Stúdentablaðið - 18.03.1959, Page 1
VERÐ: 4 KR
§TtDENTABLAÐ
2. TDLUBLAÐ
REYKJAVIK, 1B. MARZ 1959
XXXVI. ARG.
memoriam
O
BJDRGVIN
ln
DAVIÐ
Davíð Sigurðsson, f. í Rvík 19.
janúar 1936, dáinn 18. febr. 1959
Eftir hina miklu sjóskaða,
sem þjóðin hefur nú orðið fyrir,
á margur um sárt að binda.
Margir ungir og efnilegi'r menn,
sem miklar vonir voru bundn-
ar við, eru nú horfnir af sjónar-
sviðinu. Meðal þeirra voru tveir
stúdentar.
Annar þeirra, Davíð Sigurðs-
son, fórst með vitaski'pinu Her-
móðir, er hann var á leið frá
Vestmannaeyjum til Reykjavík-
ur. Hafði hann oftast unnið þar
um borð, er hann var eigi við
nám.
Hann varð stúdent frá
Menntaskólanum í Reykjavík
árið 1956. Stundaði hann síðan
nám í skipaverkfræði í J>ýzka-
landi við háskólann í Hannover.
Er hann kom heim, nú um jól-
in, var það ætlun hans að Ijúka
við nokkurn hluta af námi sínu
við verkfræðideild Háskóla Is-
lands á næsta vetri.
Við bekkjarbræður hans og
skólasystkin söknum góðs vin-
ar og félaga. X>ó að hann sé ekki
lengur meðal okkar, eigum við
samt minninguna um hann. Við
minnumst með þakklæti margra
góðra samverustunda, þar sem
gleði ríkti og engan skugga bar
á. Við viljum að lokum votta
foreldrum hans og systkinum
einlæga samúð okkar við frá-
fall hans.
• • •
Björgvin Jóhannsson, stud.
med., var fæddur í Reykjavík
13. júní 1929.
Foreldrar hans voru þau
Ragnheiður Bjarnleifsdóttir,
sem lifir son sinn, og Jóhann
Jóhannsson, skipstjóri í Boston.
Jóhann fórst á Nýfundnalands-
miðum í febrúarbyrjun 1952.
Björgvin settist í Menntaskól-
ann í Reykjavík haustið 1948
og lauk stúdentsprófi þaðan vor-
ið 1952 með hárri I. einkunn,
enda var hann ágætur náms-
maður, kappsfullur, ötull og
flugnæmur.
Hann hóf nám í læknisfræði
við Háskóla Islands haustið
1952.
Eins og flestir íslenzkir stú-
dentar vann Björgvin fyrir sér
samhliða náminu. I lok s.l.
janúarmánaðar hafði hann ráð-
ið sig á togarann „Júlí“, sem
var þá að fara á Nýfundnalands-
mið. Skipið kom ekki aftur úr
þeirri för, og mun hafa farizt
í kringum 8. febrúar s.l.
Björgvin var kvæntur Arn-
heiði Magnúsdóttur, og áttu þau
tvö börn. Hið eldra, Ragnheið-
ur, er fætt í desember 1957, en
hið yngra er óskírt meybarn,
sem fæddist nú í febrúar.