Spegillinn - 01.07.1955, Side 13

Spegillinn - 01.07.1955, Side 13
SPEGILLINN 157 VESTMANNAEYINGAR hafa sem kunnugt er, átt við héraðsbann að búa undanfarið, og þykir mönnum allillt, segjandi sem svo, að nóg sé að hafa Helga Ben. Hefur þess nú verið krafizt, að ný atkvæðagreiðsla fari fram um bannið og jafnframt hefur verið sótt um aukaskammt fyrir atkvæða- greiðsluna, svo að menn geti gengið hressir að kjörborðinu. SPÁNARSTJÓRN hefur tiikynnt hátíðlega í Lögbirting sínum, að hún hyggist hefja herför mikla gegn ólæsi í landinu, en ef einhver skilur þetta ekki, má skýra það þannig, að stjórnin ætli að beita sér fyrir lesvæðingu þjóðarinnar, en fjórði hver Spanjóli telst vera ólæs og þaðan af verr skrifandi; þessvegna er ólestur á ýmsu þar í landi. Fregn þessi hefur valdið óhug hjá ólæsingunum, en sökum fáfræði hafa þeir ekki vit á að leggja þetta loforð Francos að liku við nýársloforð frá Ólafi Thórs. í SOVÉJTTINU hefur verið augl'st ný finnnáraáætlun, en eftirtektarvert er, að valdamcnn þar virðast nú hafa heykzt á þvi að leggja aðaláhrezluna á þungaiðnaðinn, en vilja nú framleiða fæði, klæði og skæði handa mannskapnum. Vér vorkennum vorum eigin kommum mest að þurfa að vera að svissa svona til í sífellu; hamingjan má vita, hve mikið þeir eru þegar búnir aðleggja í kostnað, með aðaláherziuna á þunga- iðnaðinn fyrir aagum. MORGUNBLAÐIÐ er eitthvað miður sín yfir því, að Tíminn, samherji hans hefur haft við orð að sprengja Morgun- blaðshöllina i loft upp og liðka þannig um trafíkina í Miðbænum, sem allir vita, að á við þrengsli og erfiðleika að stríða. Hefðir þú, kollega sæll, haft sinnu á því, i raunum þínum, að koma til vor, hefðum vér getað kennt þér ó- brigðult ráð til að fá samherja þinn til að skammast sín. Ekki hefði nú þurft annað en bjóða Sambandinu höllina til kaups og sjá svo til, hvort hún hefði verið mikið sprengd í loft upp. STÓRSTÚKUÞING, sem fyrir skemmstu sat á rökstólum hér í höfuðstaðnum, liafði j'mis- legt að athuga við ástand i áfengismálum vorum — og ér ekki ný bóla. Einkum var því lítið gefið um merkisdaga og afmæli og taldi slíkt spilla fyrir bindindisstarfsemi í landinu, ekki síður en hitt, að starfsmenn ríkisins neyttu áfengis í vinnutíma sínum. Virðist sem þjngið vilji spara ríkinu útgjöld eða hitt þó he’dur með því að láta embættismenn drekka í yfirvinnu. hinn brezki þúsundþjalasmiður, sem er svo vinsæll hjá kollegum sínum, að söngvararnir kalla hann leikara, leikararnir söngvara, leikritahöfundarnir tónskáld og tónskáldin leikritahöfund, og hinir allir fúskara — hefur nýskeð ráðizt til spilavítis eins í Las Vegas í Nevada, til þess að skemmta þeim, sem tapa þar, og nemur þóknun hans fyrir þessa starfsemi 40 þúsund dollurum á viku. Bendir allt þetta til þess, að vítið séu nokkuð viss með að græða af viðskipta- mönnum sínum. Heyrt höfum vér, að þetta sama víti hafi í hyggju að ráða_ íslenzka landsliðið í bridge til þess að skemmta gestunum, þegar ráðningu Noels lýkur. handteknir vegna ölvunar s. 1. ár“, lesum vér í Þjóðviljanum fyrir nokkru. Sýnilegt er, að hér er á ferðinni framsóknarmaður — L'klega einn hinna óánægðu — sem auk þess er gúttapeli (og senni- lega brotlegur). Einfaldara og sannleikanum samkvæmara hefði verið að segja: „94% Reykvíkinga sluppu við handtöku vegna ölvunar s. 1. ár. Tala þessi er þó ekki nógu há, þar eð meðal hinna handteknu eru taldir aðkomumenn, sem hér hafa verið að flækjast og ekki þolað gleðskap höfuðborgarinnar“. „KLAKKSVÍKINGAR verjast allra frétta", segir Moggi vor í fyrirsögn fyrir nokkru. Oss finnst ekki nema eðlilegt, að þessir minnstu fi-ændur vorir verði eitthvað að hafa til að verjast, úr því danskurinn er hættur að herja á þá, en þeir hinsvegar enn vel birgir að vopnum og verjum, sem leiðinlegt er, að þurfi að grotna niður, engum til gagns. ÞRÍR SKIPSTJÓRAR hafa verið sektaðir um samtals 80 þúsund krónur til Menningar- sjóðs og Þjóðvinafélagsins, fyrir smygl, og er vel við eigandi, að óvinir þjóðarinnar verði í einum hvelli einu vinirnir, sem gagn er í Sem betur fer, þénar jústitkassinn einnig allverulega á þessu, þar sem hann hlýtur allt upptæka sprúttið, og ekki spillir það til, að stjórnin skyldi hafa hugsun á að stórhækka allt sprúttverð, meðan á rekstri málsins stóð, og getur þannig selt upptæka huggarann við hækkuðu verði. LÖGREGLUNNI var 'fyrir nokkru tilkynnt á næturþeli, að minkur gengi amok suður í „Þorfinnshólma" og væri góður með að drepa álftahjónin, sem þar hefðust við, eða að minnsta kosti unga þeirra. Var skytta send á vettvang og kom að vörmu spori aftur með dauðan kött, sem mönnum ber saman um, að hafi verið illvættur sú, er uppá var klagað. Má búast við eftirmál- um, bæði af hendi katttareiganda og eins af hendi skyttunnar, sem auðvitað heimtar sínar 60 krónur, en sú upphæð er lögð til höfuðs minkinum. Hinsvegar er enginn laga- bókstafur fyrir verðlaunum fyrir kattardráp, svo að viðbúið er, að málaferlin geta orðið nokkuð flókin.

x

Spegillinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.