Stúdentablaðið

Årgang

Stúdentablaðið - 01.12.1926, Side 23

Stúdentablaðið - 01.12.1926, Side 23
1 926 STÚDENTABLAÐ 17 dauða og',gerði 60—80 þúsund stúdentum fært að halda áfram og lúka námi. íþróttahreyfingin hefir sprottið af bardaga- eðlinu. Hverskonar líkamsmenning hefir stórum eflst fyrir aðgerðir Stúdentasam- bandsins, eigi einungis meðal stúdenta sjálfra, heldur þjóðarinnar í heild. Hafa stúdentar gert þá allsherjarsamþykt sín á millum, að enginn skuli fá að taka em- bættispróf, nema hann hafi áður stundað líkamsæfingar að staðaldri í tvö ár. Er þetta einskonar uppbót fyrir heræfingar þeirrar almennu varnarskyldu, sem afnum- in var með friðarsamningunum og vitan- lega var afbragðs-skóli líkainlegrar hreysti. En menningarbarátta stúdentaforingjanna hefir leitt til víðtækra umbóta á háskól- unum. Reynt er nú að efla meir alhliða þekkingu stúdentanna en áður hefir tíðk- ast og hjálpa þeim til að skapa sér sem fullkomnasta heimsskoðun. — Var erindi þetta mjög athyglisvert og hið fróðlegasta, þótt hér verði fátt eitt af því sagt. Hr. Gerloff var sjálfur einn af frumstofnend- um þessarar stórkostlegu sjálfsbjargarvið leitni stúdentanna. Loks talaði cand. jur. Bergli-Malmö (sænskur maður) og lýsti norrænu stúd- entalífi af mikilli fyndni og andríki. Panst Þjóðverjum mikið til um ræðu hans, enda voru þeir alls ófróðir um það efni. í umræðunum á eftir var gerð svohljóð- andi samþykt: „Stúdentar þeir frá Svíþjóð, Danmörk, Noregi, Pinnlandi, íslandi og Þýskalandi, sem nú eru samankomnir í Lúbeck, tjá sig þess fúsa, að viðhalda í framtíðinni þeim persónulega kunningsskap, sem stofnað hefir verið til á mótinu. Tilraun væntanlegrar samvinnu verður hagað sem hér segir: 1. Utgáfa fréttablaða fyrir stúdenta. 2. Gagnkvæm aðstoð við útgáfu þessara blaða. 3. Upplýsingar um stúdentalíf við ein- staka háskóla og skýrslur um erlenda stúdenta við hvern skóla.11 Var þá dagskránni lokið. En einn full- trúi frá hverju landi mælti nokkrum þakk- arorðum til þeirra, sem veitt höfðu mót- inu svo ágæta forstöðu og sömuleiðis fyr- ir hinar gestrisnu viðtökur í Lúbeck. Lauk mótinu með hraustlegu „Gaudeamus igitur“. öllum þeim, er sóttu mót þetta mun verða það minnisstætt á margan hátt, ekki síst vegna þess, að um leið og þvi lauk, liófst 700 ára hátíð Lybiku, er stóð yfir þrjá daga. Dvaldist allur þorri stúdent- anna í Lúbeck meðan á hátíðahöldunum stóð, svo að þeim gafst enn mikill kostur á að kynnast betur. Nordische Gesellschaft hafði boðið full- trúunum til hljómleika i Maríukirkjunni um kvöldið. Sem einskonar preludium að hátíð- inni höfðu verið valdir til meðferðar snill- ingarnir Buxtehude og Bach. Hinir vold- ugu hljómar: Gloria in excelsis og Singet dem Herrn ein neues Lied, virtust blása lífi í kalda steinveggi þessarar merkilegu kirkju og lyfta sálunum upp í heim róm- antískra drauma. Hin fornfræga Kansa- borg íklæddist enn ljóma ævintýrsins. Hinar forkunnar-stílfögru byggingar voru skrautlýstar og rauði og hvíti borgarfán- inn blakti úti fyrir hverjum glugga. En úti á höfninni lá nýtísku bryndrekinn „Emden“ og varp geisisterku kastljósi yfir turnana sjö, sem eru höfuðstolt og prýði borgarinnar. Benjamín Kristjánsson. -----o----

x

Stúdentablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.