Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.02.1993, Síða 4

Stúdentablaðið - 01.02.1993, Síða 4
Af hverju að sitja aðgerðarlaus og horfa á Vöku og Röskvu leika sér þegar þú getur svo auðveldlega orðið: Formaður Stúdentaráðs? Lög um kosningar til Stúdentaráðs gefa hverjum sem er tækifæri til að bjóða fram lista. Fá atkvæði þarf til að koma inn einum manni og vegna þess að tiltölulega lítill munur er á fylgi Vöku og Röskvu getur hvorug fylkingin myndað meirihluta án fulltrúa hins nýja lista. Vaka og Röskva geta ekki unnið saman og þyrftu því, bjóðir þú fram lista, að vinna með þér. Þú hefur öll spil á hendi og gerir þá eðlilegu kröfu að formaður Stúdentaráðs komi af þínum lista: Þú verður formaður, kemst í klíkuna, í 1. des. boð forsetans, í Pressuna og umfram allt í sjónvarpiö. Hér er uppskriftin: Merkið Steldu einhverju smekklegu og grfpandi lógói úr bókinni „The World of Trademarks, Volume III, The Third World“. Ef einhver þekkir það þá er hann að ljúga til að grafa undan hreyf- ingu þinni. Láttu framleiða barmmerki með lógóinu hjá litlu fyrirtæki sem hefur ekki burði til að láta lögfræðinga innheimta skuldir. Framboðslistinn Karlar kjósa karla í áhrifa- stöður og konur kjósa líka karla í áhrifastöður. Konurnar fá hins vegar samviskubit yfir að hafa kosið karla í allar áhrifastöðurn- ar ef ekki eru nokkrar einstæðar mæður á listanum. Körlunum þykir það líka til marks um víð- sýni að hafa kosið lista þar sem konur eru í framboði. Reglan er einföld: veldu karlana í þunga- vigtarsætin fyrst og fylltu svo í skörðin með konum. Utgáta Ekki leggja það á sálartetrið að semja langar greinar um mál- efni Háskólans og stúdenta til að prenta í blöð þín og dreifirit. Fáðu heldur „lánaða“ textabúta úr fimnr til tíu ára gömlum áróð- ursritum Vöku og Röskvu. Það man enginn eftir þeim, allra síst Vöku- og Röskvumenn, og auk þess hefur sáralítið breyst. Láttu vinna allt prentverk á sama stað og barmmerkin (af sömu á- stæðu). Veggspjöld Fáðu litla auglýs- ingastofu til að hanna veggspjöld með gríp- andi slagorðum. Pass- aðu að vera búinn að finna málefni sem eiga við slagorðin áður en þú hengir veggspjöldin upp. (Veggspjöldin eru auðvitað prentuð... þú veist hvar!) . Lúkkiö’ Útlitið ræður úrslit- um í kosningunum því það skilur enginn þau málefni sem fylking- amar segja að kosning- arnar snúist um. Klæðaburðurinn á að vera vegið meðaltal af klæðnaði gesta í Tungl- inu, Bíóbarnum og Hótcl Islandi (það má ekki gleyma sauma- klúbbakonunum sem sitja listasögutíma hjá Birni Th.) Nafnið Veldu stutt nafn, tvö til þrjú atkvæði, sem ekki er til í fleirtölu. Mundu að nafnið þarf að hljóma þannig að jafnt sé hægt að nota það í jákvæðri merkingu og sem skammaryrði (þú færð ekkert fylgi ef enginn er á móti þér). Undirtitillinn á að vísa til einhverrar úreltrar pólitískrar hugsjónar sem enginn skilur lengur, en hljómar vel. Framboðsræðan Kæru vinir, Við senr orðin erurn hagvön í Háskólasamfélag- inu vitum að kerfið sem við búum við í dag hefur gengið sér til húðar. Hinn tvíhöfða Vöku/Röskvu- þurs hefur riðið hér húsum svo lengi að meginþorri stúdenta hefur alfarið misst áhugann á Stúdentaráði og málefnum stúdenta almennt. Breytinga er þörf, um það erum við, kæru vinir, sammála. En hvers vegna er hin nýja hreyfing okkar rétti valkosturinn? Við viljum sjá ferska vinda blása um Háskóla ís- lands. Við viljum að leitað verði leiða lil að ná víð- tækri samstöðu um málefni Lánasjóðs íslenskra námsmanna, að skilningur almennings á mikilvægi mennlunar verði aukinn, og að við öxlum þá ábyrgð sem fylgir því að vera háskólastúdentar. I einstökum málum cr stefna okkar þessi: (veljið annan kostinn í svigunum) Við leggjum htifuðáherslu á að kröfur Lánasjóðs- ins um námsframvindu verði (hertar/minnkaðar). Tekjutillitið er skammarlega (hátt/lágt) og óhætt er að segja að Lánasjóðurinn (hygiar/svínar á) barna- Gegn gerspilltu og stöðnuðu pólitísku vatdakerfi skrifræðis og