Stúdentablaðið

Årgang

Stúdentablaðið - 01.02.1993, Side 3

Stúdentablaðið - 01.02.1993, Side 3
Ljósmynd Ásdís Ásgeirsdóttir Ljósmyndamaraþon H L A U P ! Og þú færð eina tilraun til að taka Ijós- mynd sem felur í sér merkingu þessa stikkorðs. Hlaupandi fólk, leysingar eða marglitar sælgæt- isskepnur? Hér reynir fremur á hugarflug og útsjónarsemi en ljósmyndagræjurnar. Tólf ólík verkefni á tólf tímum. Allir stúdentar geta verið með í Ijós- myndamaraþoni Stúdcntaráðs! Maraþonið verður haldið laug- ardaginn 6. febrúar og hefst klukkan 11 að morgni. í anddyri aðalbyggingar Háskólans fá kepp- endur afhent keppnisgögn sem eru ein tólf mynda litfilma frá Kodak, tólf stikkorð og leiðbeiningar. Svo er bara að leysa þrautirnar eins og hver og einn vill og skila átekinni filmunni á ákvörðunarstað innan tólf tíma. Verðlaunin eru mjög vegleg eða ljósmyndabúnaður. Veitt eru verðlaun í nokkrum flokkum: Besta heildarlausnin á öllum tólf þrautunum, besta myndin í hverj- um flokki og besta cinstaka mynd- in. Allir eiga því möguleika á að vinna til verðlauna, jafnvel þótt tvítuga imbamatik-vélin hafi klikkað í ellefu skipti af tólf. Karl Pétur Jónsson hefur und- irbúið ljósmyndamaraþonið fyrir Stúdentaráð: „Þetta er mjög spennandi og skemmtilegt verk- efni og það besta er að allir stúd- entar geta tekið þátt, þrátt fyrir litla kunnáttu. Þetta snýst um að fá frjóar hugmyndir og geta fram- kvæmt þær hratt og þá skiptir ekki máli hvort tækin kosta flmm þús- und eða fimm hundruð þúsund.“ Ráðgjafarþjónusta námsmanna Atvinnumálanefnd Stúdenta- ráðs er nú með til umfjöllunar hugmynd um stofnun nemenda- fyrirtækis eða ráðgjafarþjónustu námsmanna. Slík fyrirtæki hafa víða verið starfrækt í nágranna- löndunum og meginmarkmiðið er að tryggja stúdentum vel borgaða vinnu þar sem menntun þeirra nýt- ist við hagnýt störf. Fyrirtæki geta leitað til svona ráðgjafaþjónustu með ýmis verk- efni sem þarf að leysa. Þessi verk- efni geta verið á hinurn ýmsu sviðum en er komið til umsjónar- manns í viðkomandi fagi sem út- vegar stúdenta til starfans. Þar sem um nemendafyrirtæki er að ræða er þjónustan ekki seld fullu verði og er því hagstæður valkost- ur fyrir mörg fyrirtæki. Rekstur nemendafyrirtækjanna hefur gengið vel erlendis og stúd- entarnir sem unnið við þau hafa haft góð laun. Stúdentarnir hafa einnig komist í beint samband við fyrirtæki og orðið eftirsóttir í vinnu. Nú er verið að kynna hug- myndina fyrir ýmsunt aðilum hér- lendis og leita að styrktaraðilum sem gætu tekið þátt í stofnkostn- aði. Kennara- fundur í Háskólabíói Til að ræða um fyrirhugaðar breytingar á inntökuskilyrðum í Háskólann boðaði Sveinbjörn Bjömsson, rektor, til kennarafund- ar í Háskólabíói. Þar fóru fram gagnleg skoðanaskipti um um- deildar breytingar á 21. grein lag- anna um Háskólann, hve langt ætti að ganga í að takmarka aðsókn að Alþingistíðindi Alþingistíðindi eru gefin út í tveim deildum, A deild sem er þingskjöl og B deild sem er umræður. Hvor deild kemur út í heftum vikulega meðan þing situr. Registurshefti kemur síðar. Afgreiðsla Alþingistíðinda og þingskjala er í Skólabrú 2. Skrifstofa Alþingis. Háskólanum? Á myndinni er Guð- stúdenta í Háskólaráði, að ávarpa mundur Birgisson, einn fulltrúa fundinn. Þessa dagana er verið að und- irbúa ráðstefnuna Stúdent ‘93 sem haldin verður laugardaginn 13. febrúar á vegum Stúdentaráðs. Ráðstefnan fer fram í Háskólabíói og er ætlunin að fjalla unt þá málaflokka sem hvað mest brenna á stúdentum, atvinnumál, mennta- mál og umhverfismál. Setning verður um kl. 13.00, í stóra sal bíósins en eftir setninguna fara samtímis fram umræður í sölum tvö, þrjú og fjögur, einum sal fyrir hvern málaflokk. Fengnir verða fjórir til fimm