Spegillinn - 01.02.1959, Qupperneq 18

Spegillinn - 01.02.1959, Qupperneq 18
42 BPEGILLINN flugur í einu tiltölulega fyrirhafn- arlitlu höggi: hann gleður frúna, og sparar um leið 3600 krónur á ári. 200 krónur geta hjónin sparað á ári í perlonsokkakaupum (miðað við að einir sokkar séu keyptir á dag) og annað eins í innkaupum á léreftum, sirsum og svuntuefnum ýmiskonar. Eru þá komnar alls 6700 krónur samansparaðar í metra- eða vefnaðarvörukaupum vísitölufjölskyldunnar. Nei, fyrir- gefið, vér gleymdum alveg að kaupa spjarir á börnin, sem eru 2—3 í umræddri fjölskyldu. Segj- um að sparnaðurinn af fatakaupum á þau nemi yfir árið 4300 krónum. Alls verður sparnaðurinn á þessum lið þá 11 þúsund krónur yfir árið. Strætisvagnafargjöld lækka um 5 aura og ef fjölskyldumóðurin fer tíu sinnum á dag í strætó, sparar hún 50 aura á dag, eða 180 krónur á ári. Hagfræðilega útreiknaður og bókfærður, gæti sparnaðarreikn- ingur vísitölufjölskyldimnar yfir árið litið þannig út. Sparnaðarreikningur: 1. Matvælakaup; beinn sparnaður ca: 45-50.000.00 2. Vefnaðarvörukaup; 11.000.00 3. Strætisvagnafargjöld 180.00 4. Ýms sparnaður, svo sem sápur og þvotta- efni, bón, smávörur ýmsar, o. fl. 500.00 Árlegur sparnaður alls ca. kr. 61.680.00 Þannig reiknast oss til, að vísi- töluhjónin geti lagt árskaup bónd- ans til hliðar, og ef þau vinna nú bæði úti, ættu þau að eiga a. m. k. 80—90 þúsund krónur í kistu- handraðanum um áramótin 1959— 1960, og legg ég til, að þau kaupi fyrir þær bíl (milliliðalaust), af ríkisstjórninni, sem væntanlega verður þá að selja einn ráðherra- bílinn enn, til þess að fá aura í niðurgreiðslurnar á miðasmjörinu. — En nú spyrjið þið náttúrlega sem svo: Hvað er þetta maður, veiztu ekki að kaup vísitölufjöl- skylduföðursins lækkar um ca. 500 krónur á mánuði, eða 6000 krónur á ári? En þetta er því miður mjög fávíslega spurt og sýnir, að þið eruð skammt á veg komin í við- reisnarhagfræði síðustu vikna. Auðvitað veit ég þetta fullvel, en nota bene, það er einmitt kaup- lækkunin sem veldur því að vísi- tölufjölskyldan getur sparað svona mikið. Sko, kauplækkunin orsakar lækkaða vísitölu, vísitalan orsakar lækkað verð landbúnaðarvara. — Lækkað verð landbúnaðarvara veldur lækkun á vísitölu. Þetta er hin fullkomna hringrás frumeind- anna í efnahagslífinu, og þar sem lækkað kaup er imdirstaða þessar- ar hringrásar, ber hreinlega að telja fólki kauplækkunina til tekna. Kaupið okkar lækkar um 3 krón- ur á tímann, segja Dagsbrúnar- karlarnir angurmæddir, og halda, að stjórnin sé að pretta þá. En það er nú eitthvað annað. Þeir þurfa t. d. ekki annað en kaupa eins og 50 kg. af eggjum á dag, þá fá þeir endurgreitt í eggjaverðslækkuninni sem svarar dagkaupslækkuninni. Ykkur finnst þetta kannski dá- lítið flókið, en samt er það lauk- rétt. Spyrjið Gylfa, ef þið trúið trúið mér ekki. Rabbi. ------ooOoo------- Leiðindaskrjóðurinn í klubbnum vai einkum frægur fyrir fullyrðingar sínar um eigin óskeikulleik. Þessvegna brá öllmn í brún, einn daginn, þegar hann játaði að sér hefði þó einu sinni skjátlazt. — Hvernig má það ske, að þér hafi skjátlazt? spurði einn félaginn háðslega. — Jú, víst skjátlaðist mér, svaraði skrjóðurinn. — Það var forðum, þegar ég hélt, að mér hefði skjátlazt, en svo kom það í ljós, að ég hafði haft á réttu að standa. Veggleppi í rá sem ekki er lil Geta oorgaryfirvöldin bver- ska'last við að bvggja yfir vegg teppi lcvennan-ha? >

x

Spegillinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.