Neisti - 25.03.1982, Side 8

Neisti - 25.03.1982, Side 8
Neisti 2. tbl. 20. árg. 1982, bls. 8 Yfirlýsing fulltrúaráðs Fjórða Alþjóðasambandsins: Barátta launafólks gegn hervæðingu og niðurskurði - fyrir friði og sósíalisma. Síðasti hluti. Fyrsti hluti Annar hluti birtist í 12. birtist i 1. tbl tbl 1981. 1982. áWi*W Á sama hátt byggist staðsetning vopna eins og SS 20 eldflauganna, sem miðað er á Kina og Evrópu og geta ekki náð til Bandaríkjanna, ekki á þvi að verið sé að verja Sovétrikin. Þær eru hins vegar ágætt yfirskin fyrir heimsvaldasinna til að réttlæta vígbúnaðarkapphlaup sitt i augum almennings á Vesturlöndum. Sannleikurinn er sá að skrifræðið ótt- ast fyrst og fremst andkapitalískar og byltingarsinnaðar fjöldaaðgerðir og kýs heldur að semja við heimsvaldasinna á ráðstefnum eins og i SALT-viðræð- unum. Skrifræðið heldur uppi landvörnum, sem eru einstaklega kostnaðarsamar fyrir almenning í Sovétrikjunum og eru þegar allt kemur til alls ekki árangurs- ríkar fyrir vamir verkalýðsrikjanna. Að þessu leyti auðveldar það samfelldan þrýsting heimsvaldastefnunnar á sovéskt efnahagslif. Stefna skrifræði- sins auðveldar og kallar jafnvel fram þróun hlutleysisstrauma, sem bræða saman eigin kjarnorkuvarnarstefnu við kjamorkuvamarstefnu heimsvalda- sinna. En það vill frekar slikt heldur en byltingasinnaðar fjöldahreyfingar, sem ógna ríkjandi heimsástandi og þar með jafnvel eigin tilvem skrifræðisins. Draumóra- og sjálfsmorðsskoðanir, sem fela í sér að «sósíalisku» löndin verði að geta unnið, komi til kjarnorku- styrjaldar em af sömu rót mnnar. Það er þvert á móti nauðsynlegt að gera heimsvaldasinnum ókleift að nota risavaxin kjarorkuvopnavígbúnað sinn með þvi að gripa inn í á tvo vegu: Með þvi að örva fjöldahreyfingu verkalýðsins í heimsvaldalöndunum gegn borgara- stéttinni, og með þvi að benda á leiðir til sjálfsvarnar verkalýðsins og berjast gegn stríðsæsingu, en þessar leiðir verður að ræða og kynna. Árangursrik stefna til vamar verkalýðsríkjum er ekki til án þjóðbundinna og alþjóðlegra fjöldaaðgerða. Eðli skrifræðisins sjálfs kemur i veg fyrir að það geti fram- kvæmt svo byltingarsinnaða stefnu vegna þess að slíkt hlyti að grafa undan valdagrundvelli þess. I þeim skilningi er hemaðarstefna skrifræðisins og áróður þess hindmn i baráttunni fyrir afvopnun heimsvaldasinna. Hemaðarstefna skrifræðisins tak- markast þó ekki við að taka þátt í vig- búnaðarkapphlaupinu við heimsvalda- sinna. Hún hefur á sér aðra hlið, sem er opinskátt gagnbyltingarsinnuð og felst i að viðhalda skrifræðislegu alræði i «hinum sósíalisku herbúðum». Auk- inn vígbúnaður Sovétrikjanna, sérstak- lega á hefðbundnum vopnum landhers og flota er ekki i samræmi við þarfir þeirra til vama gegn heimsvaldasinn- um. Þessum vopnum er beinlinis stefnt gegn þróun í átt til pólitiskrar byltingar i Sovétrikjunum og öðrum verkalýðs- rikjum í Austur-Evrópu. Þetta er enn- fremur gmndvöllur kenningar Brésnefs um «takmörkuð yfirráð» en hún lýsir tengslum Sovétríkjanna og hinna Var- sj árbandalagslandanna. Hemaðarstefna Sovétrilq'anna ein- kennist líka af algerri leynd en það auð- veldar heimsvaldasinnum mjög leikinn við að stýra skoðanamyndun almenn- ings. Þessi leyndarhjúpsstefna er fá- ránleg nú á timum þegar