Spegillinn - 01.07.1955, Page 5

Spegillinn - 01.07.1955, Page 5
spégilLíNN 149 Brá'Sum kemur blessu‘8 sólin blaóskellandi á Noróurpólinn, gœgist þar í gegnum skýin, geislum baðar fold og mar skötnum til gagns og skemmtunar. Og þá er ekki aó því að spyrja ná þykjast allir vera «S byrja «S búa sig undir sumarfríin. Og /;«S finnst tnér einna athyglisverSast, «S allir vir'ðast þurfa aS ferðast einhver lifandis skelfingar bölvuð býsn, því það þykir nauðsynlegt nú á dögutn, aS fólk sé sem mest á ferðalögum, til aS svala allskonar fróðleiksfýsn. Og ríku tnennirnir rjúka upp til fóta og handa, og taka sér far tneS flugvél til suðrœnna landa, en aðrir láta sér nœgja Norðurlöndin. Þeir fara «S hitta frœndur og vini af fornnorrænu úrvalskyni og treysta sjálfir aS sínu leyti samnorrœnu kœrleiksböndin. En þar fyrir utan i'ókar svo fólkið tnjög ýmiskonar og alla vega innanlandsferftalög. Og það er hvorttveggja, aS hér er lítið utn láglendið, enda ferftast fólkift langmest um hálendið. (Það býr sig út tneð nesti og nýja skó, — nestið er aðallega keypt inni í Ríki, en sumir eru svo hyggnir aS hafa þó handsápustykki, Ijósmyndavél og kíki. Og síðan er setti sé láglendið kvatt tneS kurt og keyrt í loftinu burt, og hvurt? — ÞaS er nú einmitt þaS, sem ég œtlafti aö segja). Nú skulutn við hugsa okkur skrifstofu eina, — Það skiptir ekki máli, hver hún er, enda kotna þœr allflestar til greina. Og hugsum oss svo aS bleikar og fölar blœkurnar bregði sér einhvern daginn í sumarfrí, kaupi sér skó og fari í betri brœkurnar, og í bílinn meS þaft satna. (Fyrirgefið, ég gleymdi aS segja frá því, aS í hópnum eru hátt upp í tuttugu manns, skrifstofustjórinn sjálfur meS konu og krakkafans og kerlingarálkan hún tengdamóðir hans, og fulltrúinn, — hann er hálfur, óbreyttar blækur átta alltaf aS rífast og þrátta, og vitanlega vélritunardaman). En nú er ekki annara kosta völ en keyra eins og andskotinn alla leið norður á Kjöl. A Hveravöllum hefði ég svo haldið, að hópurinn næmi staðar og reisti tjaldið. Síðan er kannski horft oní heitan pytt, og lauslega skoðað landslagið og hitt. Að því búnu er fjallgangan fyrirhuguð og farið hægt á stað, því að fólkið er auðvitað óvant göngu og ekki nóg með það, heldur er sumt af því halt og bjagað og hörmulega illa lagað til slíkra og þvílíkra fjallaferða. Hjá feitustu konunum œtlar að verða svakalegt svitabað. Að lokutn komast þó allir upp á einhvern blessaðan tind, og þar er horft í kíkinn og kannski tekin mynd.

x

Spegillinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.