Spegillinn - 01.02.1959, Blaðsíða 17

Spegillinn - 01.02.1959, Blaðsíða 17
SPEGILLINN 41 ^patnaiatjíankaf Nú eru bjargráð Emilíu farin að láta til sín taka í efnahags- og verðlagsmálunum, og er nú allt verðlag og kaupgjald á hraðri nið- urleið. Sumir voru lengi tortryggn- ir í garð Emilíu, og létu í ljósi efasemdir um, að verðlagið mundi lækka nokkuð, heldur bara kaupið, en þeir hinir sömu hafa nú þegar keypt marga hluti og nytsama á lækkaða verðinu, og orðið furðu lostnir, er þeir sáu, hve lækkunin var mikil. Eru nú jafnvel birtir daglega í blöðum nákvæmir út- reikningar á því, hve mikið fólk „sparar“ er það kaupir vörur á nýja verðinu í matinn. Stjómar- málgagnið Alþýðublaðið segir frá ungri húsmóður, sem gerði eftir- farandi innkaup einn morguninn, er lækkunin var nýskollin á: 4 lítra mjólk, %kg. smjör; 1 kg. súpuket, 2 kg. kartöflur, 1 kg. mjólkurostur, 1 kg. molasykur, 5 lbs. hveiti, eitt fransbrauð, eitt rúg- brauð og 1 kg. skyr. Á þessum inn- kaupum sparar unga frúin 21,40 kr. miðað við það, sem þessar vör- ur kostuðu fyrir lækkunina. Þetta þykja oss gleðileg tíðindi, einkum þó þar sem blaðið reiknar út fyrir oss, að sparnaðurinn nemi allt að 7000 krónum á ári. í beinu framhaldi af þeim upplýsingum dettur oss í hug, að ef konukindin hefði nú keypt einum lítra meira af mjólk, pundi meira af súpu- ketinu og 2 fransbrauð, hefði sparnaðurinn kannski náð 30 krón- um á dag og þá trúlega um 10 þúsundum á ári. Og þá hlýtur sú spurnig að vakna, hversvegna kon- an kaupir ekki helmingi meira og sparar 20 þúsund á ári, eða segjum fimm sinnum meira og spari 50 þúsund. Þá virðist oss að nærri léti, að hún sparaði árskaup bónda síns, aðeins með því að kaupa í matinn, og gætu þau hjónin þá heldur bet- ur gert sér glaðan dag um næstu áramót. Aftur á móti þorum vér ekki fyr- ir vort litla líf að reikna út, hve mikla peninga konan þarf að hafa í innkaupabuddunni, til þess að geta keypt sitt kílóið af hvoru á dag, smjöri og súpuketi, auk 5 lítra mjólkur, kartaflna, mjólkurosts og skyr-kílós að ógleymdum brauðum og skyri. Sem sagt: möguleikarnir til að spara virðast allt að því ó- tæmandi. Eggin ku hafa lækkað um 50 aura kílóið og með því að kaupa eitt kg. á dag, getur vísitölufjöl- skyldan sparað sér 15 krónur á mánuði, eða 180 krónur á ári; en þá upphæð getur hún svo auðvitað doblað að vild með því að herða enn meira á eggjaátinu. Hrísgrjóna- pakkinn lækkar um 5 aura; þar á vísitölufjölskyldan heldur betur leik á borði að spara ca. 20 krónur á ári og kannski meira, ef hún er lystug á grjónin. Ekki eru sparn- aðarmöguleikarnir minni, þegar innkaup á álnavöru eru gerð. Vinnuföt bóndans lækka um ca: 3 krónur, svo að með því að kaupa ein vinnuföt á dag gæti hann spar- að allt að 11 hundruð krónum á ári. Dálagleg fúlga það. Annað eins og vel það sparar karl svo í skó- kaupum, og sirka 800 krónur í manséttskyrtukaupum. Eru þar komnar 3000 krónur samansparað- ar. Þá lækkar kápuefni frúarinnar um einar 10 krónur, þannig að með því að gefa henni daglega nýja kápu, slær bóndinn tvær stórar ræðumann. Páll vildi gera sitt bezta og hafði skrifað upp langa kafla úr dálkum Tímans, sem hann las dálaglega upp. En hann hafði hvergi nærri lokið máli sínu, þegar Eysteinn Jónsson fór mjög að ókyrrast í sæti sínu, þar til hann eirði þar ekki lengur, heldur óð upp að ræðustólnum og rétti Páli miða. Skömmu síðai hrökklaðist Páll frá hljóðnem- anum,

x

Spegillinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.