Neisti - 27.03.1983, Qupperneq 8

Neisti - 27.03.1983, Qupperneq 8
íNeisti a.tbl. i»oa, bis. 8 A Iþjóðam ál Þýskaland: Hægri öflin unnu sigur, þrátt fyrir almenna andstöðu gegn kjarnorkuvigbiinaði og atvinnuleysi. Þýsku kosningarnar fóru illa. Kristilegu flokkarnir, hœgri öflin i Vestur-Þýskalandi, hlutu nœr helming atkvœðanna, og skorti aðeins 10 þingmenn til að hafa hreinan meirihluta á sam- bandsþinginu i Bonn, sem skipað er 498 þingmönnum. Auðvaldið um allan heim andar léttara, en andstœðingar vigbtínaðar og baráttumenn i röðum verkalýðs- ins spyrja sig: Hvernig stóð á þessu? Það var mikið i húfi í kosningunum í Vestur-Þýska- landi, sem fram fóru 6. mars s.l. Skoðanakannanir höfðu leitt í ljós, að um 60% þýskra kjósenda eru andvigir því, að nýjum kj arnorkuflaugum verði komið fyrir í Þýskalandi, og aðrar kannanir bentu til þess að traust þýskra kjósenda á utan- ríkisstefnu Bandarikjanna og NATO færi dvínandi. Er dregur til úrslita í baráttunni um nýtt skref í kjamorkuvigbún- aðarkapphlaupinu, sem staðið hefur undanfarið í Evrópu, var 'ekki nema von, að allra augu beindust að kosningunum i V-Þýskalandi. Þar tókust á fyrst og fremst kristilegu flokkamir, eindregnir stuðningsmenn NATO og hem- aðarstefnu Reagans Bandarikja- forseta, og Sósíaldemókratar, sem hvatt hafa til slökunar, og ekki skuldbundið sig til að fara í einu og öllu eftir fyrirmælum herranna í Washington. Auk þessara flokka buðu fram Fijáls- lyndir Demókratar, sem þar til nývérið höfðu myndað sam- steypustjóm með Sósíaldemó- krötum um árabil, en höfðu hrossaskipti i september s.l. og mynduðu stjórn með kristi- legum. Þá buðu umhverfis- verndarmenn fram sérstakan lista. Efnahagsmálin réðu úrslitum. Þó afvopnunarmálin hafi mjög verið i brennidepli, og framá- menn kjarnorkuveldanna reynt að hafa áhrif á gang kosninga- baráttunnar m.a. vegna þess, réðu efnahagsmálin úrslitum. Iðnframleiðslan í landinu minnkaði um 9 lA % á seinni hluta s.l. árs, og þjóðarfram- leiðslan minnkaði á árinu öllu um 1.2% frá því sem var árið á undan, er hún minnkaði um 0.2%. Atvinnuleysi jókst geysimikið í framhaldi af þessu, og samsvaraði 10.2% mannafl- ans i janúar s.l. Þrátt fyrir þessa þróun, jókst vongleði auðjöfra eftir valdatöku kristilegra í septem- ber, og var því óspart beitt i kosningabaráttunni, að sigur Kristilegra og Kohls kanslara myndi leiða til betri tiðar, þar sem efnahagspólitík hans myndi vænlegri til hagsbóta fyrir «atvinnuvegina» og mundi draga úr atvinnuleysinu. Það fór og eftir, að daginn eftir kosningarnar lifnaði yfir verðbréfamörkuðum í Þýska- landi. Sósíaldemókratar áttu fá svör við þessum áróðri kristi- legra. Margra ára stjómartið þeirra án þess að lát væri á kreppuþróuninni var síst til þess fallin að vekja traust kjósenda á flokknum, en kristi- legir gátu vísað til þess hve skammt er um liðið síðan þeir tóku við stjórnartaumunum. Þó nutu sósíaldemókratar vaxandi fylgis fyrst eftir stjómarskiptin, og tengdist það viðtækum mót- mælaaðgerðum. I fylkiskosn- ingum í Hessen, Bæjaralandi og Hamborg unnu kratar á, og nutu þar róttæks áróðurs er þeir brugðu fyrir sig fyrst eftir valdamissinn. En Adam var ekki lengi í paradis, og brátt óaði leiðtoga sósialdemókrata við því, að efna til alls- herjarvakningar gegn kreppu- ráðstöfunum og kjamorkuvig- búnaðinum, sem erfitt gæti orðið að hemja, ynni þeir sigur i þingkosningunum. Þeir hurfu því aftur til fyrri loðmullu- stefnu sem byggir í stómm dráttum á að reyna að leysa vandamálin með hallabúskap rikisins, styrkjum til fallítfyrir- tækja o.