Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.1934, Blaðsíða 12

Stúdentablaðið - 01.12.1934, Blaðsíða 12
8 STÚDENTABLAÐ íkolast áin sumstaðar upp að aldagömlum múrunum, en hinu megin grænar grundir, tijáraðir og blómagarðar. Þetta eru hinir víðfrægu Backs (bakgarðar). Brýr og stein- bogar, margvíslegir að gerð, tengja stúd- cntabústaðina við þessa garða og auka á yndisfegurð árinnar. Einn af stúdentagörð- unum, St. John's College, liggur á báðum bökkum árinnar, og er tengdur saman með yfirbyggðri brú. Ilverjum stúdentagarði tilheyrir bókasafn, stórt og fullkomið, og kapella. Eru þæc margar stórar og afbragðsfagrar. 1 sam- komusalnum (Hall) ,sem jafnframt ermatsai_ ur, safnast allir stúdentar garðsins og kenn- arar til máltíða a. m. k. einu sinni á dag. Hver stúdent hefir jafnan 2 herbergi tii íbúðar, svefnklefa og stofu. Mjög eru hý- býli stúdentanna misjöfn, sumstaðar dimm og þægindalaus smáherbergi, en annars- staðar stórir og skrautlegir salir með rík- mannlegum húsgögnum. Töluvert strangur agi er á stúdentagörð- unum, og býst ég við, að okkar stúdentar yndu varla öðrum eins. Engum er leyfð út- ganga eftir kl. 10 að kvöldi, og fyrir kl. 12 verða allir að vera komnir inn. Dyraverð- irnir hafa á þessu strangar gætur, og ekki er árennilegt fyrir þá, sem seinir verða í tíðinni, að klifra yfir múra'na, sem umlykja stúdentagarðana og eru oft fleiri mannhæð- ir, að ofan alsettir göddum eða oddhvössum glerbrotum. Sama aga hlýta stúdentar þeir, sem úti í bænum búa. Eru húsmæðurnar oft Englandsfararnir: Sigurður Samúelsson, stud. med., Baldur Johnsen, stud. med., Auður Auðuns, stud. jur., Lea Eggerts- dóttir, stud. mag., Páll Hallgrímsson, stud. jur. og Bjarni Bjarnason, stud. jur. og tíðum strangari en dyraverðir stúdenta- garðanna, þar sem þær eiga á hættu að missa leyfið til að leigja stúdentum, ef þær eru staðnar að því að gefa rangar skýrslur um hegðun þeirra. Eftir að rökkva i'er á kvöldin verða allir stúdentai’ að klæðast „cap and gown“, en svo er nefndur cinkennisbúningur þeirra. Umsjónarmenn frá stúdentagörðunum (proctors) þekkja þá stúdentana frá öðrum borgarbúum, og séu ]>eir með óspektir eða hávaða á götunum, sem oft skeður, er hægur vandi að ná í söku_. dólgana og sjá um, að þeir sæti refsingu, sem oftast er sekt. Ekki þýðir stúdentun- um að ætla sér að hlaupa frá þessum refsi- vöndum háskólaagans, því að þeir hafa með séi' fóthvata aðstoðarmenn.sem stúdentarnir kalla ,,bulldogs“, enda hækkar þá refsingin um helming. Búningur stúdenta er leifar frá klæðnaði stúdenta á miðöldunum. „The gown“ er mussa eða skykkja tæplega hné- síð, með ótal rykkingum og fellingum á baki og opin að framan. Oftast er hún svört á lit, einstöku sinnum dökkblá og að öðru leyti ofurlítið mismunandi fyrir hina ýmsu stúdentagarða. Á sumum þeirra eimir eftir af einskonar vasa eða poka rétt hjá erma- opinu, og betluðu stúdentar forðum sé>- fæðu í hann. „The cap“ er einkennileg kolL húfa með ferhyrndu spjaldi á hvirfli og skúf á því miðju, svört að lit. Sama búning bera kennarar og M. A.s, en úlpa þeirra er síðari og skúfurinn lengri á húfunni. Bún- ing þenna bera og allir við fyrirlestra og

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.