Neisti - 27.03.1983, Blaðsíða 11

Neisti - 27.03.1983, Blaðsíða 11
Athugasemdir við mishermi Skafta Halldórssonar. I Neista frá 24. janúar siðastliðnum er grein eftir isl- enskufræðing að nafni Skafti Halldórsson, sem fjallar um Alþýðubókina eftir Halldór Laxness og ritgerð mina um hana, sem birtist i Timariti Máls og menningar fyrir einu ári , siðan. Grein Skafta er full af rangfærslum og sé ég mig kniíinn til að leiðrétta þær helstu. Skafti fullyrðir að þeir sem rætt hafi þetta málefni hafi skipst í tvo hópa, þá sem séu ennþá stalínistar og hina, sem telji Lenin og Engels bera sök á óförum sovétbyltingarinnar og Halldór Laxness á kreppu sósíalismans á íslandi. Síðar- nefndu skoðunina kallar Skafti «súbjektíviska hughyggjukenn- ingu» og segir að undirritaður aðhyllist hana. En það geri ég ekki. Er þvi hér með komið á framf æri. Skafti segir að gagnrýni mín á sósíalisma Alþýðubókarinnar feli í sér annars vegar að bókin byggi á dólgaefnishyggju og hins vegar að hún sé ekki sósíalísk «nema í vissum skilningi» (eins og ég komst að orði i grein minni í TMM). Skafti hrekur ekki að pósitifisma og vélhyggju gæti í ritgerðarsafni Halldórs, en í staðinn sakar hann mig um að hafa ekki gert mismuninum á díalektískri efnishyggju og pósitifisma nægileg skil í grein- inni. En það efni var því miður ekki á dagskrá og kom málinu ekkert við. Ég hvet Skafta til að gera grein fyrir ► þessum mismun sjálfur, telji hann það brýnt. Tilraun Skafta til að afsanna orð min að stjórnmálaskoðanir i Alþýðubókinni séu aðeins sósíalismi «í vissum skilníngi» fjara út í ekki neitt, sem vonlegt er. Helsta röksemdin virðist eiga að vera að kröfur Halldórs á sviði landbúnaðar séu «berg- mál af kröfugrundvelli Kommún- istaávarpsins» og þar af leið- andi boði bók hans sem sé ekki sósíalismann i aðeins vissum skilningi, heldur þá væntanlega Sósialismann (skrá- sett vörumerki). Við Skafti erum sammála um að kröfur Halldórs vörðuðu brýnar þarfir fjöldans á íslandi (hreinlæti, húsnæði o.s.frv.). En brýnar þarfir fjöldans á fslandi eru nú íjreyttar frá þvi sem var árið 1929, er hin um rædda bók kom út, - að ekki sé talað um frá árinu 1848 er ávarp Marx og Engels kom út. Skilningur flestra á hugtakinu sósialismi hefur þess vegna tekið ýmsum breytingum síðan. f grein minni um Alþýðubókina reyndi ég m.a. að varpa birtu á í hvaða við- horfum sósíalismi bókarhöfundar stenst illa á við sósíalisma okkar daga. Þegar Skafti bregst svona illa við þeirri tilraun dettur mér fyrst i hug að sósíalismi hans sjálfs standi i sömu sporum og höfunda 3. og 4. áratugarins. Tilgangur greinar minnar var ekki að kasta rýrð á Alþýðubókina, öðru nær. Mér finnst hún skemmtileg, eins og flestum finnst. Og hún gerði sósíal- ískri baráttu örugglega feiki- mikið gagn á sínum tima. Af orðum Skafta mætti ætla að ég skilgreini visindalegan sósialisma sem «alþýðusinnaða andspyrnu í velferðarþjóðfél- ögum» og er það auðvitað ranghermi. Ég notaði þetta orðalag um «það sem nú á dögum er nefnt sósíalismi» (eins og stendur i grein minni), og liggur i augum uppi að þá átti ég einmitt ekki við sós- íalisma vísindadýrkenda. ítar- legri skilgreining rúmaðist ekki í greininni, enda ætti Skafta að vera kunnugt hve margir straumar eru i sósíahsma nú- tímans. Þeir straumar áttu aldrei að vera efni greinEU minnar. En Skafti getur auð- vitað ijallað um það málefni einhvers staðar sjálfur, ef hann kærir sig um. Skafti skrifar að ég hafni «baráttu fyrir hinum brýnu þörfum sem grundvallaratriði sósíalískrar