Spegillinn - 01.02.1959, Síða 5

Spegillinn - 01.02.1959, Síða 5
2. TÖLUBLAÐ Febrúar 1959 34. ÁRGANGUR KÍNVERSKIR stjömuspekingar gera ráð fyrir miklum náttúmhamförum á svokölluðu galtarári, en það mun einmitt vera að hefjast nú. Oss finnst nú ekki mikið við bætandi nátt- úruhamfarir þær, er verið hafa í fólkinu á síðustu árum, en kannske meina þeir kín- versku það með þessu nafni á árinu, að svínaríið eigi þá að ná hámarki. ÖLDUN G ADEILD fylkisþingsins í Suður-Dakota hefur sam- þykkt lagafrumvarp, er mælir svo fyrir, að á hverjum sígarettupakka, sem í rík- inu er seldur, skuli vera hið einkar vin- sæla hauskúpu- og leggjamerki, sem sjó- ræningjar notuðu forðum daga, þegar at- vinna þeirra stóð í blóma, en síðar lyf- salar, og táknar merkið í báðum tilfellum dauðann og djöfulinn. Er tilgangurinn með þessu sá að venja fólk af sígarettunum eða líkkistunöglunum, eins og þær em stund- um nefndar. Eigi hefur oss tekizt að hlera, hvort skógræktin í ríkinu á að fá prósent- ur af spillingunni, eins og sumstaðar gerist. YFIRHERSHÖFÐINGI flughers Bandaríkjanna hefur trúað Þjóð- viljanum fyrir því, að atómstríð mundi ekki standa nema tvo-þrjá daga. Kemur mörgum undarlega fyrir sjónir, að einmitt þetta blað skuli auglýsa það sem helzt mætti segja svona stríði til afbötunar, og sést nú bezt hvort ekki var rétt að hleypa Magnúsi vestur, en þó ber að víta, að hann skyldi liggja á þessum fróðleik svona lengi og láta þannig Emil vera að bjástra í vísi- tölutildrauningum og öðm slíku stússi, sem allt er gert á þeim forsendum, að atóm- stríð taki að minnsta kosti mánuð. RÍKISÚTGÁFA NÁMSBÓKA ákvað fyrir svo sem tveim ámm að koma upp sérstöku skólasafni, er hafi inni að halda allskonar námsbækur og kennslu- áhöld. Mun hér fyrst og fremst um að ræða bækur þær og áhöld, sem skólar landsins hafa alls ekki efni á að eiga og mun til þess ætlazt, að kennarar komi til höfuðstaðarins svo sem einu sinni á ári og segi svo nemendum sínum frá þessum furðuáhöldum, þegar heim kemur. Er hér um að ræða hina beztu sparnaðarspekúla- sjón. FRÁ KUBU bárast oss þær fregnir fyrir nokkru, að Fidel Castro lægi bakk með háan hita, og væri talið, að hann hefði lagt sér til in- flúenzu. Auðvitað spurðumst vér nánar fyrir um líðan landsreddarans og kemur þá í ljós, að hann er með enga inflúenzu, heldur finnst honum, að nú þegar bylt- ingin er lukkulega af staðin, sé honum ó- hætt að viðurkenna, að hann sé ekki eins kaldur og menn höfðu haldið. TÍMINN (hin hlutlausa stjómarandstaða) upplýsir oss um það fyrir nokkm, að þá sé annar hvor Akureyringur á skautum, og er það einkum að ágætum haft, að þar í bland séu jafnvel ráðsettar frúr. Svo margt hef- ur blaðið sagt oss á imdanförnum árum af lauslæti sauðskepnanna í Eyjaíirði og nágrenni, að nú þorir það ekki annað en taka það sérstakiega írarn, að frúrnar séu ráðsettar. Auðvitað var vamagli þessi aliur hinn þarfasti, en hafði hara þær afleið- ingar, að stórlega hefur dregiö úr skauta- sókn karlmanna norður þar, að því er fréttaritari vor tjáir oss. ÁRÓÐURSMAÐUR trúleysingja austin: í Sovétti, Fadeyeff að nafni, hetur af mikilli hreykni bent á þá staðreynd, að gervihnettir kommanna hafi ekki orðið neins varir á flakki sínu er geti sannað tilvem guðs. Sagt er, að mann- greyið hafi fengið bágt fyrir þetta hjá hús- hændum sínum, sem hentu honum á það, að ennþá smðugra hetði það verið upp á orðstír spúttnikkanna, ef þeir hefðu getað sannað svo ómögulegan hlut sem tiiveru gusð. KRUSEFF flutti á nýafstöðnu ílokksþingi kommanna í Moskvu ræðu eina, sem tók sex klukku- stimdir stifar, en áður haíði hann þó verið svo salla-aimennilegur að ráðleggja áheyr- endum sínum að taka með sér nestisbita til að nadda í undir ræðunni. Flestir hlýddu þessari ráðleggingu og meira að segja er sagt, að einn sendifulltrúi úr lepp- ríkjunum hafi verið svo forsjáll að taka með sér yfirsæng og kodda. Eigi er þess

x

Spegillinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.