tækniþróun við eftirlit, njósnir og athuganir með gervihnöttum er komin svo langt á veg að forystumenn heimsvaldasinna vita næstum nákvæmlega hver er eigindar- Jegur og megindalegur hemaðarmáttur Sovétrikjanna. Nýjasta dæmið þessu til sönnunar em «afhjúpanir» Pentagon á þróuninni i vopnaframleiðslu Sovét- rikjanna. Almenningin- á Vesturlöndum og í Austur-Evrópu fær hins vegar enga vitneskju um þessi mál og stendur því vamarlaus gagnvart hernaðaráróðr- inum. Afleiðingin er sú að í hvert sinn, sem skrifræðið verður þess vart að heimsvaldasinnar láta sem hernaðar- máttur þess sé meiri en hann raunvem- lega er gætir það þess vandlega að af- neita sliku ekki til að tapa ekki andlit- inu. Raunverulegur valkostur við þessa stefnu væri að fara á engan hátt í felur með raunvemlegan herstyrk með það fyrir augum að vinna traust almenn- ings og þrengja þannig að heimsvalda- sinnum jafnhliða djarflegum tillögum um alþjóðlegt eftirlit. Slík stefna felur i sér að öllum leyniviðræðum yrði hafnað en stefnt að byltingarsinnaðri afvopnim heimsvaldastefnunnar. Skrifræðið mun aldrei taka upp slika stefnu. BARÁTTA FYRIR FRIÐI OG SÓSÍALISMA. Nýleg þróun heimsbyltingarinnar hefur valdið þvi að auðveldara er nú en fyrr að skírskota til fjöldans að beijast fyrir friði og sósialisma. Þetta slagorð sem breiðir andkapítaliskir straumar hafa tekið upp vegna almennrar her- væðingarsóknar heimsvaldasinna getur fengið mjög alþjóðlega og öreigasinn- aða þýðingu. Heimsvaldastefnan tákn- ar i raun að fjölda mannslifa er fórnað í styrjöldum, að mannkyninu er ógnað með gereyðingu kjamorkustriðs. Þess vegna er ekki hægt að tryggja frið með afvopnun nema auðvaldið sé afnumið í helstu iðnvæðingarlöndum, sósialískt rikjasamband á heimsmælikvarða verði stofnað og framleiðsla stórvirkra vopna bönnuð. Alþjóðleg stefna skrifræðisins er þrándur í götunni að þessu markmiði vegna þess að hlutlægt styður það til- raunir heimsvaldastefnunnar við að efla grundvöll sinn. En skrifræðið getur ekki lengur ( eins og á sjötta áratug- num) beint friðarhreyfingunni i vissa farvegi og afvegaleitt hana. Þessi frið- arhreyfing fer stöðugt vaxandi um alla Vestur-Evrópu og mun einnig eflast i Bandarikjunum á næstunni. Fjöldabarátta friðarhreyfingarinnar er farin að blossa upp næstum hvar sem er og tekur á sig margvíslegar myndir eftir þvi hvaða tilefni gefast í hverju landi. Byltingaröfl sem taka þátt í þessari baráttu verða að stefna að einu markmiði, sem er grundvallandi núna innan verkalýðshreyfingarinnar: spoma við stríðsundirbúningi heimsvalda- sinna; stöðva glæpsamlega sókn auð- valdsins í styijaldarátt með því að veikja það á afgerandi hátt og afnema það siðan. Fjöldabaráttan er mjög mikilvæg. Yfirleitt er ungt fólk þar í fremstu röð. Baráttan skerpir skoðana- mismun innan hefðbundnu verkalýðs- hreyfingarinnar. Hann var mikill fyrir og á eftir að aukast. Margar ástæður réttlæta stuðning og þátttöku Fjórða Alþjóðasambandsins i þessari hreyf- ingu. Þessi fjöldabarátta sameinar pólitiskar stefnur af ólikasta tæi. Mikilvægt er að draga fram sameiginlega og alþjóðlega lykilþætti í hreyfingunni, þ.e. baráttu gegn heimsvaldastefnunni og kjara- skerðingar- og endurhervæðingastefnu hennar. Aðeins á þann hátt er unnt