Stéttabaráttan - 16.09.1976, Qupperneq 4

Stéttabaráttan - 16.09.1976, Qupperneq 4
[S STETTABARATTAN 16. tbl. 16/!) 1976 PóHtískur áródur í skólum Eitt af þvi sem er bannað í ikólum er öll umræða um >jóðfélagsmál, því að það er >ólitík og pólitík er bönnuð. Forráðamenn skólamála og ónsir skólastjórar eru dauð- íræddir við þjóðfélagslegar imræður innan veggja skólanna >egna þeirrar hættu að þær leiði :il einhverra óæskilegra niður- itaðna. Vinstrisinnaðir cennarar eru víða undir eftir- iti til þess að þeir reki elcki jólitískan áróður. Dæmi mætti íefna um kennara, h skóla - nenntaðan í sagnfræði, sem íkki fékk að kenna só’gu, þótt iinmitt vantaði sögukennara. Það var vegna þess að hann var )f pólitískur! Annað dæmi er um cennara sem ætlaði að spila ilötur fyrir nemendurna. Skólastjórinn bað hann sér- staklega íyrir það að vera ekki með pólitík. Og þriðja dæmið fjallar um móttökur skóla- stjóranna á Akureyri þegar Alþýðuleikhúsið sendi þeim bréf og bauð þeim sýningu. Alþýðuléikhúsið fékk afar loðin svör þar sem þeir snéru sig frá þvx að svara af eða á, en skólastjóri gagnfræðaskólans sagði að "fyrr skyídi hann borinh út en að þetta helvftis kommúnistapakk kæmi inn í sinn skóla." Það er undir yíirskyni hlut- leysis sem pólitísk umræða er bönnuð í skólum. En kennslu- bækurnar eru ekki jafn hlut- lausar. Tökum oklcur í hönd Mannkyns- sögu eftir Ölaf Þ. Kristjánsson. Af henni má helst ráða að fyrr á öldum hafi nær eingöngu verið til kóngar og keisarar því að alþýðufólks er sjaldan getið. Það þjónar afturhaldssömum txlgangi að skrifa svona bók og láta kenna hana. Fleiri námsgreinar eru vett- vangur fyrir svona áróður. Landafræði og félagsfræði eru það lika. En með trúarbragða- íræðslunni er þó örugglega mest unnið. Þótt trúfrelsi sé eitt af ákvæðum stjórnarskrárinnar eru börn skyldug til að læra biblíusögur í skólum. I samræmi við hlutleysis- stefnuna fá pólitísk æskulýðs- félög ekki að starfa x skólum. Rauðri Æsku hefur t. d. verið meinað að selja blað sitt sums staðar. En ýmis önnur æsku- lýðsfélög, svo sem kristileg æskulýðsfélög, stúkur, skáta- félög og x'þróttafélög fá aðgang að skólunum, bæði hvað snertir húsnæði og auglýsingar. Ein- hver karm að segja að þessi félög séu eklci pólitísk. 1 vissum skilningi er það rétt, það er að segja ef menn gleyma því xxð til er fröken sem heitir "Ungfrú Engin Pólitxk". Bak við sakleysislegt yfirbragð sitt fela þessi félög sitt af hverju. Kristilegu ielögin hafa að leiðar ljósi Jesú Krist og postulana, m. a. Pál sem sagði: "Sérhver maður sé yfirboðnum valdsstéttum hlýðinn; þvi' að ekki er til nein valdsstótt nema frá Guði, og þær sem til eru, þær eru skipaðar af Guði; svo að sá, sem veitir vahlsstéUinni mótstöðu, hann veitir Guðs lil- skipun mótstöðu; cn þeii', sem veita mótstöðu, munu lá dom sinn". (Rómverjabrélxð, 1.'!. kafli, l.og 2. '■rs) Ég hygg að erlxit sé að halda þvx fram að í þessu felist ekki einhver pólitflc. Og svo er með boðskap allra þessara félaga að hann getur elclci alltaf talist hlutlaus. Enginn má þó skilja þessi orð mín þannig að ég sé að fordæma öll þessi félög, ég er einungis að benda á tví- skinnunginn í banni skólanna á pólitflc'. -ing. - g frh. al'fors. Sjomanna samningar arplássum er jafnvel algengl að allt að 3 sjómannafélög eða deildir séu starfandi (und- irmenn, vélstjórar og stýri- nxenn). . Svo pukrast forysta hvers félags í sxnu horni, en afleiðingin er vitaskuld sú, að útgerðarmenn komast