Spegillinn - 01.04.1967, Blaðsíða 12
í eldhússdagsumræðum nýafstöðn-
um og ómerkilegum gerðist það helzt
til skemmtunar, að Ragnar Arnalds og
Benedikt Gröndal geyjuðu hvor að
öðrum.
Ragnar líkti Alþýðuflokknum við
smalahund, sem geystist um allar jarð-
ir eftir skipunum húsbóndans (þ.e.
Sjölfstæðisflokksins).
Því kvaðst Gröndal una vel, því að
smalahundar væru hin þörfustu dýr,
og björguðu jafnvel eigendum sínum
úr villu og brdðum bana.
Hins vegar væri Ragnar þessi líkast-
ur gagnslausum kelturakka, gerði ekki
annað en gelta að heiðarlegu fólki.
ÞAÐ ER ENGINN VANDI AÐ VELJA
PÓLAR
FULLNÆGIR KRÖFUM YÐAR.
Ef þú ekur bíl,
og vilt vera stundvís,
og á það einhver stólar,
þá skaltu kaupa PÓLAR.
12 S p e g i 11 i n n
vwvvvvwyvvvwyyyvvvvvyvvvvrvvvvvvvyvw