forræðishyggju í Stúdentaráði dugiraðeins eitt ráð: Að færa MÉR öll völdin! -sóó/-gkb Ath.: Þar sem höfundar þessarar uppskriftar eru málsmetandi aðilar í félagsstarfi fyrir stúdenta, birtir Stúdentablaðið uppskriftina í góðri trú en treystír sér hins vegar ekki til að ábyrgjast að þú verðir orðin(n) að formanni S.H.I. eftir ár, jafnvel þó þú farir í einu og öllu eftir uppskriftinni. Ritstjóri Listahátið Auglýstu skemmtun þar sem allir nemendur Háskólans eru velkomnir (helst á stað þar sem alltaf eru margir hvort sem er). Bjóddu upp á fn'a drykki, hljóð- færaslátt og ljóðaupplestur (til að bókmenntapakkið og kaffi- húsabarónarnir geli réttlæll fylliríið). Þegar vínið er búið er framboðslistinn kynnlur og myndir teknar af gestunum. Myndirnar eru síðan notaðar í næsta áróðurssnepli undir fyrir- sögninni „Stuðningsmenn hylla framboðslista_______- margir urðu frá að hverfa vegna rnikill- ar aðsóknar“. fólki eins og staðan er í dag. Þessu viljum við breyta með (samvinnu/hatrammri baráttu) við rfkisstjórn- ina. I menntamálum ber nú hæst hugmyndir um breytt inntökuskilyrði í Háskólann og fjöldatakmark- anir. Við erum algerlega (andvíg/sammála) stefnu rektors í þessu máli enda öllum Ijóst að stúdentspróf- ið er (úrelt/í fullu gildi). Fjöldatakmarkanir sem al- menn regla eru auðvitað (mannréttindabrot/sjálf- sagðar) og óþarft að fjölyrða þar um. Við leggjum á- herslu á að atvinnumiðlun slúdenta verði (bætt/lögð niður). Hún á að vera (óþörf/fagleg), þ.c. stúdentar verða að geta (reddað sér vinnu sjálfir/fengið störf við hæti). Að lokum má nefna að við teljum frjálsa aðild að Stúdentaráði vera (út í hött/skynsamlega). Stúdentar eiga (ekki/auðvitað) að ráða því sjálfir hvort þeirra pcningar séu notaðir til að reka þá (nauð- synlegu/óþörfu) starfsemi sem fer fram á skrifstofu Stúdentaráðs. Kæru vinir, það þarf þor til að breyta! Við erum umfram alit nýr valkostur. Leggðu þitt lóð á vogar- skálar hins nýja óháða afls! Útvarpskappræður Fyrir hverjar kosningar eru einar útvarpskappræður á Rás 2 (af því að Sigurður G. Tómasson var í Stúdentaráði). í kappræð- unum þarftu að muna að allt sem andstæðingurinn segir er „- lýsandi dæmi um það hvernig viðhorf manna í Vöku og Röskvu hefur mótast af tilefnis- lausum innbyrðis slag þeirra þar sem sjónarmið og hagsmunir hins venjulega stúdents hafi týnst. Það sjái allir sem hlýtt hafi á þeirra mál að breytinga sé þörf!“ Ekki hætta þér úl í mál- efnin, þau skilur enginn hvort sem er. Slúður Þú mátt aldrei láta það heyr- ast að þér sé illa við andstæð- inga þína eða að þú teljir þá ekki vera bestu menn. Hins vegar geta vinir þínir í skólanum hleypt af stokkunum sakleysis- legum sögum um forkólfa Vöku og Röskvu sem eru til þess falln- ar að draga úr trausti kjósenda. Þeir gætu til dæmis haldið því fram að núverandi formaður Stúdentaráðs hafi farið í stúd- entapólitík af því að hann náði engum prólum í skólanum og gat ekki hugsað sér að fara að vinna og að formaður Vöku hafi pissað í blómapott á jólaballinu. Spyrji þig einhver um þessar sögur „þekkirðu ekki til ein- stakra þátta þessara mála sem nefnd eru, þú þekkir ekki þessa menn persónulega, hins vegar segi gamall íslenskur málsháttur að sjaldan Ijúgi almannarómur.” Vísitasíur I skólanum eru ótrú- lega rnargar kaffistofur. Fáðu vin þinn í verkfræð- inni til að útbúa kaffi- stofuslórsáætlun fyrir þig þar sem slórtími á kaffi- stofnun í frímínútum er hámarkaður. Það er lykil- atriði að þú sjáist meðal nemenda, alþýðlegur í fasi, spjallandi á jafnrétt- isgrundvelli um það sem efst er á baugi. Spilling Daginn fyrir kosning- ar skaltu koma fram með sprengju. Veifaðu nótum yfir sakleysislegustu inn- kaup (t.d. kaffisíur) Irá valdatíma Vöku og Röskvu og haltu því blákall fram að um svf- virðilega misnotkun á sjóðum stúdenta sé að ræða. Þcir sem andmæla þér eru einfaldlega með í samsærinu. STUDENTABLAÐIÐ

x

Stúdentablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.