Stéttabaráttan - 28.08.1975, Síða 1
ÖRBGAR ALLRA LANDA SAMEINIST!
I M 1 1 1 f iPT
/ 1 inij wTt I l [ fi 1 / J
Ríkisstjórnin svikur ioforðin
ASÍ-forystan hefst ekkert að
Það fer ekki milli mála að samningar verkalýðsfélaganna fyrir rúmum þrem
mánuðum síðan voru staðfesting ASÍ-forystunnar á kjaraskerðingaráformum
auðherranna og ríkisstjórnarinnar.
Talið er að þessir samningar hafi falið f sér 11% launahækkun hjá verkafólki
að jafnaði, en samkvæmt útreikningum Hagstofunnar er þessi launahækkun
nær uppurin.
Loforð ríkisstjórnarinnar frá 26. mars um skattalækkun hafa einnig reynst
einskis verð.
Til að tryggja að samið yrði, lofaði ríkisstjórnin að búvöruverðshækkunin
sem koma átti í júní kæmi ekki til framkvæmda, en yrði greidd niður. Eins
og önnur loforð var þetta einnig svikið og niðurgreiðslum frestað á meðan
verið var að hækka búvörur.
f júlí síðastliðnum kórónaði ríkisstjórnin svo kjaraskerðingarárásir sínar
með 12% vörugjaldi, sem kemur á 40% af innflutningnum.
Það dylst fáum eftir síðustu kjara-
samninga, að ASf-forystan er ekkert
annað en lágsigld þerna atvinnurek-
enda og ríkisstjórnarinnar. Það'að
síðustu samningar forystunnar voru
ekkert annað en þjónusta við atvinnu-
rekendur verður æ fleirum ljóst nú
þegar 'nokkuð er um liðið frá samn-
ingunum. Það atriði sem ASf taldi
vera eitt mikilvægasta atriðið við
samningana, skattalækkunin, hefur
nú komið í ljós sem tómt fals. Eins
og öllum er kunngt, ákvarðast tekju-
skattur og útsvar í ár af tekjum árs-
ins I fyrra, en tekur ekki tillit til
greiðslugetunnar á árinu sem tekn-
anna er aflað. Þannig varð 51%
hækkun framtaldra tekna milli áranna
1973 og 1974 væntanlega til að hækka
skatta um 51% 1975 fram yfir það sem
þeir voru 1974. Tekjuaukningin milli
áranna 1974 og 1975 mun ekki ná þess-
ari skattaaukningu, en áætlað er að
hún verði aðeins um 30% . Afleið-
ingarnar eru því augljósar, nú á að
greiða 51% hærri skatta með 30%
hærri tekjum. Niðurstaðan er því
stóraukin skattbyrði, sem ríkisstjórn-
in lofaði að leiðrétta. Gert var ráð
fyrir á fjárlögum að skattar laakkuðu
um 700 m. kr., en samtímis voru út-
svör hækkuð um 600 m.kr. og um
300 m.kr. með því að lækka útsvars-
frádráttinn ekki I samræmi við skatt-
vísitölu. Þannig var loforðið um
laskkun skatta svikið en almenningur
verður nú að borga hærri skatta með
minni heildartekjum. Niðurstaðan
er því raunverulega sú, að skattar
hafa hækkað stórlega fram yfir launa-
hækkanir. Það skyldi því engan
undra þó að skattar hafi hækkað um
70% eins og varð I Suðurlandskjör-
dæmi. Sannleikurinn um skattalsékk-
anirnar var nefnilega sá, að þær
voru hreinn tilbúningur af hendi rík-
isstjórnarinnar og til þess naut hún
stuðnings ASl-forystunnar.
Hverjir svíkja undan skatti?
Hverjir skyldu það nú vera sem verða
látnir borga þessar auknu skattbyrð-
ar. Ef við förum I skattskrána þá
sjáum við að skattar verkafólks hafa
óhjákvæmilega hækkað. Þannig hef-
ur heildarskattheimta ríkis og sveit-
arfélaga hækkað úr 32,5% af þjóðar-
framleiðslunni I fyrra I 34,5% af
henni I ár (þrátt fyrir minni þjóðar-
framleiðslu og "skattalækkun" ríkis-
stjórnarinnar). Þessi aukna skatt-
byrði kemur til með að leggjast
fyrst og fremst á herðar launafólks
eins og allt að 70% tekjuskattshækk-
un á Suðurlandi sýnir meðal annars,
Eins og áður er það verkalýðurinn
sem verður látinn borga milljóna
skattsvik auðherranna. Verkamað-
urinn hefur ekki sömu tök á að svíkja
undan skatti og kapitalistinn sem
Framhald a siðu 7.
