Verklýðsblaðið - 15.12.1931, Blaðsíða 3
Sveinn Sigurjónsson & Co.
Sími 554. Vesturgötu 18. Sími 554.
Allskonar málningarvarur
hvergi betri né ódýrari. — „Relieffarvi11, „silkistövu, „glasdemantinu o. fl. þessháttar.
Einnig fæst öll vinna á sama stað. — Síðasta tækifæri að fá málaðar mublur fyrir jól.
kl. 10—111/2 og 41/2—6.
HÖFUM FENGIÐ:
Norskar kartöflur, úrvals vara (nokkra poka).
Heill og malaður Maís (la Flata). Strau-
sykur og Molasykur (Prager).
Beztu kaup við skipshlið í dag.
Selt aðeins til verzlimarrekenda.
Verðið lágt!
Bílstöðin „Bíllinn11
Laugaveg 26
hefir ávalt til leigu ódýrasta bíla, og áreiðanlega
bílstjóra.
Sími 1954.
•*<•••••••••••••••••
Húsgagnavinnustofan
Valíapsfpaeii 4 (Bjöpnsbakapi)
býr til allskonar stoppuð húsgögn með
mjög sanngjörnu verði,
Tekur einnig stoppuð húsgögn til aðgerðar
Vönduð vinna! - Fljói afgpeiðsla!
Meyvanf Jónsson
húsgagnasmiðup.
••••■••••■••••••••••••••
I
Jóla-útsalan
heldur áfram.
Ódýrustu kápur í bænum, svartar, bláar,
brúnar, grænar og rauðar. — Loðkápur og
, peysufatakápur. — Allir kjólar eiga að seljast,
verð frá 10—50 kr. — Ávalt fyrirliggjandi ein-
lit itápuefni og skinn á kápur. — Nýkomin
skinn á bílstjórajakka.
Notið tækifærið fyrir jólin.
Sig. Guðmundsson
Þingholtsstræti 1.
fullyrðum að lífskjör hans séu mörgum sinnum
betri en þekkist meðal íslenzkrar alþýðu.
í Sovétríkjunum er framleiðslan bundin
íöstu skipulagi. Hin risavaxna fimmáraáætlun,
sem borgararnir og sósíaldemókratarnir töldu
firru eina og spáðu að yrði sovétfyrirkomulag-
inu að falli, verður nú áreiðanlega framkvæmd
að fullu á fjórum árum og er þegar fram-
kvæmd í mikilvægustu greinum framleiðslunn-
ar á þremur árum og jafnvel á enn skemmri
tíma. Nú er svo komið að mörg auðvaldsríki
eru að reyna að skipuleggja framleiðslu sína á
líkan hátt að ráði sósíaldemókrata. En slík
áætlun er ekki framkvæmanleg þar sem auð-
valdið ríkir, og verður jafnvel til þess að auka
enn meir andsæður þess skipulags.
Menningarframfarir í Sovétríkjunum eru
stórkostlegar á öllum sviðum. Nú eru fáir,
jafnvei meðal gamalmenna, sem ekki eru læsir
og skrifandi. Almennri sjö ára skólaskyldn
verður að fullu koniið á í lok þessa árs. Auk
þess er hverjum verkamanni gefinn kostur
á æðri verklegri og bóklegri menntun. Nem-
endur fá alla kennslu ókeypis og fá námsstyrk
svo háan, að fullkomlega nægir til lífsviður-
væris.
Við allar verksmiðjur eru byggð funda- og
samkomuhús, og í sambandi við þau kvik-
mynda- og leikhús. Bókasöfn og lessalir eru
í öllum þessum húsum. Hér dvelja verkamenn
í frístundum sínum og er félagslíf þeirra öll-
um til fyrirmyndar. Ríkið ver stórfé árlega til
slíkra bygginga víðsvegar um landið. Á íslandi
er fræðslumálakerfinu mjög svo ábótavant,
lítið sem ekkert gert til þess að veita alþýð-
unni nauðsynlega menntun, og nám við æðri
skóla ókleift fyrir fátækari stétt verkamanna.
Alþýðan í Sovétlýðveldunum hefir ekki að-
eins losað sig undan arðráni hinnar innlendii
borgarastéttar, heldur hefir henni einnig tek-
izt að gera land sitt óháð arðráni hins alþjóð-
lega auðmagns meðan íslenzk alþýða enn styn-
ur undir tvöföldu oki hins innlenda og er-
lenda auðmagns.
Félagar! Alt þetta hefir ykkur tekist vegna
þess að þið hafið undir forustu Kommúnista-
flokksins sigrað borgarana með byltingu og
tekið völdin í ykkar hendur. Við höfum kom-
izt að raun um að alræði öreiganna er ekkí
orðin tóm, heldur veruleiki, að hér ríkir verka-
lýðurinn og fátækir bændui-, undir forustu
Kommúnistaflokksins, sem framkvæmir vilja
alþýðunnar. Verkalýðurinn veit, að hann vinn-
ur fyrir sjálfan sig, skipar sér í áhugalið, sem
myndar hið frumlega kerfi sósíalistiskrar sam-
keppni um land allt.
Félagar! Við erum sannfærðir um að þið
hafið nú þegar lagt traustan grundvöll að sós-
íalismanum, sem er leiðin að lokatakmarki
baráttu okkar kommúnismanum. Þetta veit
alheimsauðvaldið og reynir þessvegna á allan
hátt að leyna sanrdeikanum um yfirburði hins
nýja skipulags, fyrir verkalýðnum. Breiðir út
hinar svívirðilegustu lygar og .hervæðist af al-
efli geg-n hinu unga verklýðsríki.
Lygarnar um Sovétríkin eru sagðar í þeim
tilgangi að tæla verkalýðinn til þátttöku í
hinni fyrirhuguðu innrás auðvaldsherjanna í
Sovét-Rússland.
Sósíaldemókratar styðja auðvaldið í þessum
stríðsundirbúningi, bæði beinlínis eins og
menséwikka réttarhöldin í vor afhjúpuðu og á-
beinlínis með því að taka þátt í rógburðinum
og blaðalygunum um Sovétríkin.
íslenzku sósíaldemókratamir eiga sinn þátt
í þessu. Sum blöð þeirra hafa flutt óhróðurs-
sögur um þau og önnur hafa samþykkt lyg-
arnar með þögn sinni.
Félagar! Við munum er heim kemur gera
allt sem í okkar valdi stendur til þess að út-
breiða sannleikann um Sovétríkin og hnekkja
öllum lygum um þau. Við vitum að eining
verkalýðsins undir forustu Kommúnistaflokks-
ins, er skilyrði fyrir sigri sósíalismans, og að
stríð gegn Sovétríkj unum er stríð gegn ör-
eigalýð alheimsins.
Lifi Sovétlýðveldin rússnesku.
Lifi alræði öreiganna.
Lifi heimsbyltingin.
Gísli Sigurðsson, Siglufirði.
Jón Jónsson, Bjarnastöðum, Mývatnssveit.
Kristján Júlíusson, Húsavík.
Baldvin Björnsson, Vestmannaeyjum.
Elín Guðmundsdóttir, Reykjavík.
Þórður Benediktsson, Vestmannaeyjum.
ísleifur Sigurjónsson, Reykjavík.
Kjartan Jóhannsson, Reykjavík.
Jens Hólmgeirsson, Tungu, ísafirði.
Marteinn Björnsson, Reykjavík.