baráttu», og það er einníg rangfærsla. Ég skrifaði ekkert slíkt. Mér er næst að halda að andmælandi minn telji mig baráttumann fyrir hungri og klæðleysi, og þarf varla að taka fram hvilík firra það er. í grein sinni kveður Skafti mig «agnúast /.../ út i hið áþreifanlega í lenínismíinum hjá Halldóri og fleirum» og er það mesta bull, enda agnúast ég hvorki út í það áþreifan- lega i þessum isma né neinum cðrum ismum. Máli sínu til stuðnings vitnar Skafti í Lenin, sem á að hafa sagt: «Sann- leikurinn er áþreifanlegur». Mér er hulið hvernig þessi orð félaga Lenins eiga að beinast gegn málflutningi minum; en Skafti er lánsamur að hafa svo orðheppinn bakhjarl i fræða- grúski sínu. Samkvæmt Skafta á það að vera skoðun min að kapital- isminn sé fær um að full- nægja þörfum jarðarbúa fyrir fæði, húsnæði o.fl. Hef ég enga hugmynd um hvaðan hann hefur fengið þessa grillu og ber enga ábyrgð á henni. Sama gildir þegar honum sýnist það skoðun mín að «sósíalisminn verði til vegna einhverrar sér- tækrar formgerðarbreytingar», hvað svo sem það merkir. Þetta er allt upp úr Skafta og ekki mér. Skafti heldur fram að Marx hafi talið að garðyrkja (- hið efnislega líf - bætir hann við) ákvarði hið andlega. Hann gagnrýnir grein mina, sem fjallar um Alþýðubókina i heild, fyrst og fremst út frá ritgerð Halldórs «Um búskap á Islandi», sem gefur ranga mynd af orðum minum. Skafti nefnir umfjöllun mina meira að segja «túlkun á Alþýðubókinni og búskapar- umræðu Halldórs». Er mér ókunnugt hvers vegna greinar- höfundinum er svona mikið kappsmál að koma garðyrkju- og landbúnaðarmálum á framfæri i Neista. En til að fyrirbyggja frekari langlokur um þetta ólík- indalega málefni skal ég taka fram að ég hef ekkert sérstakt á móti þessari atvinnugrein, jafnvel þótt ég telji hana ekki «ákvarða hið andlega» eins og andmælandi minn gerir. Gaman væri að ræða þessi mál betur i Neista, en ég verð þvi miður að láta mér nægja að sinni að leiðrétta það helsta sem mishermt var i grein Skafta Halldórssonar, enda ærið verk. Með þökk fyrir birtinguna, Árni Sigurjónsson. um og Alþýðubandalaginu, heldur af hinu að Alþýðuflokkur- inn á nú við djúpa kreppu og upplausn að stríða, á sama tima og harðsviraðir hægri kratar á við Jón Baldvin Hannibalsson sækja á í flokknum. Við þessar aðstæður má telja að verkafólk leiti fremur til Alþýðubandalags- ins en Alþýðuflokksins. Framkvæmdanefnd miðstjórnar Stjórnmalaástandið, framhald af baksiðu ins að slíkum friði, og lykill verkalýðsflokkanna að Stjórnar- ráðinu. Það getur jafnvel farið svo að Sjálfstæðisflokkurinn komi i gegn þeim kjaraskerð- ingum sem hann stefnir að, án þess að hann fari sjálfur i rikisstjórn. Við þessar pólitísku aðstæður setur Fylkingin tvö kjörorð á oddinn: - Engar samsteypustjórnir borgaraflokka og verkalýðs- flokka! -- Byggjum upp varnir verka- lýðshreyfingarinnar gegn árás- um auðvaldsaflanna og rikis- valds þeirra á lifskjörin! I þessu, tveimur kjörorðum felst baráttustefna sem merkir að allri verkalýðshreyfingunni verði fylkt til virkrar baráttu gegn auðvald- inu og flokkum þess. Þetta getur auðvitað haft það í för með sér að borgaraflokkunum er látið eftir rikisvaldið um tima og verkalýðs- flokkarnir verða saman í stjórnarandstöðu. Það er þó vænlegri kostur fyrir verkalýðs- Neisti 3.tbl. 1983, bls.ll Fóstureyðingar, framhald af bls.4. sér ástandið i þessum mál- um! Aðilar innan kirkjunnar hafa veitt Þorvaldi stuðning, m.a. i formi ályktunar sem kirkjuþing samþykkti og biskup túlkaði i