Stúdentablaðið

Volume

Stúdentablaðið - 01.12.1934, Page 21

Stúdentablaðið - 01.12.1934, Page 21
STÚDENTABLAÐ 17 Fagra veröld - Tómas Guðmundsson Það getur stundum komið fyrir mann, sem er á rölti hér um miðbæinn, að honum detti eitthvað í hug’, sem hann heldur, að ong'um hafi dottið í hug áður, eða sjái eitt- livað öðruvísi en hann sá hað í gær eða fyrradag. Og honum er um megn að víkja þessu úr huga sér, fyrr en hann getur látið hað í ljós á einhvera hátt, í tónum, mynd eða ljóði. Og hið undarlega getur hent, að yrkisefnið verði svo tengt höfundinum, að maður geti naumast hugsað sér annað án liins. Að minnsta kosti get ég ekki munað lengur, hvort ég kynntist Tómási Guð- mundssyni fyrst í Austurstræti eða Aust- urstræti fyrst hjá Tómási Guðmundssyni. En eitt er \ast, að ég get varla hugsað mér Austurstræti án T(Smásar eða Tómás án Austurstrætis. Tómás kann mikið í heimspeki Austur- strætis. Þar hefir hann fundið unnustur sínar á stjömubjörtum kvöldum, hegar máninn stóð hálfur yfir Esjunni, og har hefir hann týnt heim aftur, eitthvað út í rökkrið, og eftir situr bara skugginn eins og kolsvartur hrafn á hvítri Pallasmynd úr ieir. Og hrafninn rekur nefið inn í hlust lionum og grenjar: — Aldrei meir! Annars veit ég ekki hvernig á hví stendur, að heg- ar ég las hið skemmtilega kvæði Tómásar um Austurstræti, há datt mér í hug franskt kvæði, sem ég var búinn að gleyma, eða réttara sagt, sem ég gat aldrei almennilega lært, utan eina vísu. Hún er um hinn guð- dómlega gleðileik, lífið sjálft, har sem allar persónumar deyja í fimmta h^tti, og er eitthvað á hessa leið: On entre, on crie; c’est la vie. On crie, on sort; c’est la mort. Kvæðið um Austurstræti er kvæðið um hina hraðfleygu æsku hins hverfula sum- ars. Og við vitum, að eftir fer dauðinn, hinn rnikli magister bibendi, sem að lokum segir slitið hinni dásamlegu orgíu lífs vors, og há sjáum við mest eftir hví, að hafa ekki vakað dálítið lengur. Ekki verður sagt, að landnám Tómásar sé víðfeðmt. Af hinu forna landnámi Ing- ólfs hefir hann ekki helgað sér annað en Reykjavík, frá Vatnsniýrinni að Vestur- bænum, að báðum stöðum meðtöldum. En á hessu svæði er hann líka kunnugur. Eina nótt, hegar borgin svaf við opna glugga, hefir hann dvalið við Vatnsmýrina í minn- ingu heirra söngva, sem eru löngu dánir og hlustað á lóuna, sem var að æfa lögin sín undir konsertinn, sem hún ætlaði að halda daginn eftir. En hann er minnugur hess, að allt er hverfult, og hinar björtu nætur sumarsins hverfa bráðum inn í sorta skammdegisnóttanna: Ó, sál mín, sál mín! Svona komu forðum sumurin öll, sem horfin eru í bláinn. Og hað sem hann sér og heyrir, verður honum um megn; hann rís hljóður á fætur og dregur tjöldin fyrir gluggann. Svo koma hessar ljóðlínur úr kvæðinu „Sumargestir", sem ég veit ekki almennilega, hvort eru heldur ljóð, lag eða málverk:

x

Stúdentablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.