Spegillinn - 01.04.1927, Blaðsíða 10

Spegillinn - 01.04.1927, Blaðsíða 10
30 SPEGILLINN Hliur IIIMÍDÍ! Berið saman bragðið á „Smára“-smjörlíkinu og öðru smjörlíki og þjer munuð sannfærast um a. 5jóaramdl (ef mál skylöi kalla). Utanfararstyrkur. Góð ráð. þá þarft að bregða þjer út bráðlega, þá verður þú að ákveða verkefni þitt sem fyrst og ástœðu til styrkbeiðni — t. cl. eplarækt hjer, mundi tryg-gja þjer 2500 kr. utanfarar- styrk meö gians. *** b. Tímamál. Hýbýlamálið. að „Smárinn" er smjöri líkastur. Prjónavjelar og Saumavjelar bestar og ódýrastar hjá Sambandi ísl. samvinnufjelaga. Ritstjórar: Páll Skúlason. Sig. Guðmundsson. Tryggvi Magnússon. ísafoldarprentsmiðja h.f. Þar eð jeg lengi hafði ætlað mjer að sækja um styrk til utanfarar, en var ekki klókur í, livaö jeg ætti að hafa sem ástfeðu, er jeg sækti um styrkinn, þá fór jeg til kunningja míns, sem er útfarinn í að biðja um þess konar, og bað hann gefa mjer ráð. Hann gaf mjer margar góðar bendingar, og öðrum til leið-beiningar, sem utan þurfa að fara með styrk, vil jeg telja upp nokkrar ástæður, sem bregða má fyrir sig: Að rann- saka hvers vegna rúðugler verður grænt með aldrinum; að koma upp steinsteypuhúsum á 48 klukkustundum; að athuga notkun á nýju sjálfsmvrjandi áhaldi fyrir úrverk í kirkj- um- að læra að leika á saxófón ; að kynnast nýjum strokk, sem farið er að nota á San Domingo; að læra að skera úr krækling eftir nýrri aöferö, að forðast berkla í gömlum bókum og hvernig bókasöfn eru sótthreinsuð; að læra að búa til liárvax; að færa sjer rottuhala í nyt; að vinna neftóbak úr göml- um klútum o. fl. o. fl. 2000 kr. styrkur er liárviss fyrir hvern ]>essara jwsta, sagði vin- ur minn. og bætti við: Þegar þú kemur út, áttu ekki að ganga fyrir hvern mann og spyrja og sýna þig aula upp á föðurlandsins reikning, heldur áttu að leigja þjer herbergi hjá einhverri fjölskyldu og kaupa þjer hin helstu blöð og leita í þeim að því sem þú þarft að vita, leggja það út og fljetta inn í þetta eitthvað, sem lætur vel í eyrum manna þegar þú ferð að lesa það upp á fundum heima eða gefur skýrslu um ferðina. Ef þú hagar því þannig og spyrð að engu og engan á ferðinni, þá fríast þú við að láta Ijúga þig fullan og bera það á borð fyrir landa þína, er lieim kemur. Þessi aðferð hefur gefist mjer best, bætti vinur minn \uð, og liana skaltu nota, og ef Nýlega var fundur haldinn í Sauðagerði til þess að ræða Nýbýlamálið. Mættir voru Jónas og Tryggvi og ýmsir fleiri, er áliuga hafa fyrir því máli. Svohljóðandi tillaga samþylrt með öllum atkvæðum: „Fxmdurinn skorar á Alþingi að vcita svo ríflegan styrk sem hægt er til þess að koma upp nýbýlum, helst svo að nýbýli gætu m.yndast á næstu árum á liverri ábýlisjörð landsins' ‘. G r e i n a r g e r ð : Með því að reynslan hefur sýnt og allir eru sammála um, að síðustu áratugina hefur fólkið dregist. svo mjög úr sveitunum til kaupstaðanna, að allviða munu nú ekki vera eftir nema 2—3 hræður á bæ, þykir full- sannað, að fólkiö geti ekki unað í gömlu býlunum. Sýnist því ekki vera annað fyrir hendi, ef sveitir landsins eiga ekki að tœm- ast af fólki, en leggja gömlu býlin í eyði og stofna nýbýli. Má þá elcki telja ósennilegt, heldur öllu frekar líklegt, að nýungin hefði þau áhrif, að menn yndu betur en áður hag sínum við ræktun landsins, að minsta kosti fyrst um sinn, og' mætti þá fitja upp á ný, er staðurinn væri orðinn þeim leiður.

x

Spegillinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.