Stúdentablaðið

Årgang

Stúdentablaðið - 01.12.1994, Side 3

Stúdentablaðið - 01.12.1994, Side 3
STBL. • Desember 1994 HÁSKÓLIIMN Bls. 3 Þjóðarátakið í fullum gangi gjafir hafa borist stúdentum M a rga r góða r Þjóðarátak stúdenta hefiir nú formlega staðið í tæpa tvo mánuði. A þeim tíma hefur tekist að færa fjöll og þykir fullljóst, að þetta fram- tak mun valda byltingu í bókasafns- málum á íslandi. Þann 1. des næst- komandi, á opnunardegi Þjóðarbók- hlöðunnar, verður tilkynnt hve mik- ið safnast hefur. Að sögn Skúla Helgasonar, framkvæmdastjóra Þjóðarátaksins, hefur átakið gengið vel og er enn í fullum gangi. Að- spurður kvaðst Skúli margar góðar gjafir hafa borist stúdentum. Þar má m.a. nefna gjöf frá þýska rannsókn- arráðinu í gegnum þýska sendiráðið og frá Goethe stofnuninni. Þýska rannsóknarráðið gaf fjöldann allan af bókum að andvirði um hálfrar milljónar króna, einkum bækur úr fræöum heimspeki og raunvísinda. Áður hefur verið greint frá í fréttum veglegri gjöf fyrirtækisins Sony sem færði okkur geisladiska (CD-Rom- diska) að andvirði 2-3 milljónir. Þessi veglega gjöf var fyrir milli- göngu Ólafs Jóhanns Ólafssonar, forstjóra hjá Sony. Af beinum pen- ingagjöfum má nefna 200 þúsund króna gjöf íslendingafélagsins í New York og 100 þúsund króna gjöf norska sendiráðsins. Að sögn Skúla hefúr þó einna mest safnast í formi áskriftargjalda, en fyrirtækjum hefur staðið til boða að taka ákveðin tíma- rit „i fóstur'1. í Þjóðarbókhlöðunni verður reist sérstök tafla, þar sem upptaldir verða vildarvinir Þjóðar- bókhlöðunnar. Frá afhendingu gjafar þýska Rannsóknarráðsins. Á myndinni eru þýski sendiherrann á Islandi og Dagur B. Eggertsson formaður SHÍ. Allir vilja í KR! Það hefur vísast farið fram hjá fæstum að leikmenn hafa streymt til knattspyrnuliðs KR-inga að undanförnu. Allir bestu leik- menn landsins hafa viljað ganga til liðs við félagið af fúsum og frjálsum vilja en sem fyrr komast færri að en vilja. Meðal þeirra sem KR-ingar hafa séð sér fært að klæða í hinn fagurröndótta KR-búning eru Mihajlo Bibercic sem skaut fram hjá fyrir Skaga- menn á síðustu leiktíð og Steinar Adolfs- son sem eflaust hefur verið farið að leiðast metnaðarleysið og miðjuþófið í Val. Að sjálfsögðu er allsendis óvíst hvort þessir menn fá svo mikið sem að verma bekkinn, því úrvalshópur afburða Vesturbæinga er fyrir í liðinu. Það verður því vandasamt fyrir Vesturbæinginn Guðjón Þórðarson þjálf- ara að velja í lið ekki síður en hjá þjálfara kvennakörfuknattleiksliðs KR, en KR-stelp- urnar hafa borið af í vetur. Skólatösku saknað Kristján Guy Burgess, sagnfræðinemi kom í uppnámi inn á skrifstofu Stúdenta- blaðsins og var heldur en ekki óðamála. Þegar ritstjóri innti hann eftir því hvað ylli þessari geðshræringu svaraði Kristján því til að skólataska hans hafi horfið. Hann hafi lagt hana frá sér á 3. hæð í Árnagarði og brugðið sér frá í klukkustund. Þetta hafi verið á milli kl. 17 og 18 fimmtudaginn 24. nóvember sl. Það kæmi sér að sjálfsögðu illa að missa öll gögn svona rétt fyrir próf og ritgerðaskil. Kristján sagði að ekkert í skólatöskunni kæmi neinum öðrum en hon- um til góða og skorar á hvern þann sem sök á á töskuhvarfinu að koma henni til Björns húsvarðar í Árnagarði eða hafa samband við Kristján sjálfan í síma 23137. Kristján vildi líka taka fram að á sama stað ertil sölu Lada deluxe 1988, fallegur bíll, gangfær og í Ijómandi standi.

x

Stúdentablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.