þ.h., án þess að hrófla við fámennisstjórn auð- magnseigenda. Þessi lausn hefur reynst illa, og því fór sem fór. Græningjar og kratar Það átti og nokkurn þátt i ósigri krata, að bæði forystu- menn þeirra og umhverfisvemd- armanna gáfu lítið út á samstarf vinstri flokkanna eftir kosningar. Umhverfisverndarmenn eða «græningjarnir» settu fram ákveðin skilyrði fyrir því að taka krata fram yfir kristilega sem samstarfsaðila, en Vogel kanslaraefni sósialdemókrata svaraði þvi til að flokkur hans gæti ekki lofað neinu fyrirfram. Vinstri flokkarnir voru því ekki sameinaður ríkisstjórnarvalkost- ur gegn samsteypu kristilegra og frjálsra demókrata, og varð það ekki til að treysta fylgi sósialdemókrata. Græningjar nutu hinsvegar andúðarinnar á fjölgun flauga i Þýskalandi, sem fyrr er getið, en þeir eru ákveðnir andstæðingar aukins kj arnorku vígbúnaðar, auk annars. Það olli því að í fyrsta sinn frá þvi rétt eftir seinni heimsstyijöld tókst stórnmálaöfl- um til vinstri við sósíaldem- ókrata að koma þingmönnum að, og má það vera sósíalistum nokkur huggun harmi gegn að þessu sinni. -/as Nú er ljóst að Israelsher fer ekki sjálfviljugur út úr Suður Líbanon. Herinn hefur hafið framkvæmdir við varan- leg hernaðarmannvirki og fréttir hafa borist um undir- búning að landnámi gyðinga í Suður Líbanon. Trúarleiðtogar gyðinga hafa sett fram kröfur um að Suður Líbanon verði inn- limað í Ísraelsríki vegna þess það hafi verið á yfir- ráðasvæði Salomóns. Þrátt fyrir að nokkuð hafi kastast í kekki með síonistum og Bandarikjastjórn upp á sið- kastið vegna framkomu isra- elskra hermanna gagnvart bandariskum i Beirút, virðist þessi stefna þó að minnsta kosti njóta þegjandi samþykkis Bandaríkjastjórnar sem sannar þar meþ rétt einu sinni;að allt atferli sionista hvort heldur er fjöldamorð á Palestínumönnum eða innlimun nágrannaríkjanna í augum Bandaríkjastjómar nauðsynlegur kostnaður af því að viðhalda þessum útverði banda- rískrar heimsvaldastefnu að vera einn hinn harðasti í manna minnum. Matur er mjög af skornum skammti og læknisþjónusta engin. Pyntingar og misþyrmingar a föngum eru regla frekar en undantekning og alls ekki bundnar við yfirheyrslur heldur miklu fremur skaplyndi og and- legt ástand fangavarða. Enn fremur eru fangar sem haldið er innan Israels stundum fluttir inn á Kibutsa -þar sem land- nemarnir fá að betja þá að vild. Konur og börn eru ekki síður áhugasöm en hermennirn- ir og taka virkan þátt í þessari skemmtun. Öðru hvoru koma sveitir kristinna manna inn í fangabúð- irnar og hafa á brott með sér fanga og þarf enginn að fara í grafgötur með hver séu örlög þeirra. Einnig munu ísraelsmenn sjálfir framkvæma fjöldaaftökur öðru hvoru þótt þeir beiti yfirleitt falangistum fyrir sig til slíkra verka. Það má því með sanni segja að fangabúðir ísraelsmanna séu útrýmingarbúðir. Að lokum má geta þess að fangar eru merktir eftir þjóðerni, t.d. bera Líbanir hvítann kross og Palestínumenn- irnir, já lesandi góður það