Spegillinn - 30.06.1944, Page 4

Spegillinn - 30.06.1944, Page 4
SPEGILLINN XIX. 13. iiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiii, Iiiii,iiihiiii,i, iiuum, HHiHimmNWMUJuuimuui, minMMiur, 1,1,,, imimi, tiiiti«iiiiiiiiiiiiiiitmiiiiiiiiiiiiiiiitiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiimiiiiiiiiiu<iiiiiiiiimimiimiiimiiiiiiiiimMiiitiii>.im* H Benedihh'or & Co Reykjavik <$; iídtru'Qímti, Aðalumboðsmaður fyi-ir Island: ólafur Einarsson vélfræðingur. Sími 4340. Paopirsvörur Rilföng Bókhaldsbækur Verzlunin Björn l< risfjánsson Pappiridalld um, sem geta ekki einusinni lagt útsvar á íorsetann, þrátt fyrir hans allrahæsta resí- dens i hreppnum. Ættu fleiri hreppar að taka sér þetta til fyrirmyndar, ef þeir hýsa einhverja öndvegismenn þjóðarinnar og að niinnsta kosti senda þeim fallegt skeyti með útsvarsseðlinum. Að morgni hins nýja lýðveldis eru menn að vonum stórhuga og hyggja á miklar fram- kvæmdir. Hið helzta í þessa átt mun hin höfðinglega „morgungjöf" Alþingis til lýð- veldisins, en hún er þrjár milljónir króna, til þess að reisa forngripasafn. Sumir eru svo illgjarnir að kalla þetta eigingirni og segja, að þingið sé að tryggja sjálfu sér elli- hcimili, en vitanlega er þetta ekki annað en argasti rógur. Þá má og telja í þessari röð hinn stórmerka landgræðslusjóð, sem hefur nýlega fengið skautbúning að gjöf, og er hann nú boðinn til sölu á opnum markaði og verður seldur fyrir hæsta viðunanlegt boð. Ekki mun skautbúningurinn enn vera geng- inn út og eru menn jafnvel farnir að hallast að þeirri skoðun, að vænlegra væri að láta kvenmann innan í hann, til þess að örva markaðinn. Þó er ekki vitað, hvern bvr sú tillaga fær. Yfirleitt má segja, að þessi lýðveldisstofn- un hafi tekizt vel eftir atvikum og hver veit nema það eigi eftir að sannast, sem lesa má milli línanna í sumum heillaskeytunum, að vér séum allra bezta lýðveldi, af lýðveldi að vera. 'Enginn ætti að sitja sig úr færi með að sjá sýninguna, sem nú er opin í Menntaskól- anum í Reykjavík og heitir „Frelsi og Menn- ing“. Sýningin er, eins og forráðamenn henn- ar taka fram, svipmyndir úr sögu landsins,, allt frá því er Paparnir komu hingað til þess að verða ekki fyrir spjöllum í messunni af völdum innlendra og erlendra ránsmanna og bandítta og þangað til Hjörvar var hundvot- ur að reyna að lýsa lýðveldinu hinn 17. júní síðastliðinn. Sýninguna þarf að skoða vand- lega. til þess að geta haft hennar full not, og helzt þarf að rifja upp fyrir sér fslendinga sögu og fornbókmenntirnar áður en farið er að skoða hana. Gagnið af henni verður jiví okki tekið með sitjandi sælunni. Hér verður vitanlega ekki drepið á nema lítið eitt af öllu því, sem þarna er að sjá. í fyrstu stofunni eru nokkrar af hinum al- kunnu mannamyndum Kjarvals og sanna glögglega, að „norræni stofninn", sem vér erum stundum að guma af, er ekki einvaldur með þjóð vorri, heldur má með sanni segja, að vér erutn allra þjóða kvikindi, og stönd- um þar sízt að baki sauðfjár- og hundakyni voru, en þeim hefur báðum lengi verið við brugðið fyrir mikla og óskipulega blöndun. Er þá skiljanlegra og fyrirgéfanlegra en áð- 108

x

Spegillinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.