BERJUMST GEGN STRIDS-
Hækkun
lausasöluverðs
Ritstjórn hefur ákveðið að hækka
verð blaðsins I lausasölu. Síðast
hækkuðum við blaðið (úr 40kr I 50)
í júní 1974. En einsog allir vita þá
hafa orðið geysilegar verðhækkanir
á öllum hlutum síðan þá. Við höfum
beðið með að hækka lausasöluverðið
þar til I síðustu lög. En lengur
verður ekki beðið ,nú kostar.blaðið
70 krónur.
STÉ TTABARATTAN byggir fjárhag
sinn á þvf sem lesendur láta af
hendi rakna. Við höfum ekki opin-
bera sjóði til að ausa úr, og við
byggjum ekki reksturinn á auglýs-
ingum. Með þessu mðti er blaðið
eingöngu háð lesendunum. Og það
er þannig sem við viljum hafa það.
Engir hagsmunir, annarra en ís-
lensks verkalýðs, eiga að hafa áhrif
á málflutning blaðsins. 1 ljós þessa
er ritstjórn sannfærð um að hækkun
lausasöluverðsins mæti skilningi
hjá lesendum, og að þeim haldi á-
fram að fjölga eins og að undan-
förnu._________
Grein um
húsnæðismál
bls.3
Um Angóla
sjá baksiðu
1 ".11
Framtið
Vietnam-
nefndarinnar
sjá baksiðu
OGNUNUM RISAVELDANNA!
Tveir stærstu heimsvaldaræningjarnir,
Bandaríkin og Sovétríkin, ðgna í dag
heimsfriðnum með vígbúnaðarkapp-
hlaupinu og tilraunum sínum til að
stjðrna þrðun mála um heim allan.
Eins og böðlar með hunang í munninum
tala þeir um "frið" og "afvopnun",
meðan barátta þeirra um heimsyfirráð
harðnar stöðugt og hernaðaruppbygging-
in vex. Undanfarin ár hafa sýnt að
risaveldin svífast einskis í baráttunni
um heimsyfirráð. Réttur þjðða til
sjálfstæðis og sjálfsákvörðunar er að
engu hafður standi hann í vegi hagsmuna
risaveldanna. Risaveldin standa að og
viðhalda svartasta afturhaldi um allan
heim. Bandaríkin ðgna frið í Asfu með
hótunum um árás á N-Koreu og Sovét-
ríkin reka stðrfellda útþenslustefnu á
Indlandsskaga. Flotar risaveldanna
hringsðla inn öll heimshöf, auðvitað
"allt í þágu mannkynsins og minnkandi
spennu" eins og hugmyndafræðingar
heimsvaldastefnunnar nefna það.
Þannig reyna risaveldin allstaðar að
ná fðtfestu með arðráns-og kúgunar-
klðm sfnum.
Hagsmunir risaveldanna eru í óleysan-
legri mðtsögn við hagsmuni yfirgnæf-
andi meirihluta mannkynsins.
Þjóðir vilja frelsi, þjóðlönd vilja
sjálfstæði, alþýðan vill byltingu.
Risaveldin reyna allt sem þau geta til
að stam: ' vegi þessarar þrðunar,
því hún stefnir gegn arðránshagsmunum
þeirra.
Nauðsyn aukinnar baráttu gegn risa-
veldunum er knýjandi.
Sjá nánar grein bls. 4
Eins og komíð hefur fram f fréttum
eru helmsvaldaríkin full ótta um
að þróun mála kunni að leiða til
"stjórnleysis". Vestrænir fjölmiðl-
ar sem ekkert fundu að meðan I
landinu ríkti fasismi, barma sér
nú yfir "hinu alvarlega ástandi".
Allir heimsvaldasinnar gera sitt
til að hafa áhrif á gang mála f
Portugal. Jafnaðarmenn f V-Ev-
rópu hafa lýst yfir að þeir vilji að
stjórnarfar landsins verði sniðið
eftir vestrænum lýðræðisháttum,
og Ford Bandaríkjaforseti hefur
lyst því yfir að Portugal sé á
hefðbundnu áhrifasvæði Banda-
ríkjanna og auk þess mikilvægur
liður f Nato sem ekki megi fara
forgörðum.
