Spegillinn - 01.07.1955, Qupperneq 22
166
SPEGILLINN
„Nú er hann að lenda í höndunum á mínum mönnum", mælti
lögreglustjóri. „Héðan af sleppur hann ekki“.
Nú kom heil runa af símskeytum frá spæjurum, sem voru víðs
vegar í New Jersey og Pensylvaniu, og voru að rekja spor, sem aðal-
ega voru brotnar hlöður og verksmiðjur, sunnudagaskólar og þess
háttar — allir vongóðir, og það svo að vonirnar nálguðust vissu.
Lögreglustjóri mælti:
„Ég vildi, að ég gæti komið skeytum til þeirra, og beint þeim
norður á bóginn, en það er ómögulegt. Spæjararnir koma ekki á
símstöðvarnar, nema rétt til þess að senda skeyti sin, síðan eru
þeir á bak og burt og ómögulegt að hafa hendur í hári þeirra“.
Þá kom næsta skeyti:
Bridgeport, Ct,, 12.15.
Bamum býður 4000 dollara fyrir einkaleyfi til að nota filinn
þann tlma, sem spæjaramir finna hann ekki. Ætlar að líma á
hann cirkus-auglýsingar. Biður um svar um hæl. Boggs.
„Þetta er óðs manns æði“, æpti ég.
„Auðvitað", svaraði lögreglustjóri. „Sýnilega þekkir Barnum karl-
inn mig ekki, þótt hann þykist vita jafn-langt nefi sínu — en
ég þekki hann“. — Síðan las hann fyrir svolátandi skeyti:
Neita tilboði Barnums. Minnst 7000 dollara, ella ekki neitt. Blunt.
„Hana-nú. Við þurfum víst ekki að bíða lengi eftir svari. Mr.
Bamum er ekki heima hjá sér, heldur bíður hann á símstöðinni.
Hann er vanur því, þegar svona stendur á. Innan þriggja . . .“.
Samþykki. — P. T: Barnum.
Símritunartólið kom hér inn í samtalið, og áður en ég gat sagt
eitt bops til að láta í ljós undrun mína, fékk eftirfarandi símskeyti
mér annað og verra að hugsa um:
Bolivia, N. Y., 12.50.
Fíllinn fór hér um á noröurleið og í áttina til skógarins kl. 11.50,
riðlaði líkfylgd um leið, og fækkaöi syrgjendunum um tvo. — Borg-
arbúar skutu á hann nokkrum smáum fallbyssukúlum og flýðu
síðan. — Burke spæjari og ég lcomum tíu mínútum síðar að norðan,
en tókum smágryfjur, sem á leið okkar urðu, fyrir fótaf'ór fílsins,
og tafði það okkur talsvert, en lcomumst þó að lokum á rétta sporið,
og fylgdum því inn í skóginn. Skriðum á fjórum fótum, til þess
að týna ekki sporinu, og komumst þannig inn í runna, og var Burke
á undan. Til allrar ógxfu hafði fíllinn stanzað, til að hvíla sig, svo að
Burke, sem hafði höfuðið niður við jörð, rakst á afturfætur fílsins,
áður en hann vissi af, að hann var þar. Burke stóð þegar
upp og greip í rófu fílsins og æpti í gleði sinni: Bg heimta fundarl , . .
Lengra komst hann ekki, því þá hafði fílinn þegar sundrað lionum
með rananum. £V/ lagði á flótta til baka, en fíllinn elti mig með geysi-
hraða, og ég hefði óhjákvæmilega verið dauðans matur, hefði ekki
forsjónin sent það sem eftir var af líkfylgdinni í veginn fyrir fílinn,
og tafði þannig fyrir honum. Er nýbúinn að heyra, að ekkert sé
eftir af líkfylgdinni; en það er enginn skaði skeður, því hér er
kappnóg efni til í aðra jarðarför. Fíllinn slapp aftur. Biunt.
Nú heyrðum við ekkert frétta, nema rétt frá hinum duglegu spæj-
urum, sem vortu dreifðir víðsvegar um New Jarsey, Delaware, Pennsyl-
vaniu og Virginiu — og voru allir að elta mikils varðandi spor —
fyrr en kl. 2 e. h., er svohljóðandi skeyti kom:
Baxter Centre, 2.15.
Fíllinn kom hingað allur klístraður með cirkusaúglýsingum. Tvístr-
aði bxnasamkomu, og drap og limlesti marga, sem voru í þann vegin
að byrja nýtt og betra lif. Borgarbúar komu honum i girðingu og
settu um hann vörð. Þegar Brown spæjari kom á vettvang, nokkru
síðar, fórum við inn í girðinguna til að bera fílinn saman við myndina
og lýsinguna. Oll merki stóðu heima, nema eitt, sem sé örið undir
bógnum, en þegar Brown fór til fílsins til að athuga það, sló fíll-
inn höfuð hans í mola, svo ekki sást urmull eftir af því. Allir flýðu,
einnig fíllinn, er barði frá sér til hægri og vinstri með miklum árangri.
Blóðférillinn frá fallbyssuskotsárunum sést eftir liann, svo enginn
vafi er á, að hann finnst fljótt. Hélt suður á bóginn, inn í þéttan
skóg.... Brent.
Sá sem notar
KODAK FILMU
getur verið öruggur
um að fá góða mynd
Umboðsmenn fyrir KODAK LIMITED,
VERZLUN HANS PETERSEN H.F.
Bankastræti 4
Kodolí cr shráö vörumérki.
Ritstjóri: Páll Skúlason — Teiknari: Halldór Pétnrsson — Ritstjórn
og afgreiðsla: Smáragötu 14, Reykjavík — Sími 2702 — Árgangur-
inn er 12 blöð; um 220 bls., efni — ÁskriftarverS kr. 75.00 — er-
lendis kr. 85.00; greiðist fyrirfram — Áritun: SPEGILLINN, Póst-
hólf 594, Reykjavík — Blaðið er prentað í Isafoldarprentsmlðju hX
(Frh. í næsta blaði).