fyrirlesarar í hverj- um málaflokki l'yrir sig, bæði há- skólafólk og lólk utan Háskólans, til að halda erindi og eftir erindin verða pallborðsumræður og fyrir- spurnir úr sal. Á meðan umræðurnar fara fram verður ýmislegt að gerast í anddyri bíósins; ýmsar skrifstofur Háskólans, svo sem námsráðgjöf og alþjóðaskrifstofa, munu kynna starfsemi sína og uppi verða Sásar þar sem stúdcntar og ýmis samtök kynna hugmyndir sínar, meðal annars í atvinnu- og umhverfis- málum. Ætlunin er að fólk geti fylgst með ráðstefnunni eftir vild og þess á milli staldrað við frammi í anddyri, fengið sér hress- ingu og kynnt sér það sem þar fer fram. Barnagæsla verður á staðn- um. Ráðstefnan verður kynnt ýtar- lega þegar nær dregur en þeir sem hafa tillögur eða fyrirspurnir eru eindregið hvattir til að konta upp á Stúdentaráð og láta Ijós sitt skína. -gtá Að ofan Finnur Sveinsson, stjórnarformaður F.S. Félagsstofnun stúdenta Fyrir 25 árum tók Félagsstofnun stúdenta til starfa. Stofnun F.S. grundvallast á hugmyndum um stúdenta- fyrirtæki þeim til hagsbóta. Fyrirtæki sem sæi náms- mönnum fyrir húsnæði, námsbókum og öðrum dagleg- um nauðsynjum í tengslum við námið á sem hag- stæðustum kjörum. í upphafi var Ijóst að fyrirtækið gat ekki staðið óstutt fjárhagslega undir þeim væntingum sem til þess voru gerðar. Ríkisvaldið og Háskólinn gerðu sér hins vegar grein fyrir mikilvægi starfsemi fyrir- tækisins og hafa því allt fram til þessa dags styrkt fyrir- tækið eða byggingu stúdentagarða með árlegum fjár- framlögum. Fjárframlögin hafa hingað til verið grundvöll- ur uppbyggingar þeirra þjónustu sem F.S. veitir í dag. Nú eru hins vegar blikur á lofti. Félagsstofnun. hefur líkt og Háskólinn lent undir niðurskurðarhníf ríkisvalds- ins beint og óbeint. Beint þar sem ríkið hefur lækkað verulega styrki til F.S., óbeint þar sem óvíst er hvort og hversu mikið Háskólinn treystir sér til að taka þátt í upp- byggingu stúdentahverfis nú á niðurskurðartímum. Aðal- uppsprettur F.S. fyrir fjármagn til nýframkvæmda gætu því auðveldlega þornað upp á allra næstu árum. Nýtt fjármagn til framkvæmda þarf því líklega að koma frá nýjum stöðum. Möguleikarnir eru í grófum dráttum tveir. Að nálgast aukið fjármagn frá núverandi viðskiptavinum, stúdent- um, eða aðilum utan háskólasamfélagsins. Markmið F.S. hefur hingað til verið að lækka framlag stúdenta til fyrirtækisins, hvort sem um er að ræða hlut F.S. af innritunargjöldum eða verð á þeirri þjónustu sem veitt er. Því er fýsilegra að leita á ný mið. Einingar F.S., þ.e. bóksala, ferðaskrifstofa og húsnæðisdeild eru með þeim stærstu á sínu sviði á landinu. í þeim er fólgin þekking sem getur nýst fleiri en stúdentum. Þessa þekk- ingu verður að virkja stúdentum til hagsbóta. Tækifærin eru mörg og með samstilltu átaki gætu stúdentar gert F.S. að stærsta og öflugasta fyrirtæki landsins sem þjónustar menntafólk og fræðimenn, bæði innan háskól- ans eða utan. Stúdentar að þessu eigum við að stefna saman á næstu árum. Bókaverd lækkaöi um áramótin! bók/ikla. /túdervta. Útgefandi: Stúdentaráö Háskóla íslands Ritstjóri og ábyrgöarmaður: Arnar Guðmundsson Ritnefnd: Aðalsteinn Leifsson, Elínborg Sturludóttir og Helga Kristín Har- aldsdóttir. Ljósmyndari: Guðbrandur Örn Arnarson Prófarkalestur: Ármann Jakobsson Filmuvinna og prentun: Frjáls fjölmiðlun Að þessu blaði unnu með ritnefnd- inni þau Ármann Jakobsson, Brynhildur Þórarinsdóttir, Christopher lan Astridge, Flosi Ei- ríksson, Guðmundur Kr. Birgis- son, Guðmundur Tómas Árnason, Höskuldur Ari Hauksson, “Kolur”, Ólafur Haraldsson, Sigurður Óli Ólafsson, Tryggvi Þórhallsson og Þorsteinn Þorsteinsson. STUDENTABLAÐIÐ

x

Stúdentablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.