Spegillinn - 01.04.1967, Page 14

Spegillinn - 01.04.1967, Page 14
staddur einn fund í nefndinni, og var mér fúslega veitt leyfið. Þetta var næsta kátbrosleg samkoma. Allir nefndarmenn voru á fundi, nema barnabætirinn á Akureyri, sem komst ekki vegna stórhríða og snjóalaga, og var það bættur skaðinn. Johannesson skáldformaður hafði mikinn skjalabunka vinstra megin við sig, en meö hægri hendi skrifaði hann öðru hverju orð og hendingar í þar til gerða kompu. Þóttist ég sjá, að hann væri jafnframt nefndarstörfum að yrkja „sálma á atómöld“. Hið næsta honum sat Eindriði sagna- skáld og var að berjast við að lesa próf- örk á norskri þýðingu á sögu sinni Land og synir (Land & Sönner). Stundum skildi hann ekki norskuna, og bar þá málið undir Rósinkranz, sem gat fáu svarað, því að hann kann bara sænsku. Gils var að stelast til að læra utan að stefnuskrá Alþýðubandalagsins og Sós- íalistaflokksins, fyrir framboðsfundi í vor. Bankastjórinn svaf, og gerðist með því þarfasti maður nefndarinnar á þeim fundi. Mikil mælska vall upp úr Johannessen skáldformanni, og öðru hverju stóð leik- arinn upp og mælti með miklum gný nokkur orð, sem stundum voru beint úr ræðuhöldum Marats sáluga. Skáldin töluðu feikn um að nauðsyn- legt væri að hleypa af stokkunum þjóð- arvakningu fram að 1974. Hafa skyldi samband við sýslunefndir og bæjar- stjórnir, að mér skyldist til að fá um- ræddar stofnanir til að splæsa í kostnað við stórhátíðina. Mun þetta ákvæði hafa verið runnið undan rifjum bankastjór- ans. Mjög var vitnað í þessu sambandi í það, að 1874 hefðu byggðarlögin sett sér „takmörk“ (sic) ýmiss konar, eins og þegar samþykkt var að „stofna hið allra fyrsta unglingaskóla með fjörugum samskotum úr Kjalarnesþingi.“ Nefnd- in hefur sjálfsagt í hyggju að efna til „fjörugra“ samskota um land allt, sem verður þá vonandi ekki eins bráðkvödd og Skálholtssöfnunin sáluga. En kannski mundi slík þjóðhátíðarsöfnun hrökkva til þess að kaupa bókasafn Kára fógeta- bana af nauðstaddri biskupsskrifstof- unni. Það stórkostlegasta í plönum nefnd- arinnar er þó bygging svonefnds þjóð- arhúss á Þingvöllum, er rúmi fleiri þús- und og fimmtíu manns. Þar verði Al- þingi sett hverju sinni, enda er sama hvar slík athöfn fer fram, hún verður alls staðar jafn-kollótt og andlaus og tíðkazt hefur hér i Reykjavík um ára- tuga skeið. Þá á að fara fram á hátíðinni þar eystra leiksýning sögulegs eðlis (hér vil ég Sjálfur skjóta því inn, að Ölkofra þáttur er aldeilis sjálfsagður, og leiki Gunnar Eyjólfsson Ölkofra). Loks á að leggja þar á völlunum leik- vang mikinn, þar sem iðkaðar verða þjóðlegar íþróttir, svo sem hráskinna- leikur og hnútukast (samanber Al- þingi), að við bættu boxi. Á leikvelli halda svo íslenzkir knattspyrnumenn og aðrir íþróttamenn vorir áfram að bíða stór-ósigra fyrir úttlendingum, hér eftir eins og hingað til. Með leikvangi þess- um plús listamannaheimilum er líklegt, að takist að eyðileggja hina marglofuðu náttúrufegurð Þingvalla með öllu. TILLÖGUR VORAR Ég nennti ekki að sitja þennan aurna fund til enda. En ég lét hendur standa fram úr ermum þegar í stað, og fékk ritstjóm Spegilsins til að skipa níu manna þjóðhátíðarnefnd. Óþarft er að telja hér nöfn nefndarmanna, það næg- ir að taka það fram, að auðvitað er ég sjálfur formaður og réði mestu um til- lögur. Þessi nefnd varð fljótt sammála um, að tillögur hinnar nefndarinnar væru svo smáskítlegar og naumar, að sómi þjóðarinnar væri í voða, ef þær yrðu samþykktar. Þó var að nokkru stuðzt við tillögur þeirrar nefndar, en vorar tillögur eru allar gerðar með meiri stór- hug, og þykir oss ekki vit í því að horfa í skildinginn, þegar bíður þjóðarsómi. Frumdrættir að tillögum nefndar vomar og Spegilsins eru sem hér segir: I. Þjóðarhús veri reist á Þingvöllum, í stíl við Háteigskirkju. Aðalsalurinn taki 6000 manns í sæti. Þar skal halda allar helztu samkomur, sosum setningu Alþingis, fegurðarsamkeppnir og hesta- mannamót. II. Reist skal leikhús í stíl við Nes- kirkju, er taki 3000 í sæti. Fyrsta leik- rit, sem þar verður sýnt, verði eftir Matthías Johannessen, en númer 2 verði Gestagangur eftir Sigurð A.

x

Spegillinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.