af öllum
kröftum gegn þvf að andheimsvalda-
sinnað starf á fslandi verði leitt á
slíkar villigötur . Hins vegar væri
vert að efna til samstarfs um bar-
áttu fyrir lausn allra þeirra sósfal-
ista, sem eru í sovéskum fangelsum
og stuðning við þau öfl innan Sovét-
rikjanna og utan, sem berjast gegn
veldi skrifræðisins á sósíalískum
grundvelli. Akjósanlegast væri að
slfk samfylking gæti einnig beitt sér
fyrir málstað þeirra byltingarsinn-
uðu marxista, sem eru f fangelsum
Maos á sama tfma og Peking-skrif-
ræðið sleppir fyrrverandi forystu-
mönnum ^agnbyltingarinnar f Kfna
úr haldi í stórhópum. „
Gunngeir
Stéttabaráttan / Stéttasamvinnan
„Stéttabaráttan" hefur gengið
stettasamvinnunni á hönd, og fylgir
þar dyggilega f kjölfar Mfmisbrunns
síns, Peking-skrifræðisins. Sú raun-
verulega og lifandi stéttabarátta,
sem á sér stað f heiminum er horf-
in af sfðum ,,Stéttabaráttunnar".
Mikilvirk áróðursherferð gegn
Sovétríkjunum hefur ýtt f burtu ár-
óðri gegn heimsauðvaldinu, eins og
greinarnar f sfðustu ,,Stéttabaráttu"
um Portúgal og Angólabera órækt
-vitni um.
KSML lýsir yfir þvf að það muni
enga tilburði hafa til sjálfstæðrar
stefnumótunar hvað varðar atburði
utan landhelgi, en hyggst þess í
stað lepja upp stéttasamvinnuhug-
myndafræði smáborgaralegra frels-
ishreyfinga á borð við PLO. T. d.
um framtíðarstefnu KSML skal hér
vitnað f grein úr upplýsingariti PLO
sem birtist í „Stéttabaráttunni" ,
sama tbl. og ofannefndar greinar. :
„Palestfnskir byltingarmenn rétta
samt semaður hönd friðar og bræðra-
lags til gyðinga f fsrael og annars
staðar, svo þeir megi starfa saman
að þvi að byjjgja nýja og blómstrandi
Palestmu: lyðræðislega Palestfnu,
þar sem allar myndir misréttis
verða afnumdar, hvort sem þær eru
trúarlegs eðlis, ,vegna kynþáttar
eða hörundslitar". Hér lætur PLO
- og KSML -,^staðar numið. Ekki er
minnst einu Örði á að afnema þá
mynd misréttis, sem er rót alls
annars, stéttarkúgun auðvaldsins
á verkalýðnum, arðránsskipulag
heimsvaldastefnunnar. Það leikur
vfst enginn vafi á þvf hvert stefnir:
Stéttabaráttan er gleymd ritnefnd
„Stéttabaráttunnár,"f pn f stað þess
er hún orðin boðberi hinnar alþjóð-
legu stettasamvinnustefnu.
Styðjum baráttu MPLA -
fram til sósfalísks Angóla!
Sá'meinum alla an áL e i m s -
valdasinna f 1ýðræðis1egr i
fylkingu !
Verjum Sovétríkin gegn á r-
ásum heimsval^asinna !
Styðjum sovéska, sósfal-
íska b y 11 i ng á r m e n n f bar-
áttu þeirra gegn skrifræðinu!
f öðru lagi merkir fall dollarans
sem alþjóðlegs gjaldeyris og til—
koma sterkra heimsvaldasinnaðra
rfkja (japan, EBE), sem ógna þvf
alræðisvaldi, sem Bandaríkin hafa
haft allt frá stríðslokum, að öll
millirfkjaverslun verður óöruggari
og þar með sveiflukenndari.
