Spegillinn - 30.06.1944, Síða 7
XIX. 13.
SPEGILLINN
lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll»ll*:illlllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll
Úður ástandsins
„Mikill er máttur andskotans“ varð ferða-
lang einum að orði úti fyrir KRON í gær-
morgun. Þarna stóð þriflegur ungmeyjahóp-
ur eins og síld í tunnu utan við bókabúðina
og náði mergðin að Laugavegi öðrum megin,
en út á miðja Hverfisgötu hinum megin. —
Störðu þær allar ástaraugum á amerísk leik-
arablöð í gluggunum. „Ertu ekki að verða of
sein í skólann“, sagði leggjamjó, bláfrosin
búðarstúlka við hávaxna, svarthærða ungl-
gott til þess að vita, er ungir menn og áhuga-
samir fá góðar hugmyndir og þora að koma
fram með þær, því að engin hætta er á því,
að bæjaryfirvöldin láti þá komast upp með
neitt feigðarflan, sem geti minnt um of á
framfarir, enda er ekki nema rétt, að hið
unga lýðveldi vort og þá einkum höfuðborg
þess sjái fótum sínum forráð.
Þjóðviljinn er nýlega eitthvað að tala um,
að síldarsala landsmanna hafi nú verið af-
hent bröskurum. Sízt hefði ég búizt við að
heyra úr því horni, að hingað til hefði hún
verið í höndum einhverra guðsbarna, en
betra er seint en aldrei að vita það. Annars
er mér svo sem sama, hverjir braska með
síldina — hún er heldur auðvirðilegur mat-
ur, hvernig sem henni er velt og snúið.
Sennilega er það eitthvað í sambandi við
hið nýstofnaða lýðveldi vort, að hvalir hafa
hlaupið á land í Gilsfirði, en blöðin segja, að
það sé einsdæmi. Voru þetta háhyrningar,
5—10 metra langir. Er gott til þess að vita,
að oss berast svo frumleg samúðarskeyti,
sem eru eitthvað áþreifanlegri en orða-
skvaldrið.
Það mun gleðja alla Frámsóknarmenn, að
nú mun verða bílfært til Krísuvíkur í næsta
mánuði, og mun þess þá ekki langt að bíða,
að menn geti farið um Hafnarfjörð austur í
Ölfus. Er þetta einkar þægilegt fyrir þá, sem
hafa fengið ofstóran benzínskammt, og svo
trúi ég vegurinn kosti ekki neitt — eða svo
til.
Menn hafa undanfarið gert mikið veður
út af forsetakosningunni á Þingvöllum og er
meira að segja helzt að sjá, að ýmsir að-
standendur hennar hafi hálfgert samvizku-
bit út af henni. Þessa má hugga með því, að
kosningin var í öllu lögleg og forsetinn fékk
meira að segja fjórum atkvæðum ofmikið,
eða að minnsta kosti til óþarfa. Stundum
hafa þingmenn komizt að á einu vafaatkvæði
og engum þótt mikið.
ingsstelpu, málgefna mjög. „Það gerir ekk-
ert — ég skrópa bara úr fyrsta tímanum. Ég
er nú búin að standa hérna síðan klukkan
sex í morgun til þess að ná í sex appílin mín.
Ó! þeir eru svo yndislegir Kanarnir. Það
klæðir þá svo vel að tyggja gúmmið sitt og
skjóta með þessum himnesku augum. Ég sá
barn með Ameríkukrakka í gær, en hvað það
var sætt. Það er alveg satt, sem hún sagði
hún Thorsteinsson, sem hann Kalli ísfeld var
að skandalisera á í Alþýðublaðinu, íslenzkar
stúlkur eiga að giftast Könum til að bæta
kynið, þær kváðu líka bíða tvö hundruð eftir
skipsferð vestur núna. Ég öfunda þær, en
verð víst að ljúka skólanum fyrst“.
Rétt hjá Mentó rakst ég á sleikivörubúð
í fullum gangi. Er hún kappsamlega sótt af
pelabörnum skólanna í grennd. „Það er eng-
inn vandi að egna fyrir þessi grey“, sagði
búðarlokan með fyrirlitningu. „Þau gleypa
hvað sem er, ef sætabragð er af því. Sálin er
ekki alltaf stór, þótt skrokkarnir séu það
stundum“.
Ástandið notar líka epli og súkkulaði í
beitu og veiðir vel. Þær bíta gráðugt á, enda
ekki amalegt að láta gyllta hnappa faðma
sig og gulan bíl sækja sig á braggaball á
kvöldin. Eftir vinnutíma má þekkja ástands-
húsin á kvennabílunum hersins úti fyrir. Á
morgnana hafa vinnukonurnar timburmenn
og það bitnar á húsverkunum. „Við getum
ekki verið þekktar fyrir að vera í vist í sum-
ar“, segja þær með lítilsvirðingu, þegar vor-
ilmurinn fer að kitla þær í brjóstin. Lífið er
ólíkt göfugra í búð eða á knæpu. Og nýja
silkisokka þarf ég daglega — það er ekkert
að marka þó að frúrnar noti sína lengur,
þær eru útgengnar hvort sem er“.
Ecjcjert gosi.
er bezta skemmtibókin.
s.
0)
Ö C
~o C)
S •=
>. .2
fií V
O aj
-Q. >
c
ö o
» c
2 S
H
H
(II
BKg H
m h
m h
m
m
40 tö
ö X
v.
ig
!2 5
s-
JQ- u
3
u «5
i s
8 »
% <U
u E
° ö
m <4-
<U C
sx x
Aðaljón.
111