Spegillinn - 01.04.1967, Page 18

Spegillinn - 01.04.1967, Page 18
/ SKÁLDARÍGUR Það er alkunna, að oft er sundur- þykki með listamönnum, og er það kannski ekki nema eðlilegt, því að slíkt keppir um hylli almennings, rétt eins og stj órnmálamennimir. Nýlega hefur slíkur rígur milli tveggja skagfirzkra skálda orðið augljós fyrir al- mennings sjónum og virðist hafa þar orðið hastarleg andleg átök. Tilefni viðureignar á opinberum vettvangi, var eftirfarandi klausa í Morgunblaðinu: „SKULDASKIL TIL SKAGFIRÐINGA Morgunblaðið hefur veriS be'ói'ð aS birta eftirfarandi úr Ijóði Sigrúnar Sig- urjónsdóttur, en erindin eru úr Atthaga- kveðju, Skuldaskilum til Skagfirðinga í Reykjavík, í tilefni af 30 ára afmœli Skagfirðingafélagsins í Reykjavík, sem minnst var í Sigtúni 11. marz 1967. „Hér verður ekki til Z (setu) boðið. Höfundar: nízka og nýstárleg tízka. Brot: Vegur kvenna er villufen, í veizlum — áfengiskynstri. Hægra megin var Michelsen, munngát Hervins til vinstrj. Viskyblöndu þeir völdu á „bar“. Svo veittu þeir kampavínið. Að afþakka slíkt er asnalegt svar. — Enn verra að skilja ekki grínið. Veizlugestur í vígahug. Þið vopnið grípið og skerið. Þögull boðsgestur. — Brestur dug? Má brjóta andskotans -—• glerið? I „Sigðartúni“ — þeim sælustíg er sýndarmennskan við lýði. Með timburkörlunum þjórið þið — í þrjátíu ára stríði.“ Sérfræðingar Spegilsins telja þennan kvæðiskafla merkan bókmenntaviðburð, og geta nú Skagfirðingar sagt: „Mikil spákona er risin upp á meðal vor“. Engum blandaðist hugur um, að 18 S p e g i 11 i n n þctta var sýnishom úr miklu listaverki, og margir munu hafa óskað þess, að kvæðið yrði birt í heild. En Eva var ekki lengi í Paradís. Ann- að skagfirzkt skáld, Hannes Pétursson reis upp á afturfæturna og hreytti skæt- ingi í skáldkonuna, og sagði meira að segja frá þeim skandala, að á 30 ára afmælishátíð Skagfirðingafélagsins, hefði Sigrúnu skáldkonu verið gefnar skítnar 10 mínútur til að flytja Átthaga- kveðju sína. Og til að bæta gráu ofan á svart var skáldkonan beinlínis svipt málfrelsi, vegna þess, að eftir 20 mín- útna skraf, var listakonan ekki komin að flutningi ljóðaflokksins. Smásmugu- leg ástæða! Ekki sízt vegna þess, að ef dæma má eftir sýnishorninu í Morgun- blaðinu, hefur 20 mínútna ræða skáld- konunnar verið þrangin málsnilld og mannviti. Nei, sökin er sú, að afbrýði og öfund hafa gripið öll hin mörgu skagfirzku skáld, með Hannes þennan í broddi fylkingar. Er bágt til þess, að skáld þessi skuli ekki geta unnt kvenskörangi sínum sannmælis, vegna þess að hún ber greinilega höfuð og herðar yfir hagyrð- ingaskara sýslunga sinna. En þeir skyldu varast að móðga slíkt kraftaskáld, en hafa í huga máltækið gamla: „Enginn skyldi skáldin styggja, skæð er þeirra hefnd.“ Lyriker Spegilsins. OSRAM

x

Spegillinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.