að leggja pólitískan gmndvöll að sókn friðarhreyfingarinnar i átt til alþjóðleg- rar samhæfingar eða a.m.k. samhæf- ingar um alla Vestur-Evrópu. Ástandið er mjög mismunandi eftir löndum hvað varðar hlutverk hernaðar- vélar hvers lands í alþjóðlegu kerfi heimsvaldasinna. Munurinn er jafnvel enn meiri á hefðum og vitund almenn- ings með tilliti til styrjalda en þar er þróunin mjög mislangt á veg komin. í Vestur-Þýskalandi og flestum Norð- ur- Evropulöndum eru hlutleysissjónar- mið og tvíhhða afvopnun ráðandi innan fjöldahreyfingarinnar. í Frakklandi og Italíu er ástandið flóknara vegna þess hlutverks og hefðar, sem kommúnista- flokkarinir hafa leildð innan friðar- hreyfingarinnar. í Frakklandi em fjöldaaðgerðirnar ekki enn þá orðnar eins útbreiddar og i öðrum Evrópu- löndum. Það er vandamál því þetta land er næstöflugasta herveldi Atlants- haf sbandalagsins. I Norður-Ameriku hefur komið fram talsverð hreyfing gegn íhlutun Banda- rilrjanna i E1 Salvador. Sú hreyfing og fjöldabaráttan gegn herskráningu (undirbúningur að almennri herskyldu ) gefa til kynna helstu farvegina, sem endurvakin friðarhreyfing mun renna eftir þar. Hin mikla breidd friðarhreyfingarinnar þvingar kommúnistaflokkana og krata- flokkana til að móta póitiska afstöðu til vandamála, sem endurhervæðingar- kapphlaupið hefur sett á dagskrá. Þó afstaða þeirra mótist yfirleitt út frá al- mennri tilhnegingu flokkanna til að eyða öllu andkapitalisku hreifiafli fjöldaaðgerða þá er stefna þeirra mis- jöfn eftir löndum. Frönsku kratarnir eru enn sem fyrr rigbundnir við að efla kjarnorkuvarnakerfi Frakklands. Itölsku kratamir eru sá straumur innan verkalýðshreyfingarinnar, sem hefur minnst við það að athuga að nýju Per- shingeldflaugunum verði komið fyrir í Evrópu. Þýskikrataflokkurinn, sá belg- íski, hollenski og hægri armur breska Verkamannaflokksins reyna að berjast gegn þiýstingi í átt til einhliða afvopn- unar (þó sú afstaða njóti meirihluta- fylgis innan Verkamannaflokksins) með því að krefjast tvíhliða minnkunar á kjamorkuvopnavígbúnaði Bandarikj- anna og Sovétrikjanna í Evrópu. Kommúnistaflokkamir reyna yfirleitt að beina fjöldaaðgerðum gegn auknum vígbúnaði. Þeir em miklu hógværari þegar talið berst að einhliða afvopnun eða nauðsyninni á að afvopna heims- valdastefnuna með það fyrir augum að afnema styrjaldarógnina en þetta er í samræmi við stefnu þeirra varðandi «friðsamlega sambúð». Byltingaröflin og þá sérstaklega deild- ir Fjórða Alþjóðasambandsins verða að gera allt, sem i þeirra valdi stendur til að sýna fram á nauðsyn þess að sam- hæfa fjöldaaðgerðimar alþjóðlega, en setja um leið fram viðeigandi kröfur og gera bandalög, sem henta aðstæðum (hefðum, styrkleika hreyfingarinnar, vitundarstigi o.s.frv.) í hverju landi. Fjórða Alþjóðasambandið hvetur verka- lýð, æskulýð og allan almenning, sér- staklega í Vestur-Evrópu og Norður- Ameríku, til fjöldaaðgerða gegn hem- aðarhyggju, heimsvaldastefnu og kjara- skerðingum og fyrir friði og sósialisma. a) Fjórða Alþjóðasambandið er andvígt framleiðslu og notkun nifteindasprengj- unnar. Það vill að þetta vopn verði algerlega bannað en tilvist þess gefur möguleika á að kjarnorkuvopnum verið beitt gegn fólki, sem berst gegn heims- valdastefnunni. Það berst