Neisti - 24.09.1975, Qupperneq 5

Neisti - 24.09.1975, Qupperneq 5
5 Malflutningur maóista Ef elta ætti ólar við allar þær vitleysur og rangtúlkanir, sem maóist- ar senda frá sér,yrði það vist ærið verkefni fyrir Neista. Við munum þó taka hér fyrir grein 1 Rauðliðanum, fræðilegu málgagni EIK(m-l), l.hefti, sem heitir "Fagfélagsstefna og byltingarhyggja", en hún er á margan hátt dæmigerð fyrir málflutning maóismans. Hártoganataktikin Grein þessari er beint gegn Fylk- ingunni, KSML og KSML(b). Hún hefst á sundurslitnum tilvitnunum úr málgögnum þessara samtaka. Hvað tilvitnanir í Fylkinguna áhrærir standa þær reyndar fyllilega undir sér, þótt sundurslitnar séu. Reyndar er ein þeirra ekki frá Fylkingunni komin upphaflega, heldur samþykkt 4. þings Komintern um baráttuaðferð. 1 þess- um tilvitnuðu setningum eru Fylking- arfélagar að velta fyrir sér hvernig hægt sé að útvikka dægurbaráttuna, tengja hana byltingarbaráttunni. Og það slær þá Eikara. Alyktun þeirra af orðum Fylkingar- innar er: "Af þvi að byltingarmenn berjast fyrst og fremst fyrir bylting- unni eru það svik við byltinguna að skipuleggja baráttu, þar sem sósial- isminn og byltingin eru ekki nefnd, heldur bætt kjör fólks. " Það eru svik við verkalýðinn að gera honum ekki ljóst að eina lausnin er fólgin f sós- íalismanum, og sýna fram á hversu ófullnægjandi dægurkröfurnar eru. Vandinn er hvernig hægt er að tengja byltingarbaráttuna dægurbar- áttunni. Og við þennan vanda er Fylk- ingin að glima meðan EIK(ml) stend- ur hjá og hrópar ,,slagorðaglamrar- ar". „Slagorðaglamrarar", „einangr- unarstefna" hrópar EIK(ml). Já, vissulega rekur Fylkingin einangrun- arstefnu, ef það er einangrun- arstefna þegar fámennur hópur reynir að þroska sig fræðilega og miðla öðrum af árangri þess starfs, í stað þess að hlaupa eins og kálfur a vordegi inni raðir verkalýðsins, leika frelsandi sameiningarafl með stefnu upp á vasann, sem með pat- entlausnum er látin líta út fyrir að vera sjálfri sér samkvæm. Já, Fylkingin rekur einangrunarstefnu, ef það er einangrunarstefna að setja fram það eina samfylkingarform sem getur fylkt saman mönnum með ýmsar ólikar skoðanir, - ef það er einangrunar stefna F ylkingarinn- a r þegar EIK(ml) og KSML reyna visvitandi að einangra Fylkinguna, eins og gerðist fyrir 1. maí eða þeg- ar EIK(ml) lýsti yfir að með Fylk- ingunni verði ekki starfað framar. Og greinin heldur áfram I Eftir nokkrar tilvitnanir f Lenín um fagfélagsstefnu koma fá- ein dæmi um starf - eða starfsleysi - þessara þriggja ,,vinstrikommún- ista"-samtaka. Það er auðvitað auðvelt að benda á víxlspor sem þessi samtök hafa stigið, og enn auðveldara að benda á takmarkað starf meðal verkalýðsins. Félagar okkar í EIK(ml) virðast halda að viS getum sinnt fullnægjandi starfi á öll- um vigstöðvum í einu, við þökkum þeim traustið, en því miður....... r þessum kafla er léleg starf- semi Rauðrar verkalýðseiningar gerð aS umtalsefni. A aSalfundi RauSrar verkalýðseiningar f vor rifjuðu félagar úr EIK(ml) upp tak- markanir í starfi Rauðrar verka- lýðseiningar - (,,þetta var ekki gert og þetta var ekki gert") - sem allir þekktu. Lengra náði þeirra mál- flutningur ekki. Engar tillögur um úrbætur. Skömmu seinna sögðu þeir sig úr Rauðri