upp með alls lconar glæpastarfsemi svo sem að borga ekki laun fyrr en eftir margra mánaða stapp og eftirrekstur. Þegar jafn harkalega er vegið að kjörum sjómanna eins og gert er í dag verða þeir að jafna eða leggja til hliðar innri ágreining og sameinast í bar- áttunni gegn útgerðarauðvald- inu, einokunarh.ringjunum f sjávarútvegi og ríkisvaldinu. Endurreisn sjómannafélaganna undir stjórn starfandi sjó- manna er það baráttutæki sem bítur. Sllk félög verða síðan að tengjast á lýðræðislegan hátt, svo þau verði ekki ofur- seld stéttsvikurum og skrif- linnum eins og er í dag. Sjómenn - engin samnings- umboð til Sjómannasam- bandsins. Semjið sjálfir í hverjum landsfjórðungi. Sameinið félögin og rekið út útgerðarmenn og uppkeyptu forystuna. Rvflc 5/9 '76 / I. P. Rauður vettvangur Frá Lesendum Yfirstétt Sovétrikjanna leppur auðvaldsríkjanna Þessa dagana er staddur við Laxá í Dölum aðalforstjóri Pepsi-fyrirtækisins banda ríska, Herra Kendall. Herra Kendall leigir Laxá í Dölum á hverju sumri, nú fyrir um $ 100. 000, en býður með sér þangað ýmsum vinum, sem gegna álfka störfum og hann, t.d. aðalforstjóra Owens-IUi- nois o. fl. Til að gera lesendum Stb. grein fyrir stærð þessara fyrirtækja, má geta þess að velta Pepsi á s. 1. ári var $ 2. 321.423. 000 en Owens- Illinois aðeins minni, það er um $ 2.273.173.000. Bæði fyrirtækin eru umsvifameiri en t. d. Alusuisse, sem á verksmiðjuna í Straumsvík en það velti á s. 1. ári um $ 1.505.589.000, þ.e. um 270 milljarða ísl. kr. Umræddi herra Kendall kom hingað með þotu auðhringsins frá Moskvu, þar sem hann skoðaði verksmiðju(r) auð- hringsins, enda eru um 15 Pepsi verksmiðjur reknar vfða um Austur-Evrópu. I meðfylgjandi grein úr bandarfsku tímariti er sagt frá vígslu Pepsi-verksmiðju í Sovétríkjunum. Til vígslunnar kom stjórnarnefnd Pepsi, frá Bandaríkjunum (takið eftir hverjir eiga sæti f téðri stjórn arnefnd.) og herra Brésneff. A mynd sem fylgir greininni, sésl Kendall bjóða Brésneff Pepsi-flösl-'u, þá fyrstu, sem rússneska verksmiðjan fram- leiddi. Brésneff virðist mjög kátur. Skv. upplýsingum frá um- boðsmanni Kendall hér á landi ætlaði herra Kendall að endur- gjalda Brésneff fvrir fyrir- greiðsiuna. f fyrra stóð til að Brésnelf kæmi í boði Kendalls til að veiða í Laxá f Dölum. Eftir þriggja kluklcustunda bið á Keflavfkurílugvelli, barst Kendall skevti frá Brésneff þess elnis. að úr heimsólcn- inni gæti eklci orðið. Sé þessi saga táknræn fyrir þróunina f Austur-Evrópu, þá virðist yfirstctt þessara landa orðin að leppstétt auðvaldsafl- anna á vesturlöndum. Yfir- stéttin opnar vestrænum auð- hringum aðgang að þæguvinnu- áfli Austur-Evrópu og mörk- uðum, og fær þess f stað gjaf- ir, fyrirgreiðslur og það sem er enn mikilsverðara . . . frið til að halda völdum til að kxiga og arðræna eigin alþýðu. Með baráttukveðjum, lesandi. Stéttabaráttan mun í framtíð- inni í auknum mæli flytja fréttir al' innreið alþjóðlegs auðmagns í A-Evrópu þess vegna á fjöld, stuðnings- manna Alþýðubandaiagsins eft- ir að snúast f lið með KFÍ/ML. Það er stórfelld móðgun við þennan hluta alþýðunnar að ætla sem svo. að hún geri sér ekki grein fyrir rangri stefnu AB. Hann gerir sér fullagrein fyrir þessu, og er núna að leita að raunhæfari stefnu. Hann þarf elclci á háði að halda til að vekja sig úr pólitfskri deyfð; þvert á móti hljóta stuðningsmenn AB og annarra borgaralegra flokka að taka slflct háð lil sín, þannig að til- vitnun AL f Maó á fyllilega