Stúdentablaðið

Årgang

Stúdentablaðið - 01.12.1926, Side 24

Stúdentablaðið - 01.12.1926, Side 24
18 STÚDENTABLAÐ 1926 Þoka. Ævintýri. Gamla fólkið segir, að þokan sé kóngs- dóttir í álögum og sá smali geti leyst hana úr álögunum, er stilli sig um að bölva henni í fimtán ár. En eg veit ofurlítið meira. Eg hef heyrt söguna eins og hún gerðist. Iieimildir mín ar eru öldurnar, sem hlæjandi hjala við fjöruborðið, þokan sjálf, sem líður yfir kolsvarta sandana og loks hefur drangur- inn uppi í hlíðinni sagt mér sína sögu. Sagan er á þessa leið: Við ströndina voru háar brekkur. Þær voru grasi grónar og skreyttar með blá- gresi og lyngi. Birkirunnar og reynitré sveifluðu greinunum, þegar vindurinn þaut, og kliðurinn heyrðist langar leiðir, þegar laufin slógust saman. Smalinn úr Garðshorni var vanur að halda ám sínum þar til beitar. Þær dreifðu sér um brekkurnar og hámuðu í sig grasið. En niðri við ströndina voru svartar klappir. Þar nauðaði hafaldan nótt og nýt- an dag. Og þegar stormviðri geysuðu, sax- aði brimið þarann og þeytti honum upp á land. Þar sölnaði hann og dó. Þegar bárurnar ýfðu kambana, var eins og hvít- sigldum skipum væri stýrt að landi. En ef sólin skein og sjórinn var kyrr og lygn, kom lítil hafmey upp að klöppunum. Hún velti sér í vatnsskorpunni og let jarpa lokkana flaxast. Limaburðurinn var mjúk- ur og liðlegur, hver hreyfing annari feg- urri. Uppi á ströndinni sat smalinn og horfði á hafmeyna. Honum fanst hún vera opin- berun yndis og fegurðar úr einhverri ver- öld, sem honum væri lokuð. Hann horfði yfir hafið, silfurgrátt og sindrandi, en kuldalegt. Honum fanst það vera að skora á sig að sækja í hendur sér alla þá dýr- gripi, sem lægju fólgnir í undirdjúpum. Smalinn gekk ofan á klappirnar. Iíaf- meyjan þeytti sjóinn, svo að hann freyddi. — Hann settist niður. Hún nálgaðist klapp- irnar. Þegar sólin vermdi klappirnar og hreinskær morgundöggin þornaði af gras- inu, sátu þau saman við sjóinn, smalinn úr Garðshorni og einkadóttir sjávarkóngs- ins. öldurnar hvísluðu: „Þið fáið aldrei að njótastu. Laufið á trjánum sagði lágt: „Ást ykkar þornar upp eins og dögginu. En smalinn úr Garðshorni sagði: „Eg elska þig. Við mætumst hér á klöppunum á hverjum degi þangað til haddur þinn verður hvítur eins og særokið, en höfuð mitt eins og jökultindur. Hefurðu séð þeg- ar sólin skín á rjúkandi hafið og fölvan gadd. Þannig skín ástin á okkur fram á síð- ustu stundu. Hafmeyjan litla titraði í faðmi hans. „Þú kemst ekki lengra inn í ríki mitt og eg ekki heldur inn í þína veröld. Ást okkar hnýtir saman land og sjó. En eg er ekki hafið alt og ást mín er ekki hið eina sem ræður. Faðir minn er voldugur, en hjarta hans kalt eins og ís. Ef hann heyr- ir um ást okkar, fæ eg aldrei leyfi til að koma“. „Þú kemur samt“, sagði smalinn. „En það getur í'arið veru, sagði haf- meyjan. „í sjónum eru töframenn miklir og álög þung. Hugsaðu þér, að nornirnar breyttu mér í dýr, fisk, sem biti á öngul þinn, eða fugl, sem þú rotaðir með steini“. „Eg mun ætíð þekkja þig“, sagði smal- inn. „I augum þínum mætast himinn og haf. Þig mun eg ætíð þekkja“. Iíafmeyjan grét. Brjóstið lyftist eins og undiraldan. „Sérðu steindrangana uppi í hlíðinni?“ hélt hann áfram. „Þeir eru kaldir og harð- ir. Eg legg svo á sjalfur og mæli um, að á þeirri stundu, sem eg ekki þekki þig, skuli eg verða að steini hvar sem eg stend“.

x

Stúdentablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.