Stúdentablaðið

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Stúdentablaðið - 01.12.1926, Qupperneq 27

Stúdentablaðið - 01.12.1926, Qupperneq 27
1926 STÚDENTABLAÐ 21 Stúdentagarðurinn. Eins og lesendum Stúdentablaðsins er kunnugt, hófu stúdentar fjársöfnun til stúdentagarðsbyggingar fyrir réttum fjór- um árum. Fjársöfnunin hefir gengið von- um framar. í sjóði eigum vér nál. 90 þús. kr. og í gjafaloforðum, sem væntanlega greiðast á næstu 2—5 árum, um 45 þús. Frá ríkissjóði fær sjóðurinn á næsta ári 50 þús. kr., samkv. fjárlögum. Nemur þetta alls um 185 þús. kr. Samkv. undirtektum síðasta Alþingis og ríkisstjórnar teljum vér sjóðnum vissar 50 þús. kr. frá ríkinu á fjárlögum 1928. Verða þá allar eignir og vonir sjóðsins nál. 235 þús. kr. En betur má, ef duga skal. Gert er ráð fyrir, að garðurinn kosti uppkominn 300 —350 þús. kr. Það fé, sem enn vantar á þessa fjárupphæð, vonum vér að fá með frjálsum framlögum einstakra manna og félaga, og þá einkum bæja- og sýslufélaga. Nokkrar sýslur og bæir hafa nú þegai ► ákveðið að „kaupa“ herbergi í garðinum, er beri nafn sýslunnar eða bæjarins og hafl stúdent þaðan forgangsrétt til þess herbergis. Vér stúdentar berum ríkar von- ir í brjósti, að skilningur íslensku þjóðar- innar fari enn vaxandi á þessu nauðsynja- máli voru, og á þessum vetri bætist í hóp- inn allar þœr nýdur og bœir, sem enn sitja hjá. Frá Vestur-íslendingum eigum vér og fjárvon. Ný selskinna var gjörð í fyrra og send vestur um haf. Heitir hún Vestur- íslendingabók. Hver Vestur-íslendingur, er þar skráir nafn sitt, geldur J/2 dollar til bókarinnar. Rennur helmingur þess beint til garðsins, en hinn helmingurinn í sjóð, sem varið skal til styrktar vestur- ísl. stúdentum, er vilja stunda nám við Háskólann hér. Enn er eigi fullráðið, hvar Stúdenta- garðurinn verði reistur. Stúdentagarðs- nefndin hefir beðið bæjarstjórn Reykjavík- ur um lóð undir garðinn í Skólavörðuhæð- inni. Margt mælir með þessum stað, með- al annars er þar afburðafagurt og vitt út- sýni, Landsspítalinn er þar skamt frá, og ekki væri það síst hagkvæmt fyrir garð- inn að njóta góðs af laugavatninu, sem í ráði er að leiða til Landsspítalans og barna- skólans og nota til upphitunar. Loks má minna á háborgarhugmyndina, sem stöðugt festir dýpri rætur í hugum manna, þótthún hafi mætt nokkurri andúð, vegna óheppi- legra tillagna, sem komið hafa fram frá ráðandi mönnum. Stúdentagarðsnefndin hefir ákveðið að bjóða út teikninguna að garðinum og gefa öllum, er vilja, kost á að keppa. Var ráð- gert að tilkynna samkepnina í byrjun sl. mánaðar, en vegna einhverra tafa, höfum vér enn ekki fengið endanlegt svar frá bæjarstjórn Rvíkur við beiðni vorri um lóðina. Dragist það ekki lengi enn, reis- um vér garðinn, eða hluta af honum, næsta sumar. Vér höfum þegar nægilegt fé til þess að geta hafist handa og byrjað á verkinu. Og Stúdentagarðurinn verður að rísa sem fyrst, traustur og fagur, stúdentum til heilla og þjóðinni allri til sæmdar. Lúdvig Gubmund8Son, ----o---- Hrapið. Eg var sem í hugljómun hæstri, hendi mín skrifaði greitt. Eg hálfur í himninum lifði, um hinn partinn vissi’ eg ei neitt. Eg skrifaði, en hugurinn hálfur, sem himnanna dvaldi í rann, hendinni skipaði’ að skrifa; í skínandi gleði eg vann. Mig bar sem 1 ljúfustu leiðslu svo langt yfir dægurstríð

x

Stúdentablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.