Stúdentablaðið - 01.02.1993, Page 16
Nýlega ákváðu andfætlingar
okkar í Astralíu að setja þjóðhöfð-
ingja sinn, Elísabetu 2 Bretadott-
ingu, af og stofna lýðveldi árið
2001. Þegar er hætt að sverja
henni hollustu og God save the
Queen (sama lag og Eldgamla Isa-
fold) heyrist ekki lengur í því
stóra landi. í staðinn er sungið
eitthvað sem heitir Australis.
Þegar þessi friðsama bylting
bætist við hjónabandserjur barna
Betu drottningar og önnur
hneyksli er ekki furða þótt uppi
séu getgátur um að breska kon-
ungsdæmið sé á síðasta snúningi.
Vandræði breska konungs-
dæmisins eru ekki ný af nálinni.
Hnignun þessarar aldar hófst lík-
lega á hinum ókrýnda Játvarði 8
sem afsalaði sér og sínum afkom-
endum (hann var raunar barnlaus)
krúnunni til að giftast tvífráskildri
amerískri konu, Wallis Simpson
(frænku Barts?). Fyrri Bretakon-
ungar höfðu engan látið segja sér
^^^^^hverjum þeir mættu gift-
STÚDENTABLAÐIÐ
ast eða skilja við. Þegar páfinn var
með leiðindi við Hinrik 8 og neit-
aði að samþykkja skilnað hans og
Katrínar af Aragon afnam Hinrik
einfaldlega yfirráð hans yfir ensku
kirkjunni, bjó til sjálfstæða kirkju-
deild, varð sjálfur æðsti yfirmaður
hennar og fékk skilnað sem var
stórum betri aðferð (a.m.k. fyrir
konuna) en hann notaði á tvær af
seinni konum sínum sem misstu
höfuðið.
Bretland
Hundar og hestar
í öndvegi
Sú sérkennilega aðdáun sem
Bretar hafa haft á konungsfjöl-
skyldunni hefur tekið á sig búning
aðdáunar á kvikmyndastjörnum í
seinni tíð, fólk safnar af þeim
myndum og alls konar glingri og
einkalíf þessa blessaða fólks er
aðalfréttaefni þarlendra fjölmiðla.
Gallinn er sá að stjörnur eiga
til að hrapa en konungar ættu helst
að vera stöðugir og núna eru
menn búnir að fá nóg. Söguþráð-
urinn verður sífellt farsakenndari
og er sumt farið að minna óþyrmi-
lega á Dallas þegar Bobby Ewing
dó og kom síðan úr sturtu 57 þátt-
um síðar og þetta hafði allt verið
draumur hjá Pamelu!
Ahugi Breta á þessari fjöl-
skyldu hefur alltaf verið ráðgáta.
Fjölskyldan hefur sjálf engan
áhuga á breskum almenningi eða
fólki yfirhöfuð en kann best við
sig í félagsskap hesta, hunda og
ofsóttra refa. Þegar hestakonan
Anna prinsessa skildi við reið-
kappann mann sinn giftist hún
hestasveininum sínum í staðinn.
Kalli krónprins er síst betri og
slasar sig hvað eftir annað við iðk-
un þeirrar furðulegu íþróttar sem
Bretar nefna Póló (og mun hafa
eitthvað með hesta að gera). Fil-
ippus drottingarmaður er aftur á
móti þekktastur fyrir að móðga er-
lenda þjóðarleiðtoga með sér-
kennilegri kímnigáfu og fyrir að
vera í forsvari fyrir náttúruvemd-
arsamtökin World Wildlife Fund
sem eru á móti hvalveiðum en
vilja vernda skóga Englands til að
Filipus og félagar geti stundað
sínar refaviðar áfram.
En við hverju er að búast af
útlendingum? Breska konungs-
fjölskyldan er alls ekki ensk, held-
ur þýsk. Forfaðir drottingar, Ge-
org I, var þýskur greifi og kunni
alls ekki ensku . Arftakar hans
voru alltaf heldur slappir í því
tungumáli og notuðu þýsku heima
fyrir þangað til í fyrstu heimstyrj-
öldinni að ættin lagði niður sín
þýsku ættarnöfn og tók upp nafnið
Windsor.
Noregur
Þjóðlegir útlendingar
Flestar konungsættir eru út-
lendingar í eigin landi. Það er ekki
bara enska ættin sem er þýsk held-
ur einnig sú danska og sú
belgíska. Sænska konungsættin er
aftur á móti frönsk og Haraldur
Noregskonungur er sonur allra
þjóða nema Norðmanna. Föðurafi
hans var danskur, föðuramma
hans ensk, móðurafinn sænskur og
móðuramman þýsk.
Þeim feðgum Ólafi 5 heitnum
og Haraldi hefur samt tekist að
verða hallærislega norskari en allt
norskt - góðir skíðamenn með
fjállraven bakpoka og heja Norge
húfu. Haraldur er líklegast
tryggastur í sessi af starfsfélögum
sfnum í Evrópu og ræður þar
mestu skynsamleg gifting við
kjólasaumakonuna Sonju og leifar
vinsælda afa hans og föðurs síðan
úr stríðinu - þegar þeir neituðu að
vinna með nasistum, flúðu til
Englands með gullforða ríkisins
og urðu af þessu öllu saman frels-
ishetjur.