fjölmiðlum. Þó munu vera nokkrir aðilar innan kirkj- unnar sem vilja hafa hægt um sig i þessu máli og telja framgöngu biskups og kirkju- þings fljótræði mikið. Þorvaldur Garðar og með- flutningsmenn reyna að klóra yfir kvenfjandsamlega afstöðu sína með flutningi annars frum- varps um hækkuð mæðralaun o.fl. Vissulega þarf að hækka mæðralaun og það miklu meira en lagt er til i þessu frum- varpi, en önnur ákvæði þess um ekkjulífeyri fyrir mæður eru stórlega varasöm. í þeim felst heimild til að senda konur heim til að ala upp hörn, heimild sem hægt yrði að beita sem n.k. hagstjórn- artæki, sérstaklega á atvinnu- leysistimum. Konur verða ætíð að vera undir það búnar að þurfa að verja rétt sinn til fóstureyð- inga. Þó Þorvaldur Garðar eigi ekki mikinn pólitískan stuðning nú, m.a. vegna þess að kosningar eru í nánd og flokkarnir vilja ekki gera fóst- ureyðingar að kosningamáli, mun þessi réttur ævinlega verða þyrnir í augum aftur- haldsins i þessu landi sem og annars staðar. Afturhaldi víða um heim hefur á allra sið- ustu árum orðið nokkuð ágengt i baráttu sinni gegn þessum rétti og það er ekkert nátt- úrulögmál sem segir að slíkt geti ekki gerst hér á landi. Ekkert nema viðtæk fjölda- barátta kvenna getur tryggt þeim að rétturinn til fóstur- eyðinga verði ekki af þeim tekinn. stéttina í þessu landi heldur en t.d. samsteypustjórn Alþýðu- bandalagsins og ihaldsins. Þessi kostur er sá eini sem getur rutt brautina fyrir rikisstjóm sem verkalýðsflokkarnir mynda og byggja á virkum samtökum verkalýðsins. En það er einmitt slík verkalýðsstjórn sem verka- fólk þarfnast til þess að fram- kvæma þær pólitisku og félags- legu ráðstafanir sem leysa efnahagskreppu auðvaldsins án þess að velta henni yfir á herðar verkafólksins. Slik verkalýðs- stjórn byggir á virkum samtökum verkafólks sem veita henni umboð og standa vörð um hana. Samsteypustjómir seni drepa verkalýðshreyfinguna í dróma eru ekki til þess fallnar að færa verkafólk nær því markmiði að mynda sina eigin ríkisstjórn. Már/Pétur Save 20% on a subscription to In tercon tin en tal Press No other magazine has the in-depth political reporting and news coverage 1P presents. Regular reports írom our bureau in Nicaragua . News and commentary on Central America and the Carib- bean. the Palestinian struggle, and developments in In- dochina and Alrica . . First-hand accounts of the struggle of the Polish workers . . . Translations of key documents from the world revolution- ary and workers movement . . . And much more. Subscribe today and receive. FREE. the special 240-page issue of IP containing major resolutions and reports from the 1979 World Congress of the Fourth International. YESH want to subscribe. Enclosed is USS28.00 for one year. Send me a free copy of the 1979 World Congress Documents. Addrei* ........ . . . —— ■ ■- ----- Cily/PoitalCodi/Country-----------------.... ------------------ Payment must be made in U.S. dollars to: IntercontinentalPress. 410 WestStreet, NewYork. N.Y. 10014 Húsnæðismál, framhald af bls. 5. byggðar um 400.000 íbúðir á vegum HSB og standa þær al- gerlega undir sér. Hámarksleiga hefur verið miðuð við 20% af meðallaunum iðnverkafólks og trygging er greidd sem sam- svarar 1-2 mánaðarlaunum. Með þessari tryggingu öðlast fólk búseturétt í þessum ibúðum ævi- langt - Hverjar eru horfurnar fyrir Alþjóðasamtökin? Ekkert alltof glæstar. í V-Þýskalandi hefur ihaldsstjórn- in takmarkað réttindi leigjenda, t.d. búseturétt og hækkað leiguna. Eins hefur hún dregið