Spegillinn - 30.06.1944, Síða 5
XIX. 13.
iMiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii|iiii|iiiii|||||||||||||||l,|l|||, ni„n, „iinmimiiiiuiiiiiMHHnumiiutmmMmmmuimnmmmmmmi
Landgræðslusjóði
gefinn skaulbún-
ingur
ur, hversvegna vér erum svo ósammála sem
raun er á og þurfum alltaf að hafa „einn
mann úr hverjum flokki“ um alla skapaða
hluti, sem framkvæma skal.
Þarna eru og margar sannanir þess, sem
allir vita, að sagan endurtekur sig. Sýnd er
sendiför Þórarins Nefjólfssonar, er hann
vildi fá Grímsey fyrir flugvöll handa Ólafi
konungi hinum digra, en sú för minnir á
sendiförina, sem Hitler gerði út hingað þús-
und árum síðar og með betra árangri, þótt
einnig hann fengi afsvar á pappírnum. Allir
þeir, sem séð hafa gestabækur hinna ýmsu
gististaða landsins, munu hafa gaman af því
að sjá þarna blaðsíðu úr gestabókinni frá
Reichenau við Bodenvatn, en þar hefur ver-
ið hópur íslendinga á ferðinni á 12. öld,
sennilega í einskonar farfuglatúr í páfagarð,
til þess að fá aflausn fyrir hegðunina í sigl-
ingunni. Er einkum eftirtektarvert, hversu
réttritunin er á svipuðu stigi á báðum þess-
um tímabilum. Einnig eru þarna myndir af
nokkrum giftum mönnum í siglingu, en slíkt
myndi ekki líðast nú á tímum, og er þó
myndatæknin á hærra stigi nú en þá var.
Síðan heldur sagan áfram, stig af stigi.
Þarna cr rnynd af innréttingarhúsunum í
Reykjavik, en hinsvegar engin af Gefjun og
Álafossi og er það mikill bagi. Einnig má
sjá þarna garnla reizlu frá einokunartímun-
um, eins og þeir notuðu til að vigta af lands-
mönnum með, í skjóli þess, að þá var lög-
gildingarstofan enn ekki komin á fót. Sér-
stök sýning er helguð Jóni Sigurðssyni, þar
sem sltrifborðið hans og fleiri munir eru
sýndir, svo og þokumynd af Þjóðfundinum,
sem þó er ekki af Þjóðfundinum, að því er
Moggi lcollega upplýsir.
Það væri ógerningur að rekja sýninguna
rækilega, jafnvel þótt næstu blöð vor yrðu
alveg undirlögð til þeirra hluta, en þessar
línur eru aðeíns til þess að benda mönnum
á að skoða hana og skoða hana vél.
í lok máls síns scgir nefndin, að síðan ís-
lendingar urðu sjálfstæðir, hafi þeir gert
þúsund axarsköft. Athugandi væi'i, hvort
ckki mætti leggja vísitölu þar ofan á.
JJandalay íslenzkra Stúdenta hefur nýle.a'a verið
stofnað og' hefur kosið sér stjórn. Ekki mun enn
ákveðið, hvað það eigi að gera fleira.
Hámarksverð hefur nýlega verið sett á líkkistur,
og mun eig'a að vera spor i áttina til þess að lækka
hinn óhóflega jarðarfarakostnað. Hefur verðlag'S-
nefndin sýnilcga verið hrædd uni, að viðskiptamenn
hennar myndu leg'g'ja i óþarfa kostnað, ef það skyldi
korna í þeirra hlut að jarða hana.
SPEGILLINN
11111111111111111111111111111111111111111111111111111111 ■ 111111111111111 ■ i ii
ÁVAÍJ/T NÝJASTA
TÍZKA TR t
LÁRUSI
109