verkalýðseiningu. Það er líklega dæmi um einangrun- arstefnu Fylkingarinnar ! f þess- ari grein er málflutningnum svipað farið. Eina orsökin fyrir óförum Rauðrar verkalýSseiningar sem bent er á, er að miðaö hafi veriö við stéttvíst verkafólk, ,,sem næst sósfaliskt", - það er túlkun EIK(ml). Annars er orsökin náttúrlega sú að trotskfistar áttu hlut að máli. Um það þarf ekki frekar að ræða. Inntak þessarar greinar er f raun fordæming á viðleitni bylting- arsinnaðra marxista til að veita fjöldanum leiðsögn. ,,Vinstrikomm- únistar .... bera ekki hag .... vinn- andi alþýðu fyrir brjósti...(°g) telja sig eiga aS hafa óskorað vit fyrir fjöldanuxn. . . .", osfrv. „Oþreyja þeirra (þe. „vinstri- kommúnista") eftir byltingunni skeytir ekki um krókótta leiö fjöld- ans að þvf marki að hann tekur öll völd f eigin hendur. " Það er ekki af óþreyju heldur nauðsyn sem bylt- ingarsinnaðir marxistar reyna að gera krókótta leið fjöldans beinni. Við verðum ma. að komast hjá krókum eins og fjöldamorðunum á kínverskum kommúnistum f Shang- hai 1927 og þeim krók sem tekinn var f Chile fyrir tveimur árum, sem og öðrum minni. Þess vegna leggjum við áherslu á fræðilega skólun og skipuleggjum okkur f flokki, vinnum okkur stöðu sem framvörður, að viS getum veitt fjöldanum leiSsögn, krækt fram hjá keldum, tekið af óþarfa króka. Hártogunum lýkur Undir lok greinarinnar lýkur loks hártogununum en sett er fram stefna nraarx-lenfnista". ÁróSri og starfi er tvfskipt og þar meS tekið tillit til ólfkra stiga stéttarvitundarinnar. Hluti áróðursins höfðar fyrst og fre mst til lftils hluta vinnandi al- þýðu. Hinn hlutinn er vfðtækari, höfðar meir til fjöldans. ,,Það er fyrst o g fremst þessi hluti áróöursins og fjöldastarfiö sem tengir sósfalfskar hugmyndir við fjöldann, gerir þær raunverulegar og nær að tengja framvörSinn viS fjöldann. " En hvernig? Ein af tilvitnunum f Fylkingarfél- aga f upphafi greinarirxnar hljóðar svo: ,,Umbyltingar kröfurnar verða að tengja dægurbaráttuna baráttunni fyrir sósfalismanum. Þær verða að leitast við að hefja baráttu verkalýðsins á hærra stig. " Þetta er glæpurinn . AS tengja dægurbaráttuna byltingarbaráttunni. AS sýna verkalýðnum fram á nauS- syn sósfalfskrar baráttu, sýna fram á takmarkanir dægurkrafnanna - um leið og við berjumst fyr^ir þeim- að gera valkostinn, sósfalismann, raunverulegri meS þvf að setja fram umbyltingarkröfur sem ná út fyrir möguleika auðvalds- þjóðfélagsins og tengja þær hinum takmörkuðu dægurkröfum, að „tengja sósfalfskar hug- myndir við fjöldann". „Slagorðaglamrarar" segja Eik- arar. Undanfarið hefur það verið höfuðverkefni Fylkingarfélaga að skóla sig pólitískt og setja fram stefnu f stað slagorðaglamurs. Þannig er stefnt að þvf á næstunni í Neista aS utskyra betur hugmyndir— nar um umbyltingarkröfur og um- byltingarstefnuskrána. Ef félagar okkar f EIK(ml) verða ekki of önn- um kafnir við að rægja Fylkinguna, hvetjum við þá - og sömuleiðis maó- íska felaga okkar f ,, vinstrikommún- ismanum" - til að kynna sér þessar hugmyndir. Bangladesh •• Hallarbylting Fyrir þremur árum sneri Mujibur Rahman frá Pakistan til Dakka og var tekið sem hetju. Þrjár milljón- ir manna stóðu með vegunum og veifuðu og að kröfu alþýðunnar var hann útnefndur „Bangabandhu", - vinur