Stúdentablaðið - 01.12.1934, Blaðsíða 18
STÚDENTABLAÐ
14
Magnús Jónsson
prófessor
2. október síðastl. andaðist hér á Land-
spítalanum Magnús Jónsson, áður prófessor
í lögfræði við Háskóla Islands. Hafði hann
fyrir nokkru látið af embætti vegna sjúk-
leika og legið langar legur hér á sjúkra-
lnísum, en meinið var hjartabilun. Hann var
56 ára gamall, fæddur á Úlfljótsvatni í
Grafningi 17. júlí 1878, og ólst þar upp,
l'yrst hjá foreldrum sínum, en síðan hjá
móður sinni eftir að hún missti mann sinn
8. apríl 1885. Magnús var vel kynjaður í
báðar ættir. Faðir hans, Jón Þórðarson, og
forfeður hans höfðu lengi búið, maður eftir
mann, á Úlfljótsvatni.
Magnús gekk inn í Latínuskólann vorið
1892 og- útskrifaðist þaðan 1898. Fór þá á
háskólann í Kaupmannahöfn og lauk þar
prófi í lögfræði 19. febrúar 1904. Var hann
talinn afbragðs námsmaður bæði í Latínu-
skólanum og við háskólann, sem og nokk-
uð má marka af því, að eftir lögfræðis-
prófið fór hann að lesa hagfræði og tók
próf í henni 10. júní 1907. Er það fágætt,
að menn taki háskólapróf í tveimur fræði-
greinum, og sýnir mikla námíysi og áhuga.
Magnús var á þeim árum hraustur vel og
heilsugóður og iðkaði mjög líkamsíþróttir,
fór t. d. daglega i sjó sumar og vetur,
hvernig sem veður var. Er það sumra ætl-
un, að hann hafi gert ofmikið að þessu og
spillt með því heilsu sinni. Hann var mikill
vexti og sterkur, en fríður sýnum, og var
hann talinn hinn mesti efnismaður.
Skömmu eftir að hann tók lagaprófið
livæntist hann danskri konu, frk. Harriet
Bonnesen, og var faðir hennar stórkaup-
maður í Kaupmannahöfn, ríkur maður og
vel metinn. Varð þetta til þess, að Magnús
settist að ytra. Magnús fékk aðstoðar-
n:annsstarf í Magistraten í Kaupmannahöfn
og gegndi því í mörg ár.
Hann varð ritari nefndarinnar, sem fjall-
aði um sjálfstæðismál Islands 1918, þegar
Danir viðurkenndu fullveldi þess, og var
hér heima með dönsku nefndarmönnunum
sumarið 1918. Einnig var hann ritari nefnd-
ar þeirrar, sem Danir sendu til Genf eftir
cfriðarlokin, vegna suðurjózku málanna.
Hann var og ritari dansk-íslenzku millilanda-
nefndarinnar fyrstu árin eftir fullveldisvið-
urkenninguna og var hér méð hinum dönsku
nefndarmönnum sumarið 1920. Mun þá hafa
kcmið til orða, að hann fengi embætti hér
heimia, og næsta ár varð hann prófessor f
lögum hér við háskólann.
Við stjómarskiptin næsta ár varð hann
íjármálaráðherra í ráðuneyti því, sem Sig-
urður Eggerz þá myndaði, og var Magnús
þar fulltrúi Framsóknarflokksins. En hann
var ekki nema rúmt ár í þeirri stöðu, og tók
þá aftur við embætti sínu við háskólann.
Hefir hann ritað í Árbók háskólans fróð-
lega ritgerð um almennar líftryggingar, og
er hún hin þarfasta hugvekja og hið helzta,
sem fram hefir komið um það mál á okkar
tungu.
Magnús var mjög hneigður fyrir landbú-
skap og vatna-veiðimennsku. Mörg ár bjó
hann á sumrum austur við Þingvallavatn á
landskika, sem hann átti þar. En fyrir
nokkrum árum tók hann við föðurleifð
sinni, Úlfljótsvatni, og rak þar búskap,