Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.02.1993, Blaðsíða 15

Stúdentablaðið - 01.02.1993, Blaðsíða 15
Ekkert happ- drætti - engin kennsluhús? Reynið að ímynda ykkur starfsemi Háskólans án Odda, VR-húsanna eöa Læknagarðs. Þessi hús eru nefnd því þau eru meöal nýjustu byggingafram- kvæmdanna sem Happdrætti Háskólans hefur fjár- magnað. „Síöastliöin ár hefur ríkiö ekki lagt fram krónu til bygginga eöa viðhalds á vegum Háskól- ans,“ sagöi Ragnar Ingimarsson, forstjóri happ- drættisins. “Happdrætti Háskólans hefur alveg borið framkvæmdirnar uppi.“ Saga happdrættisins er samof- in uppbyggingarsögu Háskólans allt frá því að það tók til starfa 1. janúar 1934. Þá hírðist Háskólinn enn í upprunalegum og alltof litl- um húsakynnum sínum á jarðhæð Alþingishússins. Árið 1932 hafði Alþingi loks samþykkt lög um byggingu handa Háskóla Islands og skyldi „verkið framkvæmt eftir því, sem fé er veitt í fjárlögum“. Engin fjárveiting var hins vegar fyrirhuguð og þegar kunnugt varð að engu fé átti heldur að veita til byggingarinnar næstu árin hóf prófessor Alexander Jóhannesson, þáverandi háskólarektor, baráttu sína fyrir því að fá Alþingi til þess að veita háskólanum einkaleyfi til reksturs peningahappdrættis í því „Happdrætti Háskólans er langsamlega besta happ- drættið,“ segir Ragnar Ingi- marsson. skyni að afla fjár til háskólabygg- ingar. Þetta hafðist, lög um Happ- drætti Háskólans voru samþykkt á Alþingi sumarið 1933. Og aðal- bygging Háskólans varð að veru- leika. Stór verkefni framundan Ágóðinn af happdrættinu renn- ur þó ekki allur til uppbyggingar á vegum Háskólans því að 20 pró- sent af honum fara til ríkisins sem gjald fyrir einkaleyfi á rekstri pen- ingahappdrættis. Þetta einkaleyfis- gjald er enn innheimt þrátt fyrir að aðrir séu farnir að reka hér pen- ingahappdrætti. Ragnar Ingimars- son sagði að einkaleyfisgjaldið rynni allt til Rannsóknastofnana atvinnuveganna og því sé greiðsla þessa gjalds ekki eins sár og ella því að um skylda starfsemi væri að ræða. Ragnar sagði að hluti Há- skólans af ágóðanum færi aldrei til almenns rekstrar skólans heldur eingöngu til bygginga og eftir lagabreytingu árið 1986 einnig til viðhalds og tækjakaupa. Á hverju ári leggi happdrættið til 50 til 60 milljónir í nýbyggingar. Þrátt fyrir að upphæðin sé ekki hærri væri ætíð reynt að koma hlutunum þannig fyrir að byggingarnar kæmust sem fyrst í gagnið. Ragnar sagði að þrátt fyrir mikinn fjölda bygginga á vegum Háskólans þá væru þær flestar í góðu ástandi. Hann nefndi þó að framundan væru tvö til þrjú stærri viðhaldsverkefni, jafnvel stærri en Háskólinn réði við. Þau væru að- albyggingin, Árnagarður og gamla atvinnudeildarhúsið. Vonandi tækist að fá fjármagn til þessara framkvæmda og í því sambandi benti Ragnar sérstaklega á að Há- skólinn hafi aldrei sent ríkinu milljóna bakreikninga vegna við- halds eins og margar aðrar opin- berar stofnanir. Fimm milljarðaráári „Fram til ársins 1986 var sam- keppnin á happdrættismarkaðnum takmörkuð við hin flokkahapp- drættin, DAS og SÍBS,“ sagði Ragnar. „Með tilkomu lottós sem er í raun peningahappdrælti og svo getrauna sem erlendir aðilar reka bættist við sérstök sam- keppni. Nýju aðilarnar veifuðu stórum vinningum og höfðu að vissu marki áhrif á okkar afkomu. Síðan hafa margir aðilar bæst við.“ Ragnar sagði athyglisvert að allir nýju aðilarnir hefðu ekki bara tekið frá eldri happdræltunum heldur hefði veltan á þessunt markaði aukist og væri nú um 5 milljarðar á ári. „Af því eigum við um 30 prósent." „Happdrætti Háskólans er langsamlega besta happdrættið í þeinr skilningi að hagkvæmast er að spila í því.“ Ragnar benti á að vinningshlutfallið væri 70 prósent og að sú tala væri engin reikni- brella. Á síðasta ári seldi Happ- drætti Háskólans miða að andvirði 1.165 milljónir og útborgaðir vinningar voru 810 milljónir sem eru nákvæmlega 69,53 prósent. Engar talnabrellur Ragnar sagði það útbreiddan misskilning að flokkahappdrættin högnuðust á því að „vinna sjálf‘ stærstu vinningana. „Þótt rnörg vinningsnúmer komi á óselda miða þá gerir það ekkert gagn fyr- ir okkur því að jafnvel hæstu vinn- ingarnar eru ekki afgerandi hluti af veltunni. Til að skýra þetta hef ég sett upp eftirfarandi dæmi. Segjum að prentaðir séu miðar í heild að andvirði 100 milljónir í happdrætti með 70 prósent vinn- ingshlutfall. Svo seljum við rniða fyrir 50 milljónir eða helming upplagsins. Vinningadreifingin hjá okkur er slík að þegar dregið er úr öllu prentuðu upplagi þá seg- ir tölfræðin l'yrir um að um 35 milljónir yrðu greiddar út, það er að segja um 70 prósent. Ef við drægjum eingöngu úr seldum ntið- unt þá myndi happdrættið lenda í því að greiða út meiri peninga í vinning en það aflar með sölu miðanna, það er að segja 70 millj- ónir.“ „Það er erfilt að fá fjölmiðla til að skilja þetta,“ sagði Ragnar Ingimarsson að lokunt. STÚDENTABLAÐIÐ Háskólab

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.