Stúdentablaðið

Årgang

Stúdentablaðið - 01.12.1934, Side 17

Stúdentablaðið - 01.12.1934, Side 17
STÚDENTABLAÐ 13 sýnt, að afkasta má listrænum afrekum samfara öðrum störfum, og- er sú viðleitni mjög lofsverð. Til allrar hamingju njóta góðir hæfileikar oft viðurkenningar hér á íslandi, hvað sem líður titlum og stimplum. Bráðum eignast Island þjóðleikhús, en það verður þjóðinni hvöt til þess að semja ný leikrit. Hér er gnóg-t viðfangsefna úr fortíð og nútíð, og- vissulega má vona, að erlendum leikritasýningum fækki að mun frá því, sem nú er. — Ég gat þess áðan, að leikritagáfan er til, og hún mun betur koma í ljós, þeg-ar aðstæður batna. Vonandi kem- ur sá tími, að íslenzk ópera verði sýnd hér. Það er augljóst mál, að leikhúsið getur ekki haldið uppi stórri hljómsveit né fjöl- mennum leikflokki, en eigi að síður má gera sér vonir um, að hin tiltölulega mikla gáfa og fórnfýsi leikaranna geti haldið uppi íslenzkri leiklist. Þessum erf- iðu kringumstæðum virðist jafnvel fylgja einn kostur: I stað erlendra leikbragða nvun leikhúsið geta þroskað innlenda, þjóð- lega krafta. í því er fólgin von um þjóðlega list með íslenzkum hætti. Minni hætta er á því, að myndlistin, högg- myndalist og málaralist, verði fyrir erlend- cm áhrifum. Þar liggur vörnin í viðfangs- efni því,sem listamennirnir velja sér, landinu sjálfu, með öllum þess einkennum. Sams- konar tap og verður, þegar ritverk íslenzkra höfunda eru þýdd af erlendu máli á ís- lenzku, kemur ekki til greina, meðan lista- mlennirnir velja sér íslenzk viðfangsefni. Því miður er hér líka tilfinnanlegur skortur á útbreiðslumög-uleikum. En framavegur getur þetta verið: tslenzk myndlist getur eignazt útlenda aðdáendur, sökum þess að listaverk- in eru auðskilin og þurfa engrar útlistunar. Hrifning manna er því meiri, því stórbrotn- ara sem viðfangsefnið er, og betur í samræmi við land listamannsins, því að þá setur það fram eitthvað sérstakt. Til eru önnur svið, sem virðast hafa möguleika fyrir sjálfstætt menningarlegt líf íslendinga. Samt getur manni ekki dulizt sú hætta, sem stafar af því, að mörgum liættir til að herma eftir Ameríku og ev- rópeiskum þjóðum, og getur það spillt fyrir frumlegi-i íslenzkri list, enda apa menn það oftast eftir, sem lakast er. Ýms erlend menning, sem flutt er til Is- lands, verður hér eins og útbúnaður í brúðu- etofu. Island verður að velja sér fyrirmynd- ir og viðfangsefni við sitt hæfi. Háskóli Is- iands, helzta vísindastofnun landsins, verður fyrst og fremst að annast rækt og hirðingu íslenzkrar menningar, ekki sízt nýrri tíma. Hér er verkefni, sem þessi háskóli verður aó leysa einn og getur líka leyst: að rækta arf íslenzkrar menningar. Enginn háskóli er metinn eftir tölu deilda sinna, heldur þeii’ri dýpt, sem hann nær á einstökum sviðum. Það, að halda uppi þjóðlegTÍ menningu og útbreiða liana, er styrkur fyrir pólitískt sjálfstæði íslands. Land án hers og vopna getur því aðeins leitað sér verndar í því, að það hafi verðskuldað að vera viðurkennt sem menningarþjóð. Það hefir ætíð verið tal- inn lítill heiður að kúga þjóð með hárri menningu og hefir slíkt vakið mótmæli fiestra siðaðra þjóða. Heiminum er það mikilsvert að halda uppi margbreytni í lífi þjóðanna. Væri allt á sömu bókina lært, blyti það að leiða til andlegrar fátæktar r. eðal allra menningarþj óða. Bruno Kress. Stúdentasöngbókin. Ix)ks er ný stúdentasöngbók komin út. Er út- gáfa hennar eitt af afrekum Stúdentafélags Reykjavíkur. Hafa stúdentar fundið skort henn- ai tilfinnanlega að undanföniu við orgíur sínar, j-egar sönggáfan hefir komið yfir þá inter procula. Nú er því nóg til að syngja, en eftir eru sterku vinin til að knýja sönggáfuna fram. Skýtur Stúdentablaðið þeirri athugasemd til liáttvirts xVlþingis, og vonar að það skilji, að tvennt er það, sem óaðskiljanlegt er: Sterku vínin og söng- bókin.

x

Stúdentablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.