f þriðja lagi veldur skipulags-
kreppa (strúktúrkreppa - hér er átt
við þau vandamál, sem auðvaldsskip-
ulagið á við að strfða f sambandi
við að „innbyrða" þá tækni, sem er
á boðstólum , t.d. sjálfvirknina,og
yfir í það vandamál, sem skapast af
hagstjórn auðvaldsins, sem viðheld-
ur Sarðbærum iðngreinum og orsakar
þannig fall f gróðahlutfallinu) auð-
valdsins þvf, að hagstjórn sem tek-
ur mið af fullri atvinnu krefst stöð-
ugt stærri skammta af verðbólgu-
eftirspurn. Þessi þróun hefur vald-
ið stöðugt vaxandi verðbólgu f öllum
löndum auðvaldsins. Til þess að
bæta samkeppnisstöðu sfna á heims-
markaðinum, beita síðan auðvalds-
löndin f auknum mæli gengislækkun-
um, sem enn eykur á óstöðugleikann
í milliríkjaviðskiptum. öll þessi
hitasóttareinkenni sfðkapftalismans
ber að sama brunni: skipulagsleysi
framleiðslunnar eykst. Fjármagnið
leitar f auknum mæli f átt til ófram-
leiðinna greina. Verðbólgan veldur
sókn fjármagnsins f alls kyns fast-
eignir og brask með þær. óstöðug-
leikinn á gjaldeyrismörkuðunum
veldur braski með gjaldeyri, sem
eykur enn óstöðugleikann á þessum
mörkuðum. Hinar stóru verðsveifl-
ur á einstaka vörum eða vöruflokk-
um - t. d. hækkun á verði flestra
hráefna á árunum 1972-73 - valda
auknu braski, sem vitaskuld eykur
á verðsveiflurnar. Arðbærustu fjár-
festingarnar eru að kaupa-geyma- og-
selja með gróðá, án þess að skapa
nokkuð nýtt.
Skipulagsleysi íslenska auðvaldsins
fslenska auðvaldsskipulagið hefur
ekki farið varhluta af þessum hita-
sóttareinkennum. Verðbólgan hefur
aukist stórlega og geypilegum verð-
mætum hefur verið sóað.
Við slfkar verðbólguaðstæður eins
og þær sem nú ráða rfkjum her á
landi, verða allar viðmiðanir varð-
andi aukna hagræðingu f framleiðslu
og rekstri harla ótraustar. Það sem
skiptir mestu máli er að fleyta sé^
á sem heppilegastan hátt á milli
verðhækkananna, flýta sér að fjár-
festa f einhverju Mföstu" og að fjár-
magna reksturinn og fjárfe stingar
með lánum ef kostur er.
Þessar aðstæður hafa síðan valdið
þeirri offjárfestingu, sem gætir á
flestum sviðum fslenska auðvalds-
skipulagsins. Þessi óhófseyðsla fs-
lenska auðvaldsins nemur milljörð-
um króna.
Þróun tekjuskiptingar
Samkvæmt þeim spam, sem efna-
hagsspámenn rfkisstjórnarinnar
hafa gert er áætlað að þjóðartekjurn-
ar árið 1975 verði um 5, 6% minni
en þær voru 1973: Samkvæmt sömu
heimildum var raungildi kauptaxta i
um 9% lægra 1. maf f ár en að
meðaltali arið 1973. Sú minnkun
atvinnu sem átt hefur sér stað,
veldur þvf að raungildi tekna hefur
minnkað enn meir. Það et þvf ljóst
að hlutur verkafólks f ,,þjóðarkök-
unni" hefur minnkað miðað við árið
1973, sem þó var auðvaldinu mj.þg
hagstætt.
Þessi aukning gróðahs skiptist viss-
ulega mjög mismunandi. Það má
segja að ójöfn þróun sé eitt af sér-
kennum fslenska auðvaldsskipulags-
ins. Þetta á einkum við f dag.
FRH.Á SÍÐU 7