Spegillinn - 01.07.1955, Blaðsíða 12

Spegillinn - 01.07.1955, Blaðsíða 12
156 SPEGILLINN BÆJARRÁÐ REYKJAVÍKUR vill nú allt í einu hraða breikk- un Aðalstrætis, sem allra mest, en ætlunin mun vera að láta það sameinast Tjarnargötunni og verða 44 metrar á breidd. Eigi er vitað, hvað veldur þessu snögg- lega óðagoti ráðsins, sem hingað til hefur frekar þótt líkjast Sýrak með seinlætið, en getið er þess til, að það hafi fengið hnippingu frá hæstu stöðum um það, að göngu- lag gestanna, sem kom úr stjóm- arkokkteilum í Tjarnargötu 32, krefjist aukinns slagrúms. SKÁLHOLTSNEFND hefur auglýst eftir hátíðaljóðum til að syngja og lesa á 900 ára afmæli biskupsstólsins, næsta ár, og verða hæstu verðlaunin 15 þúsund krónur, en eigi er enn vitað, hvort þetta er með eða án vísitölu. Auk þess áskilur nefndin sér útgáfurétt á öllum leirnum, sem berast kann. án þess að verðlaun hljóti. Mörgum finnst þetta síðastnefnda benda til þess að nefndin viti ekki hvað hún gerir, en vér hyggjum, að þarna ætli hún einmitt að vera glúrin og hyggist geyma lakari kvæðin þangað til Hólastóll fer að júbílera. FRJÁLS ÞJÓÐ var með einhverjar dylgjur um það, kring um miðjan sl. mánuð, að benzínverð í landinu væri í þann veginn að hækka upp í 3 krónur líterinn, sem verður að teljast rausnarlegt, ef satt reynist. I bili getum vér hvorki játað þessu né neitað, en heyrt höfum vér, að Eysteinn hafi vaknað einn morgunin með fjárkláða í vinstri lófa, og allir vita, hvað það þýðir. Nú er bara eftir að vita, hvort eigendur bíla og heimilisdráttarvéla hafa vaknað þennan sama morgun með kláða í hægri lófa, en það þjðir aukin útgjöld, sem kunnugt er. ALÞÝÐUBLAÐIÐ getur þess með nokkrum trega, að rússnesk-tékkneska sýningin í Miðbæjarskólanum verði óupplýst, og kennir þetta verkfalli rafvirkja, sem þó varð æði skammvinnt. Vér hyggjum rafvirkjana vera saklausa af þessu, eða svo til. Engum dettur væntanlega í hug að fara að kenna þeim þótt erindi Ólafs Thórs til útlanda fyrir skömmu sé — og verði — óupplýst. BÓKASÝNING hefur verið opin hér í höfuðstaðnum undanfarnar vikur, á vegum Sambands Norrænna Samvinnufélaga, og þarf varla að taka fram, að landinn setti þar öll metin, hvort sem miðað er við fólksfjölda eða annað. Mun og engin þjóð nema íslendingar hafa unnið það afrek að gefa út þýdda sveita-rómantíkur-reyfara frá nágrannaþjóðunum í 90-króna útgáfu og á myndapappír — og það í pappirshallæri. SENDIHERRA Brasilíu hér á landi, sem ekki ætlar að verða hér á landi, var samt á ferðinni hér á landi fyrir nokkru, þeirra erinda að afhenda forseta vorum trúnaðarbréf sín, en svo nefnast leyniskjöl, sem slíkir embættismenn ganga alltaf með fulla vasa af. Oss finnst það nú fyrst og fremst vantraust á póstveseni voru að setja ekki slíka pappíra í ábyrgðarpóst stað þess að vera að skondra með þau sjálfir. Má benda á, að veseninu er trúað fyrir því, sem d'rmætara er, þar sem eru stórar sendingar af vönduðu og dýru áfengi, og virðist ekki koma að sök, nema hvað það fer í taugarnar á stórstúkuþinginu ■—- sem má telja kost fremur en galla. MOLOTOFF var fyrir skömmu eitthvað að flækjast vestur í Ameríku, líklega fyrst og fremst til að hlusta á Thor tala fyrir minni S. Þ., en þegar vestur kom, virtist samt að- alerindið vera að ganga alveg fram af detktívunum, sem áttu að passa hann, með fádæma glanna- skap. Gekk hann um allar götur eins og venjulegur borgari og skælbrosti jafnvel framan í gangstera, en þeir urðu svo hrifn- ir af þessu hugrekki, að nú hefur Toffi verið gerður heiðursfélagi í nokkrum merkum óaldarflokkum þar vestra. Loksins beit hann höfuðið af skömminni með því að fara á abstraktsýningu, en þar ku hafa liðið yfir hann; til mikillar hrellingar fyrir atómskáldin, sem höfðu ætlað sér heiðurinn af þessu yfirliði. GUÐMUNDUR í. hefur verið settur bæjarfógeti í Kópavogarkaupstað, sem áður hafði verið limaður frá lögsagnarumdæmi hans, sökum annríkis yfir- valdsins. Líklega hefur Guðmundur þegar séð sitt óvænna, sökum agasemi í héraði, að minnsta kosti hefur embættið nú verið auglýst til umsóknar. Eru því allar horfur á, að fyrrvei-andi valdaménn plássins, Þórður hreppstjóri og Rútur oddviti, verði framvegis að berjast upp á eigin kostnað, eða í bezta falli uppá eftirlaun. HAGSTOFA KAUPMANNAHAFNAR hefur um langt skeið haft með höndum ýtarlega rannsókn á hjónaböndum og útkomu þeirra og fundið út, að hjónabönd séu einna stabílust þar sem bæði hjónin vinna utan heimilis; m. a. séu í slíkum hjónaböndum oftast helmingi færri börn, sem getur verið mjög að vonum ef maðurinn er t. d. næturvörður. Telur stofan æskilegast, uppá samkomulagið og lukkulegheitin til að gera, að hjónin hittist sem allra sjaldnast. Oss finnst þetta hafa verið alþekktur sann- leikur, löngu áður en nokkur hagstofa var til, en vitanlega spillir ekki að uppgötva það öðru hvoru. KNATTSPYRNULIÐIÐ frá Néðra-Saxlandi hefur verið hér á ferðinni fyrir nokkru, og þarf væntanlega ekki að taka fram, að það svínburstaði innfædda, svo að þeir urðu að láta sér nægja að læra einhver ósköp af heim- sókninni, eins og vant er þegar svo stendur á, en annars eru margir orðnir langeygðir eftir að sjá einhver merki alls þessa lærdóms í auknum markafjölda. Vér verðum að láta oss nægja að gleðjast yfir því, að ekki skyldi koma neitt lið frá Efra-Saxlandi, því að þá er viðbúið að stjörnufræðingar einir hefðu getað botnað í tölunum í markaskránni.

x

Spegillinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.