Spegillinn - 01.02.1959, Side 16
4D
SPEGILLINN
Framh. af bls. 37.
okkur svo allt á segulböndum með
fyrstu ferð.
Tottenham varð allur Ijómandi
af hrifningu og spenningi. — Ó,
Hallbjörg, stundi hann upp, en þá
stóð í honum að sinni. — Ég vona
bara að útvarpið sendi hann Sig-
urð, eins og venjulega þegar keppt
er um þjóðarheiður vorn á erlend-
um vettvangi. Og þá skal ég sýna
ykkur hvort ég get ekki haft í
fullu tré við hann í spennandi frá ■
sögn og þarf þó mikið til.
Við vorum öll mjög ánægð með
þessi málalok og þótti okkur rausn
Hallbjargar mikil og kom þó ekki
á óvart, því svo stórkostleg hefur
hún verið árum saman, að vart
mun lengra komizt. Mannbjörg
flutti stutta en gáfulega ræðu og
nefndi sem dæmi, að útvarpið
hefði varið 15000 mínútum til er-
indaflutnings á liðnu ári, sam-
kvæmt skýrslu Vilhjálms, en Hall-
björgu væri það fjarri skapi að
reikna menningarstarf sitt í mín-
útum, sem eiginlega væru ótelj-
andi, en hver mínúta væri sem
klukkustund hjá öðrum, miðað við
gæði og árangur. Var máli henn-
ar ákaflega fagnað af áheyrendum.
Svo kom Lajka inn og aldeilis
ekki tómhent og fórum við þá að
ræða um þá kenningu regluboðans
okkar, að öll okkar menning væri
reist á bjargi bindindis og stúku-
starfs.
Bob á beygjunni.
Framh. af hls. 37.
Ofan úr Holstein Ólafur var sendur,
uppstrokinn, hýr og pínulítið kenndur.
Kraftaverk skeði þennan Þorláksdag.
— Alþýðuhylli óhræddur ég fórna,
íhaldið sagðist lofa mér að stjóma.
Nú skal ég svei mér hækka Strympu hag.
Nú fæ ég bíl og blómagarð og villu,
bústað í sveit og veiðistöng og trillu.
Upp að mér koma yfirstéttarvíf.
— Kokkteil og gin og konijak og viskí
með kóngafólki drekk, en engu hyski.
Þið skuluð vita — Þetta verður líf.
Ég held mér verði bezt að heiðra skálkinn
og hætta að veðja á gamla kratajálkinn,
sem alla daga ólánsbykkja var.
— Ég skal nú sjálfur skammta mér á diskinn.
Skrattinn má hirða vettlingana og pískinn,
sem liggja þarna — á fjósvegg Framsóknar.
LANDHELGISGÆZLAN
hefur nú ákveðið að hafa framvegis einn
froskmann á hverju varðskipanna, en þeir
eiga að gera sama gagn og kafbátar hjá
öðrum þjóðum. Munu þeir kafa að hrezk-
um togurum og herskipum, en synda síðan
til baka að varðskipinu og gefa skýrslu
sína, sem þá verður tekin upp á segulband.
Eru þegar útlærðir þrír froskmenn og
þykja gefa svo góða raun, að rétt sé að
halda áfram að fjölga þeim. Síðasta próf-
raunin, sm þeir leysa af hendi, er að sækja
prófskírteinið sitt niður á mararbotn, áður
en marhnútamir nái í það og noti síðan
til að villa á sér heimildir.
KVIKMYND AJ ÖFUR
einn vestanhafs ætlar nú að fara að gera
mynd af ævisögu Gipsy Rose Lee, sem á
sínum tíma var fræg þar í álfu fyrir tak-
markaða fatanotkun. Gáfu 150 meira og
minna berar kvensur sig fram til að leika
í myndinni, þar á meðal ein, sem hafði
það til síns ágætis að vera lögfræðingur,
auk þess sem liún var íklædd gúmmíblöðr-
um og einu blaði úr Stjórnartíðindunum.
Aðeins tólf umsækjendur urðu fyrir val-
inu — enda ekki þörf á fleirum — og á
að íklæða þær þremur rósum í myndinni.
Að sjálfsögðu verða rósimar settar á þrjár
þær ljótustu.
Ritstjóri: Páll Skúlason — Teiknari: Halldór
Pétursson — Ritstjórn og afgreiðsla: Smára-
götu 14, Reykjavík — Sími 12702 — Árgangur-
inn er 12 blöð; um 220 bls. efni — Áskriftar-
verð kr. 100.00 — erlendis kr. 110.00; greiðist
fyrirfram — Áritun: SPEGILLINN, Pósfhólf
594, Reykjavík.
Blaðið er prentað í Isafoldarprentsmiðju k.L