er rétt til getið, þeir eru merktir með gulri stjörnu. -jaki- i klóm Sionista. Þegar skoðaðar erú frétta- myndii frá Suður Libanon vekur það strax athygli að á þeim sést varla nokkur karlmaður nema srnásveinar yngri en tólf ára og karlægim öldungar. Hvar eru karlmennirnir, spyrja margir sig, eru þeir lifs eða liðnir? Sem betur fer eru flestir þeirra lifandi því að langflestir vopn- færir karlmenn jafnt Libanir sem Palestinumenn hörfuðu frá Suður Libanon með herjum PLO og sveitum líbanskra vinstri- manna. Margir féllu þó og að þvi talið er eru allt að 15.000 manns í fangabúðum síonista í Libanon og ísrael. Fangarnir eru jafnt konur sem ikarlar og' langflestir eru óbreyttir borgarar sem hand- teknir voru eftir að ísraelsher tók Suður Líbanon. Ailmargir Evrópu- og Asíu- menn voru i hópnum og til- kynntu síonistarnir því um hand- töku fjöldamargra «þekktra hryðjuyerkam.anna» og. var því slegið upþ sTtorsíðum blaða á Vesturlöndum. Lítíð hefur þó farið fyrir slíkum uppslætti upp á síðkastið vegna þess að flestir«hryðjuverkamennimir» reyndust starfsmenn ýmissa hjálpar- og líknarféla&a og afgangurinn var fréttamenn og túristar sem lent höfðu i klóm ísraelshers. Flestu þessu fólki var sleppt ásamt börnum yngri en tólf ára en öðrum Líbanon jafnt konum sem körlum, haldið eftir. Við fyrstu sýn virðist þessi mikli fjöldi fanga vera mikill sigur fyrir síonistana en það eru einmitt þessir fangar sem eru nú einn helsti höfuðverkur Israelsstjórnar. Israelsstjóm viðurkennir ekki að þetta fólk sé stríðsfangar og hefur því Genfarsáttmálann um meðferð stríðsfanga að engu. stjórnin heldur þvi fram að fangarnir séu hryðjuverkamenn og því ótýndir glæpamenn og trúarleiðtogar gyðinga segja þá af óæðri kynþætti og því séu hrannvíg leyfileg - en það er einmitt þessi fullyrðing ísraelsstjómar sem er búin að koma henni i vandræði, því samkvæmt lögum i ísrael á að leiða hryðjuverkamenn fyrir rétt og dæma þá. Andstæðingar Israelsstjómar innanlands hafa þvi séð sér leik á borði vegna þessarar þverstæðu. Leah Tsemel lög- fræðingur sem svo oft hefur leikið ríkisstjórn og ráðandi öfl grátt í réttarsölum, hefur nú tekið að sér mál þeirra sem handteknir hafa verið i Suðui Líbanon. Alls hafa fjölskyldur 5000 palestinumanna og Lib- ana sem ísraelsmenn eru taldir hafa í haldi, falið Tsemel að annast mál þeirra fyrir rétti i ísrael og fleiri munu fylgja i kjölfarið. Fyrsta skret lögfræðinganna er að fá úskurð hæstaréttar um réttarstöðu þessara fanga og gaf rétturinn ríkisstjórninni 60 daga frest til að undirþúa málsvörn sína. Þegar úr því fæst skorið hvort fólkið er stríðs- fangar og njóti réttar sem slíkir eða afbrotafangar, munu lög- fræðingarnir haga málssókn sinni eftir því. Það er eins gott að þessi mál gangi fljótt fyrir sig fyrir dómstólunum því ástandið i fangabúðunum mun vægast sagt bágt. Þar er fyrst að telja að margir fanganna hafa ekkert húsaskjól heldur dveljast þeir annað hvort í tjöldum eóa hafa teppi til að breiða yfir sig. Menn geta rétt ímyndað sér hvernig aðbúnaðurinn er ef tekið er með í reikninginn að veturinn í Líbanon er búinn

x

Neisti

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neisti
https://timarit.is/publication/343

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.