Spegillinn - 01.02.1957, Page 21

Spegillinn - 01.02.1957, Page 21
45 SPEGILLINN Litla frú Smith var vön að segja, að hún vildi óska, að liann liti ekki svona út. Og þegar veslings Smith, maðurinn hennar, spurði hvernig, svaraði liún bara: svona. Smith var fyrirmyndar eiginmaður. — Hjálpaði konunni með húsverkin. Þvoði upp, rétt eins og hann ætti von á heiðurs- peningi fyrir það. En konan hélt áfram að japla á því, að hann liti svona út. — Það er alveg klárt, að ég hef aldrei gifzt þér fyrir andlitið á þér, sagöT hún. — Ja, ekki var það fyrir aurana mína, því að þá á ég enga, svaraði veslings Smith. — Nei, auðvitað var það af ást, svaraði liún. Og ef þú litir svolítið öðruvísi út, skyldi ég vera alsæl. — Hvað er eiginlega að andlitinu á mér? spurði Smith. — Það er bágt að segja, svaraði frúin. —Kannske maður geti lielzt sagt, að það sé tilbreytingarlítið. Smitli ræfillinn gerði sér talsverða rellu út úr þessu. En þó ekki eins mikla og hann hefði gert, ef liann hefði mátt sjá spotta- korn fram í tímann. Einn góðan veðurdag, þegar hann hafði lokið störfum í skrif- stofu sinni og var á leið í strætisvagninum, tók hann eftir því, að allt kvenfólk sneri sér við til þess að horfa á hann. Þetta var honum ráðgáta. Datt helzt í hug, að hann væri orðinn hvanngrænn í framan eða ein- livernveginn skrautlega litur. Þegar hann kom heiin, færði hann þetta í tal við konu sína. — Mér finnst þú líta alveg eins út og alla hina dagana. Það er engin hætta á, að þú breytist. Það er nú einmitt allur verk-1 urinn. — Þetta er einkennilegt, sagði Smitli. Og einkennilegra varð það. Kvenfólk á öllum hugsanlegum aldri tók upp á því að elta hann. Færi hann inn í krá, elti það hann þangað. Leit við og sneri sér þegar það sá hann á götunni. Hann varð að lioppa upp í strætisvagn til þess að sleppa frá þessu kvenfólki. Og svo varð hann að hoppa út úr strætisvagninum, til þess að sleppa við kvenfólkið, sem þar var. Hann tók eftir því, að allt kvenfólkið kallaði hann „Gogga“. Kvensurnar reyndu meira að segja að elta hann lieim, svo að hann átti fótum fjör að launa. Hann spurði nú konuna sína, hver „Goggi“ væri, og hún svaraði, að hann þyrfti ekki að tala í þessum tortryggnitón. Já, lii'm var hara vond. — Þú misskilur mig, elskan, sagði Smith. Og svo sagði hann henni frá eltingaleik kvenfólksins. — Það fer vaxandi með degi hverjum, sagði liann. — Og þær kalla mig „Gogga“. Líklega taka þær mig fyrir einhvern með því nafni. En svo kom einn daginn sannleikurinn í ljós. Þau sóu mynd af Gogga í dagblað- inu sínu. Goggi var nýjasta kvennagnllið. Hann söng sig inn í sálir kvenþjóðarinnar. Allar kvenpersónur, frá fjórtán til níutíu ára fengu vfirlið hvenær sent þeim varð hugsað til Gogga. Goggi var með rauða hnappa á jakkanum sínum. Og Goggi hafði fimmtíu þúsund kall á mánuði. Og loks var Goggi útlits nákvæmlega eins og Smitli. — Jú .... kannske dálítið .... sagði frú Smith. En allir aðrir sögðu, að þeir væru hókstaflega eins og tvíburar. Já, þetta var orðið plága. Enginn friður fyrir þessum eltingaleik kvenfólksins, og loks kom þar, að húsbóndinn sagði, að annaðhvort yrði hann að leggja sér til nýtt andlit eða fá sér aðra atvinnu. Smitli lagði sér til falskt yfirskegg og svört gleraugu. Og yfirskeggið kitlaði hann, svo að það var alveg óþolandi. En þessi grímubúningur nægði til þess að bægja kvenfólkinu frá honum. Nú litu kvensurn- ar ekki lengur í þá átt sem hann var í. Eina manneskjan, auk hans sjálfs, sem undi illa þessari myndbreytingu, var kon- an hans. Hún sagði, að liann væri ennþá leiðinlegri í útsjón en óður, og hefði þó ekki verið við það bætandi. Smith ræfillinn var í standandi vand- ræðum. Hver gat vitað hversu lengi Goggi yrði móðins, en meðan svo væri, yrði hann sjálfur að burðast með falska yfirskeggið og gleraugun, sér til sárrar hrellingar, eða að öðrum kosti hafa alla kvenþjóð borgar- innar á hælum sér, livert sem hann færi. Og Goggi gat orðið rnóðins árum saman. En svo skein ofurlitill vonargeisli inn í þessa rnyrku tilveru Smiths aumingjans. Hann heyrði það utan að sér, að Goggi sjálfur væri orðinn hundleiður og þreyttur á þessum eltingaleik kvenfólksins við hann. Hann liefði bókstaflega ekki stundarfrið. Jafnskjótt sem hann sýndi sig einhversstað- ar, væri straumurinn á eftir honum.

x

Spegillinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.