gegn ákvörð- unum NATO um að koma Cruise og Pershing II eldflaugunum fyrir í Evr- ópu. Það er hlynnt einhliða kjamorku- afvopnun með því móti að hætt verði að framleiða kjanorkuvopn, vetnissprengj- ur og nifteindasprengjur en birgðir, sem til em af slíkum vopnum verði eyði- lagðar. b) Fjórða Alþjóðasambandið berst gegn NATO vegna þess að bandalagið er sett til höfuðs hagsmunum verkalýðs stéttarinnar. Það berst gegn hvers kyns úvíkkun á þessu afturhaldsbandalagi. Sérstaklega beinist samstaða okkar að baráttu verkamanna og bænda á Spáni, sem eru andvígir inngöngu landsins i NATO. Deildir Fjórða Alþjóðasamband- sins benda hver i sinu landi á, hve nauðsynlegt er að landið gangi úr NATO. Þær berjast innan þessa ramma fyrir þvi að allar «sóknarstöðv- ar» bandarísku heimsvaldastefnunnsr i Evrópu og nágrenni, sérstaklega við Miðjarðarhafið, verði lagðar niður. c) Fjórða Alþjóðasambandið hvetur til að öll fjárframlög til hermála verði felld niður þvi þau em gífurleg sóun á efna- legum verðmætum mannkynsins sér- staklega ef litið er til þess að þrir fjórðu hlutar íbúa jarðarinnar fá ekki fullnægt frumþörfum sínum og kjaraskerðingar- stefnu er beitt gegn verkafólki í heims- valdalöndunum. Það er hlynnt stór- felldum og umsvifalausum niðurskurði hernaðarfjárfestinga og vill að fullnægt verði félagslegum þörfum verkafólks í iðnvæddu rikjunum og aðstoð við þróunarlöndin aukin verulega. Atvinnu en ekki sprengjur! Til félagslegra málefna en ekki hemaðarlegra. d) Fj'órða Alþjóðasambandið er and- vigt þvi að efnahagslifið verið almennt sveigt til að efla vígbúnað, að vísinda- rannsóknir þjóni markmiðum vigbún- aðar. Það berst gegn aukinni vopna>- framleiðslu og vopnasölu. Það styður þjóðnýtingu hergagnaiðnaðar án þess að skaðabætur komi fyrir til eigenda. Slikur iðnaður verði settur undir eftirlit verkafólks, sem vinnur við hann og framleiðslan endurskipulögð innan lýð- ræðislega undirbúinnar áætlunar þar sem félagslegar þarfir fjöldans ákvarða hvað verður framleitt en ekki hið gagn- stæða. e) Fjórða Alþjóðasambandið hvetur til baráttu gegn hvers kyns undirbúningi borgarastyrjaldar. Það mótmælir laga- setningu, sem nota skal í «sérstöku kreppuástandi» og varar við því að borgaralegur herafli býr sig undir að viðhalda kerfi heimsvaldasinna i Evr- ópu. Það hafnar hervæðingu almenn- ings og styður alþýðu írlands og Tyrk- lands, sem eru fórnarlömb einstaklega < harðskeyttrar kúgunar af hálfu NATO- herja. g) Fjórða Alþjóðasambandið styður baráttu atvinnu- og herskylduhermanna fyrir fullum lýðréttindum (rétti til upp- lýsinga, tjáningafrelsi og rétti til skipu- lagningar...) í herbúðunum. Hermenn verða að öðlast réttindi tilað skipuleggja stéttarfélög sín algerlega óháð hernað- aryfirvöldum. Það berst gegn þvi að komið verði á atvinnuheijum, sem betur yrðu til þess fallnir að grípa inn i baráttu verkafólks, fremja verkfaUsbrot o.s.frv. Það berst fyrir styttingu á herskyldu og rétti allra manna til herþjálfunar án herbúðavistar. Það viðurkennir lýð- ræðisleg réttindi þeirra, sem neita her- þjónustu af samviskuástæðum.

x

Neisti

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neisti
https://timarit.is/publication/343

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.