Stúdentablaðið - 01.12.1926, Side 21
1926
STÚDENTABLAÐ
15
Næsta dag (hinn 1. júní)
var gengið til dagskrár. Um
ínorguninn var fyrirlestur hjá
ríkisskjalaverðinum í Lúbeck,
dr. Georg Fink um sögu Lu-
becks og Norðurlanda, en
seinni hluta dagsins var farin
ferð til að skoða járnsmiðjur
miklar, sem eru utan við borg-
ina. Um kvöldið hafði stú-
dentunum verið boðið til bjór-
drykkju í Scbiffergesellscbaft-
haus — hafði Lúbeckcr Alt-
herrenvereinigungen (fél.eldri
stúdenta í Lúbeck) það boð
inni.
Þegar hér er komið sögu,
var eg enn ekki kominn til
borgarinnar. En skemtileg til-
viljun réð því, að einmitt á
þessum stað hitti eg stúdent-
ana, þar sem þeir sungu hinn
fornfræga stúdentasöng: Gau-
deamus igitur-yfir mjögforn-
legum bjórkollum. Tóku þeir
mér með miklum fagnaðarlát-
um og kváðust hafa verið
teknir að örvænta um mína
þangaðkomu. Var þegar í stað
drukkin skál Islands í hinum
víðfræga þýska miði, en mag-
ister bibendi setti mig sér til
hægri handar og spurði mig
tiðinda. Síðar varð eg að
ganga fyrir fulltrúa hvers
lands fyrir sig og segja þeim
nokkuð af Islandi og virtust
mér fáir þaulkunnugir uin
land vort; jafnvel einna síst
vorir nánustu frændur.
Haus der Schiffergesellschaft er æfa-
fornt að öllum húsbúnaði, útskornar brik-
ur, bakháir bekkir og lítt hefluð langborð.
Þar loguðu kyndlar að fornum sið og voru
myndirnar og áletranirnar á veggjunum
Tveir seiðmenn
Sigurður Skúlason stud. mag.
mjög teknar að sortna af reyk. Var lík-
ast því sem maður gengi beina leið inn
í miðaldirnar, er komið var innjí þetta
einkennilega, en þó skemtilega hús. Hér
giltu enn hin fornu kappdrykkjulög. Var
Licentiat Dag Strömback og