úr íbúðarbyggingum og látið rífa gömul hús. I V-Þýskalandi eru leigjendasamtökin nokkuð sterk með um 400.000 meðlimi, en þau eru ekki skipulögð úti hverfunum. í Frakklandi eru um 8 milljónir leiguíbúða. Margar þeirra eru gamlar og úr sér gengnar þar sem þeim hefur ekki verið við- haldið. Mitterand-stjórnin hefur sett verðstöðvun á húsaleigu og hafið undirbúning að endurbót- um á gömlum húsum. Eins er í undirbúningi lagasetning til að bæta rétt leigjenda og veita samtökum þeirra m.a. rétt til að semja um leigu í ákveðnum tilvikum. í frönsku leigjenda- samtökunum eru um 250.000 leigjendur. í Englandi hefur ihaldsstjómin reynt mikið til að selja íbúðir i opinberri eigu. Þannig hafa um 300.000 ibúðir verið seldar á síðustu árum. Leigj- endur hafa verið þvingaðir til að kaupa íbúðir og láta þannig ihaldsdrauminn um eigið hús- næði rætast, þótt draumurinn hafi þar sem viðar breyst i martröð. I Englandi eru mörg samtök leigjenda en engin sterk landssamtök. Ástandið þar er sannast sagna mjög dökkt. Á ítaliu er mikill munur milli norður- og suðurhluta landsins enr se húsnæðisskortur er mikill á S-ítalíu. Leigjendasamtökin, sem heita SUNIA, hafa um 250.000 félaga og eru nokkuð sterk í ýmsum borgarhlutum, enda samvitund mikil í sumum hverfum. Þróunin hefur þvi viða gengið gegn leigjendum, en samtök okkar hafa þó getað spyrnt við fótum. Fullvíst má telja að ef leigjendasamtök væru hvergi til væri minni umræða um hús- næðismál, færri leiguibúðir og hærri leiga. Áhrif á húsnæðis- stefnu eiga ekki að koma frá eigendum, heldur þeim sem búa i húsnæðinu, íbúunum öllum, það er okkar að virkja fólk i þá veru. -bþ- Kosningar, framhald af bls. 2. leysa verkalýðshreyfinguna upp i frumeindir sinar og kjósa hinn «sterka» mann í embætti for- sætisráðherrans. Kvennalistarn- ir eru liklegir til að setja fram einhver jákvæð umbótamál. En heildarstefna þeirra byggir á því að breiða yfir stéttaandstæður um leið og kvennalistarnir byggja ekki félagslega á verka- lýðshreyfingunni. Stefna þeirra er því ekki valkostur fyrir verka- fólk og verður vart meira en ýmis brot smáborgaralegra hug- mynda. Það er í ljósi alls þessa sem Fylk- ingin leggur áherslu á að verka- fólk og sósíalistar styðji stéttarlega valkosti í kosning- unum, þ.e. kjósi annað hvort Alþýðuflokkinn eða Alþýðu- bandalagið. Við bendum þeim sem hafa kosið þessa flokka á undanförnum árum á, að þrátt fyrir kreppu þeirra, stéttasam- vinnu og annað ótal margt sem að þeim má finna, þá gefast því miður engir betri kostir í kom- andi kosningum. Þrátt fyrir óánægju með þessa flokka, þjónar það ekki hagsmunum verkafólks að láta af stuðningi við þá og velja i staðinn Framsóknarflokkinn eða Sjálf- stæðisflokkinn. Atkvæði til Bandalags jafnaðarmanna eða kvennaframboðanna mundi mundi heldur ekki hafa nein já- kvæð áhrif fyrir verkalýðshreyf- inguna. Þess vegna skorar Fylk- ingin á allt verkafólk og alla þá sem telja sig sósialista i þessu landi, að hafna borgaraflokkun- um og smáborgaraflokkunum og kjósa verkalýðsflokkana i kosn- ingunum 23.april næstkomandi. IV. Fylkingin hefur í undanförnum tveimur kosningum aðeins boðið fram í Reykjavík. Fylkingin skor- ar á þá stuðningsmenn sína sem greitt hafa henni atkvæði að kjósa Alþýðubandalagið í kom- andi kosningum. Þetta stafar ekki af því að við teljum vera grundvallarmun á Alþýðuflokkn-

x

Neisti

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neisti
https://timarit.is/publication/343

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.