Spegillinn - 30.06.1944, Blaðsíða 3
XIX. 13. SPEGILLINN
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii!iiiiiiiiiiiiiliiiiiiiiiiiliiiiiiiiiiiliiiiiliiliiiiiiiiiiiiiiiiiiM(iiiiiiiiiiiiiiiii-<iiiiiiiiiir ............................................................
EFTBM SLAGSNN
Allii' sannir íslendingar eru — sem slík-
ir — glaðir í anda þessa dagana yfir hinu
nýstofnaða lýðveldi voru, enda þótt gleðin
sé ef til vill ekki byggð á sömu forsendum
hjá öllum. Sumir fagna því að geta nú farið
að rífast aftur, því að eins og skiljanlegt er,
hefur ekki öllum liðið jafnvel i friðarengils-
hamnum, þótt þeir annars bæru hann með
sóma meðan þess var krafizt og þjóðin mátti
hreint ekki eiga meira en eina sál; ekki einu-
sinni aðra til skiptanna eftir lýðveldisrign-
inguna þann 17. .júní. Aðrir fagna því, að
hinum erfiða undirbúningi skuli nú vera lok-
ið og að mcnn skuli aftur geta hlustað á sitt
vandaða útvarpstæki án þess að heyra, að
hin og þessi svindilfélög séu eindregið með
stofnun lýðvcldis ekki síðar en 17. júní, en
satt að segja var þetta atriði eitt hið mæðu-
samasta í undirbúningi og fór snöggt um
verr með eyrun og sálina en meðalþungi
dilka hafði áður gert í útvarpinu. Og þannig
mætti halda áfram að telja, en mest er um
vert, að flestir ef ekki allir nkuli vera fegnir.
Það verður heldur ekki annað sagt en
stofnunin hafi tekizt með hinum mestu ágæt-
um, þrátt fyrir ytri aðstæðurnar hans Hjörv-
ars (hann sjálfan innifalinn). Að minnsta
kosti hefur þótt ástæða til að endurtaka at-
höfnina í útvarpjnu, og tókst prýðilega; sér-
staklega kornu bilanirnar og truflanirnar
elnkar eðlilega út. Þessi endurtekning mun
annars mest hafa verið til þess gerð að sanna
hinn rnikla þátt útvarpsins í hátíðahöldunum
og árétta þannig svart á hvítu útvarpsstjóra-
bréf, er gefið var út um það efni, skömmu
eftir hátíðina, þegar blöðin ætluðu að verða
samtaka um að hundsa þessa ágætu stofnun.
Síðan lýðveldið var stofnað, hefur rílds-
sími vor haft nóg að gera að flytja oss heilla-
óskir og það frá hinum ótrúlegustu hornum
heims. Bera skeyti þessi með sér, að annað-
hvort eru sendendurnir hreinustu maraþons-
hræsnarar eða vér þá einhver mesta önd-
vegisþjóð heimsins, og mun það síðara sanni
nær, enda hafa spakir menn spáð því, að vér
eigum eftir að frelsa heiminn, og má bæta
því við frá voru eigin brjósti, að vér munum
eiga það lengi eftir. Að minnsta kosti bendir
það til síðari skýringarinnar, hversu menn
af hinum ólíkustu þjóðum geta verið sam-
mála um þetta, og í öllu falli má alltaf halda
svo lengi áfram, að vér látum sannfærast,
og er það vel. Einnig hafa Forseta vorum
borizt heillaóskaskeyti víðsvegar að og ber
þar hæst á tveimur, öðru frá Roosevelt koll-
ega hans cg hinu frá íbúum Bessastaða-
hrepps. Er hið síðara einkum eftirtektar-
vert og bendir á höfðingsskap þann, er leyn-
ist með þjóð vorri og getur komið fram þeg-
ar við á, svo sem í þetta sinn hjá Álftnesing-
Jivegar
|
Egill Arnason j
Hafnarh úsinu, Reykjavík
Sími 4310
Húsgögn
HÚSOÖGN, ýrmar rjorðir,
ÐÚSÁHDLD
Héðinshöfði h.f.
AOahlrnli 6. B
107