Stúdentablaðið - 01.12.1934, Qupperneq 8
4
STÚDENTABLAÐ
kostað hafa of fjár. En það, sem öll jarð-
rækt fyrst og fremst byggist á, efnasam-
setning- jarðvegsins og gerlagróðurinn í hon-
um, má heita að vera órannsakað mál, og
enn er enginn kominn til að segja, hve mik-
ið fé árlega fer í súginn fyrir það. Árið
Í932 kom hingað einn hinn fremsti kunn-
áttumaður Dana í jarðvegsfræði, próf. Fre-
derík Weis, maður, sem unnið hafði mikið
nytjaverk með rannsóknum sínum og fund-
ið nýjar og auðveldari aðferðir til að rækta
upp óræktarlöndin í heimalandi sínu, heið-
arnar józku. Hann skoðaði jarðveg hér og
lét svo um mælt, að hann vildi vera orðinn
ungur í annað sinn og mega gefa sig við
rannsóknum á íslenskri mold, svo mörg og
merkileg viðfangsefni sagðist hann sjá, að
þar biðu úrlausnar. Hann tók með sér mörg
sýnishorn af mold, en entist ekki aldur ti!
að rannsaka þau til hlítar. Viðfangsefnin í
moldinni bíða enn úrlausnar, úrlausnar ís-
iendinga sjálfra, sem sú mold hefir borið,
og höfum vér ráð á að láta þau bíða lengur?
Það er með þetta fyrir augum, sem hér
hefir verið sagt, að ýmsir menn frá Há-
skólanum hafa um skeið vakið máls á því,
að komið yrði á stofn við Háskólann deild,
er hefði með höndum hagnýtar rannsóknir
í þarfir atvinnuvega þjóðarinnar. Þeir hafa
viljað, að vér tækjum oss til fyrirmyndar
ungu háskólana frá síðustu ái'atugum, sem
n.argir hafa slíkar rannsóknardeildir. Þetta
mál er nú komið á þann i-ekspöl, að háskóla-
ráðið hefir sent landsstjórninni frumvarp
til laga um stofnun þessarar deildar, og
hefir frumvarpið verið borið fram á Al-
þingi. Kemur nú til kasta Alþingis um af-
drif þessa máls. Ilver sem þau verða, þá
hefir Háskólinn með þessu sýnt, að hann
vill taka ærinn þátt í baráttu þjóðarinnar
fyrir lífinu, fyrir tilveru sinni. Þá baráttu
befir þjóðin að vísu áður háð, en líklega
aldrei tvísýnni eða alvarlegri en nú.
14. nóv. 1934.
Stúdentagarðurinn
í haust er stórmáli, sem' stúdentar hafa
barist fyrir um margra ára skeið, vikið
heilu í höfn. Stúdentagarðurinn, sem hefir
kostað svo mikla baráttu og erfiðleika, er
kominn upp.
Eigi er hér rúm til að °eta allra þeirra,
sem stutt hafa að byggingu Garðs, en þar
liafa margir unnið ósleitilega og verið gefn-
ar stórgjafir, og fyrir dugnaö og drenglund
slíkra manna, er nú til heimili fyrir 34 stúd-
enta, sem hafa þar ódýrt og gott húsnæði
og um leið betri skilyrði til að búa sig undir
þau störf, sem bíða þeirra. Ennfremur mun
allt félagslíf stúdenta glæðast mikið, því
húsleysið hefir staðið því tilfinnanlega fyrir
þrifum.
Á Garði búa nú 37 stúdentar og fluttu
flestir þangað 1. okt., en þá var Garður
<?i <y—
Herbergi á Garðj