Spegillinn - 01.02.1959, Síða 6

Spegillinn - 01.02.1959, Síða 6
3D SPEGILLINN getið, hvemig þessi vittíhið hafi verkað á konxmana, en viðbúið þykir, að maður þessi verði eftir í Sovéttinu, til að gegna þar „sérstökum störfum í samræmi við hæfileika sína“. VILLIHESTUR ættaður frá Grímsstöðum á Fjöllum, slapp vestur yfir Jökulsá fyrir fjórum árum og hefur ekki orðið handsamaður síðan, þar til nú fyrir skömmu, að hestamaður einn á Húsavík keypti í honum vonina, og gerði síðan út leiðangur með tíu hjóla trukk og snjóbíl þar ofan á. Var klárinn eltur í sjö klukkustundir áður en hann náðist, og síð- an fluttur til byggða, en svo er skepnan villt, að ekkert verður við hana tjónkað. Er nú helzt talað um að fá Gunnar Bjama- son til að sansa hann með dálitlu hest- mannarabbi, og dugi það ekki á að kalla Sigurð frá Brún til hjálpar. AKUREYRINGAR em famir að hugsa um það í fullri al- vöm að sameina löggæzlu og brunavörzlu í höfuðstað Norðurlands. Oss finnst þetta liugmynd, sem allir bæir landsins ættu að taka upp nú þegar, þar sem það hlýtur að veda jhinn mesti vinnusparnaður að geta nappað brennuvargana mn leið og slökkt er í kofunum. DANSKUR GUÐFRÆÐINGUR hefur birt ritgerð í fagtímariti þar í landi, er hann nefnir „Grasafræði Biblíunnar“. Bendir liann fyrst og fremst á það, að í elztu textum heilagrar ritningar sé hvergi sagt, að það hafi verið epli, sem Eva dobl- aði Adam með, enda vaxi þau hvergi í ná- grenni við Edensgarðinn, heldur hljóti það að liafa verið apríkósa, sem varð mann- kyninu svo> örlagaríkur ávöxtur. Með til- liti til þess, hvílíkum mglingi það getur valdið í trúarlífi heilla þjóða, að koma með svona nýjungar, finnst oss svona menn eigi ekki að ganga lausir, en auk þess er nú granur vor sá, að klerkur eigi hluta í ávaxtabúð, sem liggur með birgðir af ó- seljanlegum apríkósum, og sé svo, fara vís- indin strax að verða skiljanlegri og alþýð- legri. EYSTEINN spurðist nýlega fyrir um það á sjálfu Al- þingi, hvort kasta ætti greiðsluafgangi V- stjómarinnar í gin verðbólgunnar. Þótti þetta óþarfa kurteisi, þar sem jafnvel Ey- steinn vissi, að þetta hafði þegar verið gert, vegna þess að nýja stjórnin vildi ekk- ert hafa með að gera aura frá tíð Eysteins, og kallaði þá jafnvel blóðpeninga. FIDEL CASTRO, hinn ágæti byltingarforingi Kúbrunanna, lxefur látið hafa það eftir sér, að gefnu tilefni, að spilavíti verði alls ekki lögð nið- ur þar í landi, heldur verði þau rekin áfram, en aðeins fyrir túrista, og landsins eigin börnum bannaður aðgangur að þeim, líkt og gerist í Mónakó. Hins vegar mun landsins eigin börnum alls ekki harðbann- að að myrða útlendingana, þegar þeir ganga út úr vítunum með gróðann upp á vasann, og mun því ráðlegra fyrir þá, sem tapað hafa að vera ekki að setja upp neinn lireystisvip, þar eð slíkt gæti valdið hinum mestu vonbrigðum fyrir tvo aðila. í DÖNSKU ÞORPI bar svo til undir nýbyrjaðri messu, að söngfólkið ásamt organistanum leið út af og söng þá að sjálfsögðu ekki meira í bili. Var það kolsýrlingur frá kirkjuofninum, sem þama var að verlti. Þegar allar gátt- ir kirkjunnar höfðu verið opnaðar tók mannskapurinn nokkuð að hressast, svo að messan hafði sinn gang, enda þótt nú væri orðið illvært í kirkjunni sökum kulda, nema hvað presturinn gat talað sér til liita. Er sá grunur manna, að einmitt hann hafi att sök a kolsyrlingnum, og viljað sýna sóknarbömimum ofurlítinn forsmekk þess, sem biði þeirra hinumegin, ef þau höguðu sér ekki skikkanlega hémamegin. RAINIER FURSTI í Mónakó — maðurinn hennar Greis, þið vitið — liefur heldur en ekki hrist úr klaufunum nýlega, með því að leysa upp bæði þingið og íhaldsbæjarstjómina í Monte Carlo og þannig létt stórlega á fóðrunum í ríki sínu. Kveðst liann ekki láta af hendi tangur eða tötur af einræðis- valdi sínu. Margir hafa orðið hissa á þess- um snögglega skörungsskap furstans, og skæðar tungur segja, að tengdamamma hans í Ameríkunni muni standa fyrir þessu. LÖGFRÆÐINGAR hafa á fjölmenniun fundi í félagi sínu orð- ið mikið til sammála um nauðsyn þess að stofna embætti opinbers saksóknara hér á landi, í stað þess að nú er ákæruvaldið í liendi pólitísks ráðherra. Benda þeir á þá óneitanlegu staðreynd, að aUtaf sé hægt að tefja framgang mála mánuðum og ár- um saman, með tiltölulega lítilli fyrirhöfn og geti delínkventamir þannig heðið þang- að til þeirra maður verður dómsmálaráð- herra og þannig sloppið billegar en efni standa til. Sagt er að núverandi og tilvon- andi glæponar séu lítt hrifnir af þessari nýjungagirni lögfræðinganna. HAUSAVEIÐARAR á Borneo, sem lengi hafa verið illræmdir og tafið á einn og annan hátt fyrir eðli- legri fólksfjölgun þar í landi, munu nú vera að syngja sitt síðasta og segja fræði- menn, að kynflokkur þessi sé nú varla meira en 18 þúsund manns, og það með, að menn þessir — ef menn skyldi kalla — séu á fullkomnu steinaldarstigi og þar til smávaxnir og illa á sig komnir líkamlega. Má af þessu ráða, að þeim hafi ekki allt- af orðið gott af sviðunum, enda hafa þau víst aldrei verið borin fram í verðlauna- trogi. VESTUR í MICHIGAN fannst fyrir nokkm gaddfreðinn maður úti á víðavangi, en fyrir einhverja rælni manna vom samt gerðar lífgunartilraunir á hræinu og með þeim árangri, að það lifnaði við, öllrnn viðstöddum til hinnar mestu furðu. Kom það í Ijós, að maður- inn hafði verið svo prýðilega hífaður, að blóðið gat bara alls ekki frosið í honum, sökum hinnar ríflegu alkóhólprósentu. Láta bindindismenn sér fátt um finnast, en lögreglumenn urðu harla glaðir og ætla framvegis að framkvæma spírapmfu á mönnum með því að hraðfrysta þá, og dæmast þeir þá hafa verið undir áhrifum ef þeir lifna aftur, en saklausir ef þeir halda áfram að vera dauðir.

x

Spegillinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.