við hér. Kommúnistar eiga elcki að draga dár að rangri stefnu til að fá stuðningsmenn hennar til að snúa við henni baki, heldur eiga þeir að "vingast við þá, taka höndum saman við þá, sannfæra þá og hvetja þá til að sækja fram. " Rétt aðferð er að sýna fram á með ljósum rök- um að stefnan sé röng, og boða um leið rétta stefnu - ekki meira. Ef Stéttabaráttan á að vera málsvari verlcalýðs og vinn- andi alþýðu verður hún að tala mál sem vei'lcalýðnum lílcar. Hin félagslega þrosk- aða íslenslca alþýða heimtar eingöngu réttar upplýsingar, rétta rökfærslu, og skýra boðun raunhæfrar stefnu frá Ko*nmúnistaftolcki sínum, -/!>. Frá Neskaupsstað: Enn um skítkast í blaðinu fyrir nokkru birtist bréf frá ungum norðfirðingi, AL, sem ávítti Hjálmtý Heið- dal fyrir orðalag í grein í Stb. Bréfinu var vel tekið af fólki sem las það hér f plássinu, en svariHjálmtýs ekki að sama skapi. Það er ætlan mín að at huga lítilsháttar ástæðurnar fyrir þessu. Kjarni bréfs AL var þessi: "Grein nokkur birtist f 7. tbl Stb. undir fyrirsögninni "Kast- ljós". Þar var lýst með mik- illi hæðni umræðum tveggja alþingismanna, þeirra Lúðvíks Jósepssonar og Gylfa Þ. Gfsla sonar í sjónvarpsþættinum Kastljósi 19. mars sl. Því miður missti ég af umræddum þætti en um greinina get ég sagt að mér fannst hún nauða- ómerkileg. Enginn tilgangur nema að níða mennina og mál- stað þeirra. " Máli sfnu til stuðnings vitnar bréfritari f Maó: "Kommúnistar eiga ekki að smána pólitískt óþroskaða menn og sýna þeim lítilsvirð- ingu. Þeir eiga að vingast við þá, taka höndum saman við þá, sannfæra þá og hvetja þá til að sækja fram." Hjálmtýr þakkar bréfritar- anum í svari sínu, en segir að hann hafi farið á mis við mik- ilvægasta þátt málsins, Lúð- vík og Gylfi séu elcki pólitískt oþroskaðir, þeir séuTuIIveðja fulltrúar borgaralegrar pólitík ur, stéttaróvinir verkalýðsins sem ekki sé hægt að vingasl við, sem ekki megi hlífa. Vitaskuld er þetta hárrétt hjá Hjálmtý - bréfritarinn mis reiknar sig ef hann telur Lúð- vflc og Gylfa pólitískt óþrosk- aða. En samt finnst mörgum bréf þessa unga norðiirðings orð í tíma töluð. "Svoleiðis skítkast á ekki að birtast í svo góðu blaði sem Stéttabaráttan er", sagði bréfritarinn sjálfur við mig. Og hvers vegna urðu menn fyrir vonbrigðum með svar Hjálmtýs ? Nú finnst mér að Hjálmtýr hafi sjálfur farið á mis við mikilvaxgasta þátt málsins. At- hugum nánar: Ilver er tilgang- ur Hjálmtýs með að nota háð í grein sirmi ? AL segir: "Enginn tilgangur nema að níða mennina og málstað þeirra. " Er þetta rétt? Ekki fyllilega. Tilgangur Hjálmtýs er að sjálfsögðu að sannfæra lesendur sfna um að steína þessara manna sé röng og gegn hagsmunum verkalýðs. Hjálmtýr notar háð f þessum tilgangi. Að vísu ekki íram úr hófi; og satt er að dæmuxn um slflct fer ört fækkandi f blað- inu. En bersýnilega ekki nógu ört. Menn eru þess fullminn- ugir að Stb. og önnur rit KS- ML gamla notuðu háð og níð sér til ógagns, og ef Stb. á að hreinsa af sér þetta óorð má ekki gefa á sér höggstað. Vissi lega eru allir hugsandi rnenn sammála um að ASf-forystan sé "uppkeyptur afætulýður á jötu hjá auðvaldinu", en vilja menn endilega sjá þetta orða- lag á prenti ? Mér þykir lfldegt að vinnandi alþýða þessa lands hafi elclci tíma né geð í sér á þessu stigi málsins til að hæða þá menn sem bera ábyrgð á óförum hennar. Kannski er hún erm- þá elcki nógu reið. Kannski verður það aldrei háttur henn- ar að draga dár. Eða kannski er hún