Neisti - 25.03.1982, Síða 12

Neisti - 25.03.1982, Síða 12
Áskriftargjald fyrri hluta 1982: - venjuleg áskrift kr. 120 - stuðningsáskrift kr. 200 lausasala kr. 15 / Hvað kemur íslendingum E1 Salvador við? Ekki kemur það við bjórinn á okkur þó drepnir seu þar tugir karla kvenna og barna á hverjum degi, ekki ber- um við þar neina ábyrgð og ekki getum við breytt neinu þar um. Eða hvað? Islensk stjórnvöld hafa löngum hreykt sér af þvi að vera ábyrgir aðilar í Nató. Þegar til sam- steypustjórna hefur komið á íslandi með þátttöku Alþ.bl. þá hafa hernáms- og Nató flokkamir sýnt þá ábyrgðartilfinningu að halda þeim frá ráðherrastólunum er snerta herinn. Ekki er hægt að láta óábyrga «kommúnista» ráða því hvort herinn verít eða fari, slikt ábyrgðarleysi myndi veikja oss Nató-þjóðir. Og her- námsflo'kkamir hafa sýnt þá ábyrgðartilfinningu að veita hinum bandaríska verndara vor- um alla þá aðstöðu og velvilja sem hann hefur farið fram á. Vilji hann Helguvík fá þeir hana, vildu þeir Snæfellsnes væmm vér íslendingar að sönnu reiðu- búnir þvi holdið er veikt og vér emm í ofanálag fullir ábyrgðar. Aldrei hefur sú fregn borist frá Brussel að íslenskir Natódindlar hafi þar á vettvangi Nató-hauka andmælt nokkurri tillögu sem þar hefur verið borin fram. Allt fyrir ábyrgðina enda em þeir nú ábyrgir fýrir ýmsum óhæfuverk- um víða um heim í nafni Nató og Natóaðildar hvort sem þeim líkar betur eða verr. íslenskir Nató-sinnar voru sið- ferðislega og pólitiskt ábyrgir fyrir aðgerðum bandamanna og verndara, Bandarikjanna, i Viet- nam á sínum tíma og þess vegna eru þeir ábyrgir fyrir gerðum þeirra í E1 Salvador í dag. BANDARIKJAMENN OG EL SALVADOR Bandarikjamenn hafa löngum rekið þóttafulla og einræðis- kennda utanrikispólitík. Hafi þeir talið ímynduðum eða raun- vemlegum hagsmunum sinum ógnað hafa þeir áskilið sér rétt til að fara með lif og rétt þjóða að vild sinni. Sigild átylla til að- gerða af þeirra hálfu hefur verið að kenna andstæðinginn við einhvern óskilgreindan «komm- únisma» og bingó! - heims- byggðin, gegnsýrð af áratuga kaldastiðs áróðri, gleypir agnið og skilur mætavel «nauðsyn auk- inna umsvifa Bandarikjahers til heftingar á útbreiðslu heims- kommúnismans». Þannig gekk það t.d. í Guatemala 1954 og á þessum áróðri fóm Bandaríkja- menn í stríð i Vietnam og drógu tugi þjóða þangað með sér. Og þetta bragðætlaiReagan,Haig og Kompaní að nota aftur núna, og hefur því miður orðið alltof vel ágengt. En mun þeim takast þetta ráðabrugg sitt? Mun þeim takast að halda í sessi morðingja- stjóm ábyrgri fyrir tugþúsundum morða á konum, körlum og börn- um af því að það er hugmynda- fræðileg stefna hjá núverandi stjórnvöldum í U.S.A. að «hvenær sem valið stendur á milli mildrar kúguparstjórnar (mildly repressive regime) og vinstri afla, að þá stöndum við 100% viðbakið á kugunarstjórn- inni»(-Jeane Kirkpatrick sendi- herra U.S.A. hjá Sameinuðu þjóðunum.) Komast þeir upp með að láta myrða, pynta, nauðga alþýðu E1 Salvador til þess að tryggja hagsmuni banda- rískra auð hringa sem eiga á milli 70 og 80% af allri erlendri fjárfestingu í landinu? Gengur áróður þeirra fyrir ágæti kosn- inganna þann 28. mars upp? Tekst útsendurum bandarískrar heimsvaldastefnu, eins og þeim sem kom hingað til lands, titlað- ur sem mannréttindafulltrúi Reaganstjórnarinnar og talaði föðurlega til þjóðarinnar i gegn- um útvarp, sjónvarp og dagblöð, að ljúga að okkur? «Hægt er að halda almennar og frjálsar kosn- ingar i landi þar sem borgara- styijöld ríkir, 400 þús. lands- mennferu á flótta innanj eða utan landsins, morð og pyntingar eru daglegt brauð, skæruliðar ráða !4 af landinu, aðeins hægri öflin bjóða fram og allri væntan- legir frambjóðendur frá miðju til vinstri kveða upp eigin dauða- dóm með því að taka þátt í fram- boði, herlög eru í gildi og í landi þar sem yfir 2 milljónir manna eiga rétt á að kjósa, eru aðeins rúmlega 800. þús kjörseðlar.». Bandaríkjamenn bera mikla ábyrgð á því þjóðfélagslega ástandi sem ríkir í Miðameríku i dag. Meðan við íslendingar erum bandamenn þeirra i Nató gerum við það líka. Sem sjálf- stæð þjóð er það siðferðislega skylda okkar að rísa upp, and- mæla afskiptum Amerikana í E1 Salvador og tjá andstöðuöfl- unum, FDR-FMLN, stuðning okkar. Þann 9. febrúar sl. var stofnuð E1 Salvador-nefnd ú Islandi og mun hún gangast fyrir almenn- um fundi í Félagsstofnun stúdenta, fimmtudaginn 25. mars kl.8.30. Á fundinn kemur fulltrúi FMLN-FDR á Norður- löndum og sýnd verður kvik- mynd frá E1 Salvador. Stjóm- málaflokkunum,ASl og BSRB var boðið að gerast aðilar að heimsókn þessa manns, R.F. Ayala, hingað. ASf og Sjálf- stæðisflokkurinn hafa neitað til- boðinu, Framsóknarflokkur hef- ur sagt já, en Alþýðufl. og Alþ. bl. hafa ekki enn gefið ákveðin svör, em telja verður jákvæð við- brögðlíkleg. Á þessum fundi gefst okkur íslendingum tækifæri að lýsa stuðningi við alþýðu E1 Salvador og afneita ábyrgð á stefnu Bandarikjanna í Miðameriku. Gefst þar vonandi tækifæri til að sjá hvaða stefnu íslenskir stjórn- málaflokkar vilja taka í þessu máli. R.F.Ayala mun lýsa ástaninu i E1 Salvador og svara fyrirspurnum. Mætum öll á fundinn og stefn- um að mjög fjölmennum og góð- um fundi. PHH Um ástandið í E1 Salvador og samábyrgð Islendinga. Þessum kosningum, þar sem valið stendur á milli hægri afla þar sem núverandi ógnarstjórn myndar hófsam asta aflið, og meirihluti landsmanna er fyrir- fram útilokaður frá kosningunum er ætlað stórt hlutverk í áróðurs- striði Bandaríkjamanna, «hér sjáum við löglega kosna stjórn E1 Salvador!» í raun er verið að leita eftir falskri löggildingu á áframhaldandi morðum og kúg- um á alþýðu E1 Salvador. ◄ 4

x

Neisti

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neisti
https://timarit.is/publication/343

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.