Spegillinn - 01.02.1957, Page 10

Spegillinn - 01.02.1957, Page 10
34 SPEGILLINN isskráningu, sem myndi verða köll- uð svartur markaður, ef einhverj- ir aðrir en svona fínir menn ættu í hlut. Víðar er ókyrrt en á Islandi. Þannig heyrist austan úr Sovétti, að á fundi æðsta ráðsins hafi verið gert hark svo mikið, að forseti ráðsins neyddist til að nota bjöll- una, en slíkt hafi ekki skeð um margt ár — heldur mun skamm- byssa hafa verið notuð í bjöllu stað. Enn er tíðarfarið rysjótt og sum- staðar stórvirði. Er eitt þeirra ein- kum að ágætum haft, er gerði vestanlands og braut brimgarðinn. Er í bígerð að gefa út hátíðablað af Veðráttunni af þessu tilefni, og hefur slíkt oft verið gert fyrir minna. Undan farið hafa verið mestu vandræði að koma skreiðinni okk- ar alla leið til Nígeríu. Sumir bentu á það úrræði að senda Tröllafoss þangað með fullfermi og vera ekkert upp á erlend skipa- félög kominn, en þá kom það í ljós, að aðalþröskuldurinn á leið- inni er sá, að ekki eru til geymslu- hús þar í landi fyrir fiskinn, held- ur verður að éta hann nokkurnveg- inn jafnharðan. Nú mun vera að nálgast lausn á þessu vandamáli, þannig, að Faxaverksmiðjan verði flutt þangað og notuð sem skreið- argeymsla. Er það að vísu nokkur ofansetning frá því sem upphaf- lega var henni ætlað, en um það þýðir ekki að sakast, enda eru flest- ir orðnir sammála um, að ekki komi síld í Faxaflóa fyrr en smiðja sú sé þaðan farin. Hinsvegar fékkst það ekki samþykkt að taka Gler- verksmiðjuna til þessara nota. Á föstudaginn langa eigum við von á góðu. Þá verður halastjama á ferðinni, með öllu því, sem þeim fylgir. Það mun vera fyrir ein- hverja vangá, að ekki hefur í þetta sinn verið spáð heimsendi í þessu sambandi, eins og annars er til siðs, en líklega hafa spámennirnir verið eitthvað seinir á sér að glugga í almanök sín og spádóm- urinn því farizt fyrir. Heyrist því þó fleygt, að halastjarna þessi sé sízt betri en slíkar plaga að vera. Sumir eru að fetta fingur út í það, að hún skuli verða á ferðinni, einmitt þennan dag og ekki ein- hvern annan, en sannleikurinn er sá, að halinn á henni mun vera með afbrigðum langur, svo að hún myndi ekki komast öll á venjuleg- an dag. Auk þess má bæta því við, að ef illa fer, er flaggað í hálfa stöng þennan dag, hvort sem er. Illa gengur krötunum að koma Haraldi til Osló, þar sem það er í ljós komið, að enginn er verður þess að taka sæti hans á Alþingi. Rannveig strækaði strax, þegar hún sá fram á það, að hún gat ekki orðið alvöruþingmaður og snúið um leið aftur heim til föðui'- húsanna, og selur nú báta í stað- inn fyrir þjóðarskútuna. Það kom sem sé brátt í ljós, að þegar hún var frá gengin, áttu kratarnir enga tusku, sem hægt væri að taka feil á og þingmanni, og vilja nú koma inn ólöglegum manni; jafnvel var talað um að hann settist á þing kjörbréfslaus, en svo þorðu þeir það ekki, þegar til kom og hefði þó sannarlega verið óhætt, því að þessi svokölluðu kjörbréf eru nauða-ósjálegir merarseðlar, í stað þess, að ég hafði alltaf haldið þetta vera skrautskjal, sem hægt væri að hengja upp í glasi og ramma, eftirkomendum þing- mannsins til viðvörunar og and- styggðar. Annars gerir nú þingið ekki svo mikið, að þar sé neitt áberandi skortur á vinnukrafti, og þetta hefur íhaldið fundið, þegar það sló upp skemmtikvöldinu um daginn, og setti það meira að segja á öldur ljósvakans, enda hafði þar þá um langt skeið verið heldur fátt um fína drætti. Að vonum fór þarna eins og við kosningar, að allir sigruðu og allir andstæðingar lágu í því og komust í „gjörsam- leg rökþrot". Var það ekki annað eða meira en allir máttu vita, svo að þessvegna hefði vel mátt sleppa skemmtuninni, en þingið verður nú einusinni að hafa sitt þorrablót, eins og aðrir. Annars er merkasta málið, sem þar hefur verið á döf- inni, tillaga um að stofna óperu hér og láta hana vera til húsa hjá Rósinkransi. En nú heyrist síðast, að húsaleigulög Hanníbals, sem heimila mönnum að flytja inn á náungann, hvað sem hann segir, muni ekki ná fram að ganga á þessu þingi, vegna þess, hve marg- ir Framsóknarmenn eru búnir að byggja flott yfir sig. Er þá von- andi, að Rósinkrans sleppi við þessa hremmingu og það um leið að senda fastráðna leikara sína á eyrina, sökum aðgerðaleysis og plássleysis í musterinu. ,Stjórnin var lömuZ eftir umrœ'8urnar‘

x

Spegillinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.