þess meðvitandi, að ennþá sé ekki kominn tími til að gera gys að þessum mönn- um og málstað þeirra. fs- lenskur verkalýður f dag hefur ekki gaman af skítkasti, harm vill heldur sýna fyrirlitningu sína með því að snúa baki við þessum mönnum, og þegjandi og einbeittur byggja upp flokk sem svíkur ekki og sigrar þá stefnu sem stéttasamvinnu- mennirnir boða. En hér með er ekki öll sagan sögð. Að vísu er stefna Al- þýðubandalagsins og annarra fulltrúa kratismans einslcis nema háðs virði. Einmitt Bók til sölu Ritneínd Stéttabaráttunnar hefur borist að gjöf eintak af Sögu Kommúnistaflokks Ráð- stjórnarríkjanna (bolsévik- anna) sem gefin var út 1949. Sá sem bókina gaf hafði keypt hana á fornsölu á 2000 krónur og fylgdi gjöfinni það skilyrði að hún yrði boðin til sölu í Stéttabaráttunni og söluverð- mæti hennar rynni í útgáfu- sjóð blaðsins. Bókin er mjög vel með farin, bundin inn í leðurlflci með gylltum áletrunum á kjöl og kápu. Við tökum ekki við lægra til- boði en 2500 krónum. Hér er kjörið tækifæri til að styrkja útgáfu blaðsins og eignast um leið sjaldgæfan kjörgrip - og pólitískt séð sennilega eina bestu bók sem ícomið hefur út á Islensku. Settu þig í samband við Rauðu Rtjörnuna, Lindargötu 15, og við höfum svo samband við þig ef þínu tilboði er tekið. Iþróttaæfingar Reykjavflcurdeild Kommúnista- flokks íslands m-1 hefur tekið að leigu Iþróttahús Jóns Þor- steinssonar á sunnudögum milli kl. 14 og 16. Er ætlunin að iðlca þar létta leikfimi og boltaleiki I vetur. Æfinga- taflan verður þannig að allir geta tekið þátt í æfingunum án tillits til aldurs. Af bolta- leikjum verður blak sennilega mest iðkað f hæfilegu blandi af körfubolta. Við munum setja vináttu og skémmtun í fyrirrúm keppni. Af og til verður hluta tímans varið til pólitfskra umræðna þar sem rædd verða tengsl íþrótta og stéttabaráttu, sósíalísk við- horf til fþrótta osfr. Við viljum hvetja alla félaga og btuðningsmenn flolcksins til að koma. Þáttökugjaldi verður stillt f hóf, en þvf fleiri sem lcoma - þess minna á mann. Mætið lcl. 14 stundvíslega nk. sunnudag og takið með ykkur leikfimiföt og handklæði. Uppspretta lyganna Ýmis blöð, allt frá Tfmanum til Neista, eru af og til að birta greinar þar sem utan- rflcisstefna Kína er fordæmd. Lagsbræður Tímans og Neista út um allan heim gera hið sama - og allsstaðar kveður við svipaðan tón. Þau atriði sem þykja að- finnsluverð f stefnu Kína eru yfirleitt þau sömu - og það er ekkei’t undrunarefni þegar þess er gætt að það er sama uppspretta sem blöðin saakja vislcu sína f. Nefnilega frétta- stofur sósíalheimsvaldasinn- anna í Moslcvu. í nýlegu frétta. skeyti frá APN er gott sýnis- horn af því efni sem birtist í ýmsum myndum víða um heim: "Pelcingstjórnin er ekki að- eins fylgjandi hernaðarlegri nærveru Bandaríkjanna í Asfu, áframhaldandi hernaðar- bækistöðvum Bandaríkjaxma á meginlandi Asíu og Indlands- hafi, maóistar afhjúpuðu sig algerlega í sambandi við at- burðina í Angóla, er þeirstóðu við hlið CLA-málaliða og kyn- þáttalcúgara frá Suður-Afrflcu. Allir sómakærir menn eru sárreiðir yfir stuðningi Peking stjórnarinnar við hina blóðugu fasistastjórn í Chile og vegna margra annarra atriða í stefnu máóistaleiðtoganna" (APN nr. 161 , 19. 8. '76). Kannast lesendur ekki við tóninn ? Grettir

x

Stéttabaráttan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stéttabaráttan
https://timarit.is/publication/344

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.