Bengal. En fyrir um það bil mánuði, 15. ágúst, rændi hluti hersins f Bangladesh völdum af Rahman og tók hann sjálfan af lffi og drap einnig alla fjölskyldu hans. ViSbrögS við þessu af hálfu almenn- ings f landinu voru lítil sem engin. Ekki einu sinni mótmælaaSgerSir eða verkfall. Slfkt vekur vissulega spurningar. Fyrrum viðskiptaráðherra f stjórn Rahmans, Khondakar Mushtak Ahm- ed var útnefndur forseti eftir að hann hafði svarið hernum hollustu sfna. Hinn nýi forseti lýsti þvf yfir að markmið stjórnarinnar væri að glfma við eymdina f landinu og einnig „spillingu, frændsemisklfku- skap og tilraunir til að safna völd- um á eina hönd. " Þrátt fyrir þessa yfirlýsingu boðar hvorki samsetning stjórnarinnar né fyrstu skref hennar neinar horfur á umtalsveröri breyt- ingu. Verkefnin sem Ráhman og Awami- Bandalagið stóðu frammi fyr'r eftir að Bangladesh varð sjálfs^ætt voru ekki auðveld viðfangs. Með 80 milljónum fbúa og mikla vanþró- un (90% búa til sveita) var ætlunin að byggja upp kapftalfskt rfki. En þrátt fyrir hjálp frá indversku stjórninni og aðstoð frá Sovétrfkj- unum, gat Awami-Bandalagið, flokk- ur Rahmans, ekki tekist á viS hina félagslegu kreppu. Þetta er alls ekki undarlegt, þar sem lausn vandamálanna sem fjöld- inn f Bengal á við aS strfða krefst sósíalfskrar byltingar. Hinn geysi- legi skortur hafði og hefur f för með sér, undir kapitalfskum stjórn- arháttum, mikla spillingu, mútu- þægni og svartamarkaösbrask. Má benda á Indland f þessu sambandi (sjá grein í sfðasta Neista). Það var ekki nóg með það að stjórn Ralxmans væri sökuð um spill- ingu, heldur einnig hann sjálfur. Hann hefur hyglað bræSrum sínum, sonum og frændum; bæði efnahags- lega og pólitfskt. f desember 19?4 lýsti Rahman yfir neyðarástandi f landinu. Hann notaði sérlegt vald, sem með þessu fékkst til þess ma. að hreinsa út úr nokkrum verstu fátækrahverfunum f Dakka. En f stað þess að fara f önnur hfbýli, fóru þúsundir í flóttamannabuðirnar. f janúar 1975 útnefndi Rahman sig sem forseta í stað forsætisráðherra og kom á einsflokksstjórn Awami- Bandalagsins. Sfðar þjóðnýtti hann blaðaútgáfuna, sem forsmekk af því að leggja niður útgáfu sem hafði gagnrýnt stjórn hans. Hermennirnir f hinum unga her Bangladesh frömdu valdarán sitt und- ir þvf kjörorði ,,að þeir hefSu verið að berjast f frelsisstrfðinu til þess að frelsa fólkið en ekki til þess að skepnurnar f A wami-Bandalaginu yrðu rfkari." En offíserarnir hafa enga stefnuskrá, nema þá helst^and- snuið viðhorf til Indlands. Og nýi forsætisráðherrann er vissulega hlið' hollur Bandarfkjastjórn. Herinn mun ekki geta komið f veg fyrir spillinguna, sem er þeirra markmið að eigin sögn. Spillingin á sér djúpar rætur f hinni félagslegu kreppu og verður ekki upprætt nema samtfmis henni. Það eru engar lfk- ur á að herinn í Bengal sé fær um það. Hinir nýju leiðtogar standa frammi fyrir sömu vandamálum og Rahman a sfnum tfma. Tímabundið hafa þeir frið þan^að til vanmáttur þeirra kemur f ljos við að fást við efnahagslega ringulreið samfara hungursneyð á stórum svæðum til sveita. Jakob P.

x

Neisti

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neisti
https://timarit.is/publication/343

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.