Spegillinn - 01.04.1972, Qupperneq 11
SMÁAUGLÝSINGAR
Það tilkynnist hérmeð að
hinar nýju reglur Útvarps-
ráðs um fasta þætti með-
lima ráðsins í hljóðvarpi og
sjónvarpi gera ekki ráð fyr-
ir banni við því, að undir-
ritaður fái að gæða sjón-
varpsglápendum á hinu
perluhvíta og undursamlega
sjónvarpsbrosi sínu í tíma
og ótíma.
Njörður P. Njarðvík.
Getum enn bætt við okkur
skuttogarasmíði með undir-
balance. Akureyrarbær
borgar hallann. Notið ykk-
ur hið einstæða tækifæri og
látið okkur vinna fyrir ykk-
ur á meðan við leikum laus-
um hala í hringavitleysunni.
Slippir og snauðir í
Slippstöðinni hf.
Framkvæmdastofnunin get-
ur enn bætt við sig hús-
næði. Það gleymdist að gera
ráð fyrir smásal handa for-
manninum í 1500 fermetr-
unum á Rauðarárstígnum.
Ríkisstofnanir eru beðnar
að láta vita strax ef þær
hafa á hendi tilboð um hús-
næði fyrir sjálfar sig. Við
göngum fyrir.
Kommissarar í
„Stofnuninni".
Félagið „Æruvernd látinna
heiðursmanna gegn Einari
ríka“ hefur verið stofnað.
Nýir méðlimir láti skrá sig
hjá hinu nýja og betra Al-
þýðublaði.
Gísli Johnsen Ást.
Stofnfundur „Félags áhuga-
manna um búlugang og út-
stáelsi11 verður haldinn í
Naustinu uppi nk. miðviku-
dagskvöld.
Páll Heiðar Jónsson.
Sérprentun sorgarræðu
minnar „Einum sósíalistan-
um færra“ fæst hjá Blaða-
jnannafélaginu.
Árni Gunnarsson.
Tilkynning um örnefni. Þar
sem rektor vor Guðni kjaft-
ur hefur staðið sig framúr-
skarandi vel undanfarið í
réttindabaráttu vorri fyrir
auknu athafnarými, hefur
verið samþykkt samhljóða
breyting á viðurnefni hans.
Munum vér eftirleiðis nefna
rektor vorn hr. Guðna munn
í stað þess er áður var. Er
honum með þessu tjáð virð-
ing vor og þakklæti fyrir
staðfastan stuðning.
Nemendur MR.
Opinberað hafa trúlofun
sína ungfrú Gréta Sigfús-
dóttir „rithöfundur" og ,,Dr.“
Ólafur Jónsson gagnrýnandi
og vísindamaður. Hjóna-
leysin munu fyrst um sinn
búa sitt í hvoru lagi, en
reyna að hittast eins oft og
tök verða á á síðum Vísis
og Morgunblaðsins.
Sænska fréttastofan á
íslandi.
„Veizlugleði í Sundhöllinni"
nefnist herferð vor fyrir
aukinni aðsókn morgun-
hana. Rífið yður upp um
miðja nótt og njótið sam-
vista við Magnús Kjartans-
son, Konna í Hellas, Jónas
Guðm. stýrimann og rithöf-
und og fleiri heimsfræga
menn.
Hermann í Val.
í dag opinberuðu trúlofun
sína Dagrún Kristjánsdóttir
á Hrafnistu og Torfi H. Hall-
dórsson, sama stað. Heimili
þeirra verður á Vísi.
Sj ómannadagsráð.
Ekki lækkuðu nú dagsekt-
irnar, ef þeir kæmust að>
neðri kjallaranum undir
þessum.
Jón Fannberg.
Auglýst er hér með laust til
umsóknar nýtt prófessors-
embætti í málum annars
heims. Konan mín. hún
Maja, sækir um.
Magnús Már.
Nafni okkar hefur verið
breytt úr Barnaverndar-
nefnd í Gegn foreldrum í
landi.
Dr. Björn.
Það fer sko enginn kven-
maður í fötin mín.
Rósinkranz.
Not travelling, returning
tickets, met Jónas.
Bernadetta.
Vegna þrengsla á athafna-
svæði Menntaskólans í
Reykjavík var ekki lengur
pláss fyrir Pallas Aþena.
Nemendur MR.
Ég er'víst litanríkisráðherra.
Einar Ágústssön.
Mig vantar tilfinnanlega
vasapeninga. Vill ekki ein-
hver góður listamaður lána
mér listamannalaunin sín í
svosem tvo þrjá daga, þó
ekki væri nema lægri-
flokkslistamenn?
Gísli Alfreðsson.
0