Eins og önnur heimsvaldaríki rejoia
Sovétmenn að tryjjgja áhrif sín í
Portugal. Kommunistaflokkurinn
f Portugal rekur mikinn pólitískan
árðður fyrir Sovétríkjunum og f-
tökum þeirra, en Sovétríkin reyna
sjálf að ná efnahagslegum ítökum
f landinu með "efnahagsaðstoð".
Risaveldin bftast á um Portugal,
og hvort þeirra reynir að hafa á-
hrif á gang mála á kostnað hins.
Sjá nánar grein bls. 5.
V
Þann 21 ágúst voru 7 ár liðin frá inn-
rás Sovétríkjanna í Tékkoslovakiu.
Þar afhjúpaði sósfalheimsvaldastefnan
berlega árásareðli sitt með því að
fótumtroða rétt tékknesku þjððarinnar
til sjálfstæðis og sjálfsákvörðunnar.
Undir yfirskyni "hjálpar" og "sósíal-
isks bræðralags" heldur sðsíalheims-
valdastefnan ríkjum A-Evrópu undir
hæl kúgunnar og arðráns, og skirrist,
ekki við að beita hervaldi gegn verka-
lyð og vinnandi alþýðu reyni hun að
slíta sig undan oki Sovétríkjanna.
Þetta fékk alþýða Tékkoslovakiu að
reyna á hinum dökku ágústdögum árið
1968. Þetta var lexia sem pólskir
verkamenn fangu frá sósíalheims-
valdastefnunni 1970 er þeir risu upp
til baráttu gegn kúgun og misrétti.
Þessir lærdómar ættu að vera verka-
lýð og vinnandi alþýðu Islands til að-
vörunnar um eðli sösfalheimsvalda-
stefnunnar.
Myndin hér að ofan sýnir sovéskan
skriðdreka í Prag í ágúst 1968 sem
tékknesk æska hefur merkt hakakross
inum - alþjóðlegu tákni fyrir kúgun
og villimennsku.
Sjá nánar um atburðina f Tékkoslo-
vakiu og baráttuna gegn sðsíalheims-
valdastefnimni í leiðara bls. 2.
Átök i Sjalfstæðisflokknum:
Hægri armurinn
meó"Nýja Vísi"
Rvík. 22.8. Þær væringar sem
hafa að undanförnu staðið vegna út-
gáfu og ritstjórnar Vísis, hafa tæp-
lega farið framhjá mörgum. Nú er í
svo komið að þeir sem urðu undir í
baráttunni um ritstjórnina hafa á-
kveðið að stofna nýtt síðdegisblað,
til höfuðs Vísi. Nú þegar hefur það
lið, sém stendur að baki Jónasi
Kristjánssyni safnað f sjóð um 50
milljóniun kr., og söfnun auglýsinga
er stunduð af miklum krafti. Þess
er að vænta að sú söfnun gangi vel,
þvf að baki "Nýja Vísi" standa marg-
ir af stærri.burgeisum í verslunar-
og viðskiptalífinu. Samkvæmt þeim
upplýsingum sem Stéttabaráttan hef-
ur aflað sér þá eru það þeir sem
standa einna lengst til hægri í
Sjálfstæðisflokknum sem styðja út-
gáfu nýja blaðsins. Og jafnframt er
það sá hluti flokksins sem er eiima
ðánasgðastur með sinn hlut þessa
dagana, þ. e. innflytjendur og heild-
salar. Þessi hópur er í uppreisn,
m. a. sökum þess að þeir telja hart
að sér vegið með 12% vörugjaldinu
og ýmsum fleiri aðgerðum ríkis-
stjórnar Geirs Hallgrímssonar.Sum-
ir þessara aðstandenda "Nýja Vfsis"
eru svo langt til hægri í skoðunum
að þeir kalla hluta flokksbræðra
sinna sósíalista, en einmitt Albert
Guðmundsson varð frægur fyrir á
landsfundi flokksins fyrir að ákæra
hluta hans fyrir að fylgja sósíalisma,
Eitt er víst, með tilkomu þessa
blaðs aukast líkurnar á klofningi.a
"flokki allra stétta." Hægri armur-
inn hefur þá sitt eigið málgagn og er
því óháðari núverandi flokksforystu
en ella.
-/hh